Sjáðu hælspyrnuna sem særði City, Dana klára United og þrennu Joao Pedro Arsenal er komið með sjö stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir hagstæð úrslit í leikjum gærkvöldsins en nú má horfa á mörkin úr leikjunum hér inni á Vísi. Enski boltinn 5.3.2026 08:17
Fámennt lið Newcastle fyrst til að vinna lærisveina Carrick Newcastle United vann dramatískan 2-1 sigur gegn Manchester United í 29. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Heimamenn misstu mann af velli, tóku samt forystu en misstu hana niður og á endanum var það einstaklingsframtak sem tryggði sigurinn. Enski boltinn 4.3.2026 19:48
Segir stjörnuleikmanni sínum að hætta að hugsa um Arsenal Eddie Howe, stjóri Newcastle, hefur hvatt framherjann Anthony Gordon til að láta vangaveltur um hugsanleg félagaskipti til Arsenal í sumar ekki trufla sig. Enski boltinn 28.2.2026 12:18
Mörkin úr enska boltanum: Eitt flottasta mark tímabilsins, dramatík og dýrmætur sigur City Enski boltinn 22.2.2026 09:38
Tonali tryggði Newcastle áfram eftir skelfileg afglöp Bizot Newcastle sló Aston Villa út í 32-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í fótbolta í dag, þrátt fyrir að lenda undir, með 3-1 sigri í Birmingham. Enski boltinn 14. febrúar 2026 17:15
Sjáðu ótrúlega dauðafærið sem Palmer klúðraði og öll mörkin úr enska Fjórir leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi og það var dramatískur viðsnúningur í þeim öllum. Sigurgöngur Manchester United og Chelsea enduðu og bæði Bournemouth og Newcastle unnu á útivelli. Enski boltinn 11. febrúar 2026 08:32
Tottenham í tómu tjóni Vandræði Tottenham í ensku úrvalsdeildinni héldu áfram á heimavelli í kvöld þar sem liðið tapaði fyrir Newcastle United, 1-2. Lærisveinar Thomas Frank eru nú aðeins fimm stigum frá fallsæti. Enski boltinn 10. febrúar 2026 21:36
Brentford upp að hlið Liverpool eftir endurkomusigur á Newcastle Brentford er með jafnmörg stig en lakari markatölu en Liverpool eftir dramatískan 3-2 sigur á Newcastle á St. James' Park í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Enski boltinn 7. febrúar 2026 19:30
Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik enska deildarbikarsins í fótbolta. Þetta varð ljóst eftir að City valtaði yfir Newcastle United í einvígi liðanna í undanúrslitum samanlagt 5-1. Enski boltinn 4. febrúar 2026 21:54
Sjáðu tvennuna hjá Ekitike, endurkomu Chelsea og öll mörkin úr enska í gær Ekki vantaði sviptingarnar í leiki gærdagsins í ensku úrvalsdeildinni. Alls voru sextán mörk skoruð í leikjunum fimm í gær. Enski boltinn 1. febrúar 2026 08:01
Ekitike með tvö á tveimur og langþráður sigur Liverpool Eftir fimm deildarleiki í röð án sigurs vann Liverpool Newcastle United, 3-1, í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Tvö mörk frá Hugo Ekitike á jafn mörgum mínútum sneru leiknum Liverpool í vil. Enski boltinn 31. janúar 2026 22:00
Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Nottingham Forest og Aston Villa unnu bæði góða útisigra í ensku úrvalsdeildinni í dag. Villa-menn sóttu stigin þrjú norður til Newcastle en Forest-menn sóttu þrjú stig suður til London. Enski boltinn 25. janúar 2026 15:59
Útivallarófarir Newcastle halda áfram Eftir þrjá sigra í ensku úrvalsdeildinni í röð gerði Newcastle United markalaust jafntefli við botnlið Wolves á Molineux í dag. Enski boltinn 18. janúar 2026 15:57
Mætir spútnikliðinu: Íslendingar í pottinum er dregið var í enska bikarnum Búið er að draga í fjórðu umferð enska bikarsins í fótbolta. Stórleikur umferðarinnar er viðureign Aston Villa og Newcastle United. Íslendingalið voru í pottinum Hákon Rafn Valdimarsson og félagar hans í Brentford mæta spútnikliði Macclesfield. Enski boltinn 12. janúar 2026 19:01
Newcastle áfram eftir bráðabana og mikla dramatík Eftir ótrúlega dramatík, vítakeppni og bráðabana er Newcastle komið áfram í 32-liða úrslit ensku bikarkeppninnar í fótbolta, með sigri gegn Bournemouth í úrvalsdeildarslag í dag. Enski boltinn 10. janúar 2026 16:35
Sjáðu sögulega seint sigurmark og Manchester-liðin missa frá sér sigra Nú er hægt að sjá hér á Vísi mörkin og alla dramatíkina frá viðburðarríku kvöldi í ensku úrvaldeildinni í gærkvöldi. Enski boltinn 8. janúar 2026 09:04
Brassinn var áfram í stuði þegar Brentford afgreiddi Everton Brentford vann sannfærandi útisigur á Everton í Bítlaborginni í kvöld og er komið upp í sjöunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. Newcastle vann Crystal Palace fyrir norðan. Enski boltinn 4. janúar 2026 16:59
Sjáðu Arsenal rúlla yfir Villa og Úlfana ná í stig á Old Trafford Síðustu leikir ársins í ensku úrvalsdeildinni fóru fram í gær. Arsenal sýndi styrk sinn gegn Aston Villa en leikmenn Manchester United voru púaðir af velli eftir jafntefli við botnlið Wolves á heimavelli. Enski boltinn 31. desember 2025 08:01
Welbeck skoraði úr einu víti og brenndi af öðru Þrjár vítaspyrnur voru dæmdar í 2-2 jafntefli West Ham United og Brighton í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Newcastle United og Everton unnu sína leiki. Enski boltinn 30. desember 2025 21:45
Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Manchester United stakk sér af fullum krafti inn í baráttuna um Meistaradeildarsætin eftir 1-0 sigur á Newcastle í ensku úrvalsdeildinni á Old Trafford í gær. Enski boltinn 27. desember 2025 09:01
Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Manchester United kom sér upp í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir 1-0 sigur á Newastle á Old Trafford í kvöld en þetta var eini leikurinn í deildinni á öðrum degi jóla. Enski boltinn 26. desember 2025 21:55
Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum Manchester United tekur á móti Newcastle United í eina leik dagsins á öðrum degi jóla í ensku úrvalsdeildinni á Old Trafford klukkan 20:00 í kvöld. Enski boltinn 26. desember 2025 09:00
Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Sænskir framherjar reimuðu á sig markaskóna í ensku úrvalsdeildinni í gær þar sem að breyting varð á toppi deildarinnar, en ekki lengi. Liverpool heldur áfram á sigurbraut, Wolves eru enn versta lið deildarinnar og Haaland heldur áfram að raða inn mörkum. Enski boltinn 21. desember 2025 09:03
Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Fimm leikjum er lokið í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Boðið var upp á mikla dramatík þegar að Bournemouth tók á móti Burnely og hörmulegt gengi Wolves heldur áfram. Enski boltinn 20. desember 2025 17:02
Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Newcastle United og Chelsea gerðu 2-2 jafntefli í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Gestirnir frá Lundúnum voru 2-0 undir í hálfleik en björguðu stigi. Enski boltinn 20. desember 2025 14:25