

Meistaradeildin
Keppni hinna bestu í Evrópu.
Leikirnir

Xavi: Fabregas gerir mig að betri fótboltamanni
Spánverjinn Xavi, einn allra besti miðjumaður í heimi, telur að koma Cesc Fabregas til Barcelona muni hjálpa honum til að verða enn betri leikmaður en Xavi er nú handhafi allra stærstu titlanna sem fótboltamaður getur unnið.

Pato frá í fjórar vikur
Brasilíumaðurinn Pato hjá AC Milan verður frá næstu fjórar vikurnar vegna meiðsla sem hann varð fyrir í leik liðsins gegn Udinese í gær.

Guardiola: Ég mun aldrei lofa því að Barcelona vinni titla
Það eru flestir tilbúnir að leggja mikið undir að Barcelona vinni stóru titlana á þessu tímabili en þjálfarinn Pep Guardiola vill þó ekki lofa neinu. Barcelona hefur unnið 12 af 15 titlum í boði síðan að þessi fertugi Spánverji tók við Barcelona-liðinu haustið 2008.

Zagreb-maðurinn Leko: Ég ætlaði aldrei að meiða Cristiano Ronaldo
Jerko Leko, leikmaður Dinamo Zagreb, segir ekkert til í því að hann hafi ætlað sér að meiða Cristiano Ronaldo í leik Dinamo Zagreb og Real Madrid í Meistaradeildinni á miðvikudaginn. Það þurfti að sauma nokkur spor í hægri ökkla Ronaldo eftir tæklingu Leko en Real Madrid vann leikinn 1-0.

Fabregas: Arsenal er ekkert að fara að vinna stóra titla á næstu árum
Spænski landsliðsmaðurinn Cesc Fabregas hefur ekki mikla trú á því að hans gömlu félagar í Arsenal vinni einhverja stóra titla á næstunni. Barcelona keypti Fabregas frá Arsenal fyrir tímabilið og hann er þegar búinn að vinna tvo titla í búningi Barcelona.

Ambrosini verður frá í 2-3 vikur
Massimo Ambrosini, leikmaður AC Milan, verður frá næstu 2-3 vikurnar þar sem hann meiddist á öxl í leik liðsins gegn Barcelona í Meistaradeild Evrópu á þriðjudagskvöldið.

Ronaldo segist vera fórnarlamb eigin útlits og velgengni
Cristiano Ronaldo, leikmaður Real Madrid, var ekki sáttur við þá meðhöndlun sem hann fékk bæði frá leikmönnum Dynamo Zagreb í gær sem og dómara leiksins, hinum norska Svein Oddvar Moen.

Dóttir Kenny Dalglish fór í taugarnar á Ferguson
Eins og frægt er þá brást Ales Ferguson, stjóri Manchester United, heldur illa við spurningu fréttamanns eftir leik liðsins gegn Benfica í Meistaradeild Evrópu í gær. Téður fréttamaður er hins vegar dóttir Kenny Dalglish, stjóra Liverpool.

Ronaldo: Dómarinn var til skammar
Cristiano Ronaldo, leikmaður Real Madrid, var allt annað en sáttur við norska dómarann Oddvar Moen í kvöld en hann dæmdi leik Real og Dinamo Zagreb.

De Boer: Jafntefli sanngjörn niðurstaða
Frank de Boer, þjálfari Ajax, sagði jafntefli hafa verið sanngjörn úrslit er Ajax tók á móti Lyon í Meistaradeildinni í kvöld. Leiknum lyktaði með markalausu jafntefli.

Ferguson pirraður út í blaðamenn - De Gea spilar gegn Chelsea
Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, var eitthvað pirraður út í blaðamenn eftir jafnteflið gegn Benfica í kvöld. Hann þoldi illa að þeir spyrðu hann út í hvort frammistaða markvarðarins Anders Lindegaard hefði gert það að verkum að David de Gea yrði á bekknum í næsta leik.

Mancini: Verðum að vinna í Munchen
Roberto Mancini, stjóri Man. City, sagðist vera nokkuð sáttur við stigið gegn Napoli í kvöld enda kom liðið til baka eftir að hafa lent undir.

Í beinni: Manchester City - Napoli
Boltavakt Vísis er með beina lýsingu frá viðureign Manchester City og Napoli í A-riðli Meistaradeildar Evrópu.

Miðstöð Boltavaktarinnar - allir leikirnir á einum stað
Fjölmargir leikir fara fram í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld og býður íþróttavefur Vísis lesendum sínum upp á að fylgjast með þeim öllum samtímis.

