
Pressan á Lakers og Celtics
Hin sögufrægu NBA-lið LA Lakers og Boston Celtics þurfa bæði nauðsynlega á sigrum að halda í úrslitakeppninni í kvöld.
Fréttir úr körfuboltadeild hinna bestu.
Hin sögufrægu NBA-lið LA Lakers og Boston Celtics þurfa bæði nauðsynlega á sigrum að halda í úrslitakeppninni í kvöld.
LeBron James var í nótt krýndur besti leikmaður tímabilsins í NBA-deildinni í körfubolta og hélt upp á það með stórsigri á Atlanta í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum úrslitakeppninnar í Austurdeildinni.
Fyrrum körfuknattleiksmaðurinn og sjónvarpsstjarnan Dennis Rodman er á leið í áfengismeðferð.
Áhugaverðir hlutir áttu sér stað í úrslitakeppni NBA í nótt þar sem liðin sem léku til úrslita í fyrra, LA Lakers og Boston Celtics, töpuðu bæði á heimavelli í fyrsta leik annarar umferðar.
Það áttu margir von á því að það yrði hörð barátta á milli LeBron James og Kobe Bryant um nafnbótina leikmaður ársins í NBA-deildinni. Íþróttafréttamenn voru þó ekki á því þar sem James hlaut yfirburðakosningu.
LeBron James verður í kvöld útnefndur verðmætasti leikmaður NBA deildarinnar eftir því sem fram kemur í fjölmiðlum í Bandaríkjunum í dag.
Fyrsti leikurinn í annari umferð úrslitakeppni NBA fór fram í kvöld þar sem Denver bar sigurorð af Dallas á heimavelli sínum 109-95 og náði 1-0 forystu í einvíginu.
Atlanta Hawks varð í kvöld síðasta liðið til að tryggja sér sæti í annari umferð úrslitakeppninnar í NBA deildinni með auðveldum sigri á Miami Heat í oddaleik liðanna.
Boston Celtics vann Chicago Bulls 109-99 í oddaleik í Boston í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt. Meistarar Boston eru þar með komnir áfram í undanúrslit Austurdeildarinnar þar sem þeir mætir Orlando Magic.
Dwyane Wade var greinilega ekki á þeim buxunum að fara í sumarfrí þegar hann skoraði 41 stig í 98-72 stórsigri Miami Heat á Atlanta Hawks í sjötta leik liðanna í úrslitakeppni NBA deildarinnar í nótt.
Sjötti leikur Miami Heat og Atlanta Hawks í úrslitakeppni NBA deildarinnar verður sýndur beint á Stöð 2 Sport klukkan tólf á miðnætti.
Þrálátur orðrómur hefur verið í gangi í fjölmiðlum í Boston í dag um að framherjinn Kevin Garnett muni ætla að spila í sjöunda leik liðsins gegn Chicago annað kvöld.
Einvígi Boston Celtics og Chicago Bulls í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í NBA er fyrir löngu orðið sígilt og í nótt þurftu liðin þrjár framlengingar til að skera úr um sigurvegarann í sjötta leiknum í Chicago.
Hörðustu stuðningsmenn Chicago Bulls eiga nú möguleika á að eignast meistarahringa félagsins frá því að það vann þrjá titla í röð á árunum 1996-98.
Bakvörðurinn ungi Brandon Roy hjá Portland Trailblazers í NBA deildinni fær ekki dónaleg ummæli frá einum besta varnarmanni deildarinnar, Ron Artest hjá Houston Rockets.
Denver Nuggets er komið áfram í undanúrslit Vesturdeildar NBA-deildarinnar í körfubolta eftir 107-86 sigur á New Orleans Hornets í nótt. Denver vann einvígið 4-1 og mætir Dallas í næstu umferð.
Orlando verður án tveggja byrjunarliðsmanna þegar liðið sækir Philadelphia heim í sjötta leik liðanna í úrslitakeppni NBA annað kvöld.
Einvígi meistara Boston Celtics og Chicago Bulls í úrslitakeppni NBA deildarinnar hefur verið frábær skemmtun. Boston náði í nótt 3-2 forystu í einvíginu og getur klárað dæmið í Chicago annað kvöld.
Boston Celtics og Orlando Magic tóku 3-2 forustu í sínum einvígum í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í nótt og Portland Trail Blazers hélt sér á lífi með því að minnka muninn í sínu einvígi í 3-2.
Dallas Mavericks varð þriðja liðið til að tryggja sér sæti í annarri umferð úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt þegar liðið vann 106-93 sigur á San Antonio Spurs á útivelli. Dallas vann þar með einvígið 4-1.
Varamaðurinn James Jones hjá Miami Heat í NBA deildinni átti magnaða innkomu í leik liðsins gegn Atlanta í úrslitakeppninni í nótt sem leið.
Leikstjórnandinn Derek Fisher hjá LA Lakers hefur fengið nálgunarbann á konu sem haldin er þeirri ranghugmynd að hún sé eiginkona hans.
Það stefnir í jafnt og spennandi einvígi á milli Atlanta Hawks og Miami Heat í úrslitakeppni NBA-deildarinnar en sama verður ekki sagt um einvígi Denver Nuggets og New Orleans Hornets þar sem Denver komst í 3-1 eftir 58 stiga sigur á útivelli.
Los Angeles Lakers tryggði sér sæti í undanúrslitum Vesturdeildar NBA-deildarinnar í körfubolta með 107-96 sigri á Utah Jazz í fimmta leik liðanna í nótt. Lakers vann einvígið 4-1 en lið vann tvo fyrstu leikina og svo þá tvo síðustu.
Einvígi meistara Boston Celtics og Chicago Bulls í úrslitakeppni NBA deildarinnar hefur vakið mikla athygli.
Orlando hefur jafnað metin í 2-2 í einvígi sínu við Philadelphia í úrslitakeppni NBA deildarinnar eftir góðan útisigur í nótt. Þá er Houston komið í góð mál 3-1 gegn Portland.
Cleveland Cavaliers varð í kvöld fyrsta liðið til þess að tryggja sig inn í aðra umferð úrslitakeppninnar. Liðið lagði þá Detroit Pistons, 99-78, í Detroit og sópaði Pistons um leið úr úrslitakeppninni, 4-0.
Chicago Bulls gerði sér lítið fyrir í kvöld og jafnaði rimmuna við meistara Boston Celtics. Bulls vann í kvöld, 121-118, og staðan í rimmunni 2-2.
Fjórði leikur Cleveland og Detroit í fyrstu umferð NBA úrslitakeppninnar verður sýndur beint á Stöð 2 Sport klukkan 19:30 í kvöld. Þar getur Cleveland orðið fyrsta liðið til að tryggja sig í aðra umferð með sigri, því liðið hefur yfir 3-0 í einvíginu.
Los Angeles Lakers og Dallas Mavericks eru bæði einum leik frá því að komast í næstu umferð í úrslitakeppni NBA eftir leiki næturinnar.