Í beinni: Ajax-Lyon - Kolbeinn í liðinu
Boltavakt Vísis er með beina lýsingu frá viðureign Ajax og Lyon í D-riðli Meistaradeildar Evrópu.

Koscielny: Varnarleikur liðsins er allur að koma til
Varnarmaðurinn Laurent Koscielny, leikmaður Arsenal, sagði eftir leikinn í gær gegn Borussia Dortmund í Meistaradeild Evrópu að varnarleikur liðsins hefði tekið miklum framförum.

Jafnt hjá Manchesterliðunum og Kolbeinn spilaði - öll úrslit kvöldsins
Manchesterliðin gerðu bæði jafntefli í leikjum sínum í Meistaradeildinni í kvöld. Kolbeinn Sigþórsson þreytti einnig frumraun sína í keppninni með Ajax. Inter tapaði óvænt á heimavelli.

Mancini: Erum með gríðarlega reynslumikla menn
Roberto Mancini, knattspyrnustjóri Manchester City, ætlar sér stóra hluti í Meistaradeild Evrópu á tímabilinu og telur að lið hans sé klárt í slaginn. Mancini vill meina að Man. City sé með nægilega mikla reynslu og leikmenn liðsins hafi þau gæði sem þurfi til ná langt í þessari keppni.

Kolbeinn verður í eldlínunni í kvöld - Manchesterliðin hefja leik
Meistaradeild Evrópu heldur áfram göngu sína í kvöld og fjölmargir leikir fara fram. Manchester United fer í heimsókn á Estádio da Luz, heimavöll Benfica, þar sem liðin eigast við í fyrstu umferð riðlakeppninnar.

Guardiola: Bolt hefði ekki einu sinni getað náð Pato
Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, tók upp hanskann fyrir varnarlínu sína eftir 2-2 jafntefli við AC Milan í Meistaradeildinni í gær. Varnarmenn liðsins voru eins og áhorfendur þegar Brasilíumaðurinn Alexandre Pato skoraði fyrsta mark liðsins eftir aðeins 24 sekúndur.

Pat Rice: Allt of stressandi að vera knattspyrnustjóri
Pat Rice, aðstoðarþjálfari Arsenal, stýrði liðinu gegn Borussia Dortmund í Meistaradeild Evrópu þar sem Arsene Wenger, knattspyrnustjóri félagsins, var í leikbanni.

Malouda hrósar Torres
Florent Malouda, vængmaður Chelsea, hrósaði framherjanum Fernando Torres eftir sigurinn á Bayer Leverkusen í kvöld. Torres lagði upp bæði mörk Chelsea í leiknum.

Iniesta frá í mánuð
Andres Iniesta, miðjumaður Barcelona, meiddist í leiknum gegn AC Milan í kvöld og varð að fara af velli. Nú er ljóst að hann verður frá í mánuð vegna meiðslanna.

Szczesny. Ég átti ekki möguleika í þetta skot
Wojciech Szczesny, markvörður Arsenal, var nokkuð sáttur við stigið gegn Dortmund á útivelli í kvöld. Arsenal var ekki fjarri því að ná sigri en þrumufleygur Perisic undir lokin bjargaði stigi fyrir heimamenn.

Villas-Boas: Þetta var sanngjarn sigur
Andre Villas-Boas, stjóri Chelsea, var að vonum ánægður með sigurinn gegn Bayer Leverkusen í Meistaradeildinni í kvöld. Það tók Chelsea 67 mínútur að brjóta Leverkusen niður og enska liðið vann að lokum 2-0 sigur.

Maradona: Agüero á skilið að spila fyrir lið eins og City
Knattspyrnugoðsögnin Diego Maradona segir að það hafi verið rétt ákvörðun hjá tengdasyni sínum, Sergio Agüero, að fara frá Atletico Madrid og ganga til liðs við Manchester City.

Í beinni: Chelsea - Bayer Leverkusen
Boltavakt Vísis er með beina lýsingu frá viðureign Chelsea og Bayer Leverkusen í E-riðli Meistaradeildar Evrópu.

Milan náði stigi gegn Barcelona - öll úrslit kvöldsins
Barcelona byrjaði titilvörn sína í Meistaradeildinni ekki nógu vel í kvöld er liðið gerði jafntefli, 2-2, á heimavelli sínum. Milan jafnaði leikinn í blálokin.

Miðstöð Boltavaktarinnar - allir leikirnir á einum stað
Fjölmargir leikir fara fram í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld og býður íþróttavefur Vísis lesendum sínum upp á að fylgjast með þeim öllum samtímis.

Í beinni: Dortmund - Arsenal
Boltavakt Vísis er með beina lýsingu frá viðureign Dortmund og Arsenal í F-riðli Meistaradeildar Evrópu.