Rúmlega helmingur býr enn við ofbeldisaðstæður Rúmlega helmingur þeirra sem varð fyrir heimilisofbeldi í fyrra býr enn við aðstæðurnar og er hlutfallið talsvert hærra miðað við fyrri ár, samkvæmt nýrri skýrslu ríkislögreglustjóra. Skýrsluhöfundur telur að aukið atvinnuleysi og óvissa í samfélaginu hafi áhrif á stöðuna. Innlent 14. febrúar 2021 17:00
Skotinn til bana fyrir utan heimili sitt Karlmaður á fertugsaldri var skotinn til bana fyrir utan heimili sitt í Rauðagerði í Reykjavík um miðnætti síðastliðna nótt. Karlmaður er í haldi lögreglu í tenglsum við málið. Innlent 14. febrúar 2021 14:34
Mannslát í Reykjavík til rannsóknar og einn í haldi Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í nótt tilkynning um slasaðan karlmann á fertugsaldri fyrir utan hús í Rauðagerði í Reykjavík. Endurlífgunartilraunir hófust strax á vettvangi og í kjölfarið var hann fluttur á Landspítala. Hann var úrskurðaður látinn stuttu eftir komuna. Innlent 14. febrúar 2021 11:12
Sími, borvélar, humar og nautakjöt meðal þess sem stolið var Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti fimmtán hávaðaútköllum frá klukkan fimm síðdegis í gær til klukkan fimm í morgun. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Innlent 14. febrúar 2021 07:29
Þriðji staðurinn á von á sekt eftir brot um helgina Aðstandendur eins veitingastaðar í Reykjavík mega eiga von á kæru, þar sem staðnum hafði ekki verið lokað þegar klukkan var tuttugu mínútur yfir tíu í gærkvöldi. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar. Innlent 14. febrúar 2021 07:18
Á von á að málum staðanna í miðbænum ljúki með sekt Víða var fullbókað á veitingastöðum í miðborginni í gær, fyrstu helgina sem krár og skemmtistaðir fengu að taka úr lás eftir rúmlega fjögurra mánaða lokun. Tveir veitingastaðir eiga von á sekt vegna brota á reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar. Innlent 13. febrúar 2021 11:31
Harður árekstur og skemmdarverk í ráðhúsinu Lögregla var kölluð á vettvang um kl. 21 í gærkvöldi eftir að bifreið var ekið á vegrið á Bústaðavegi með þeim afleiðingum að hún kastaðist yfir á rangan vegarhelming og framan á aðra bifreið. Innlent 13. febrúar 2021 07:57
Tveir veitingastaðir eiga mögulega von á sektum Einn veitingastaður má búast við kæru fyrir brot á sóttvarnalögum annars vegar og brot á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald annars vegar. Annar veitingstaður verður hugsanlega kærður fyrir brot á sóttvarnalögum. Innlent 13. febrúar 2021 07:43
Sex prósent landsmanna urðu fyrir barðinu á eltihrelli árið 2019 Eltihrellar mega búast við allt að fjögurra ára fangelsisvist eftir að Alþingi hefur samþykkt sérstök lög um umsáturseinelti. Um sex prósent landsmanna urðu fyrir barðinu á eltihrelli árið 2019. Dómsmálaráðherra segir þetta ofbeldisglæp og eitt mál af þessu tagi sé einu máli of mikið. Innlent 12. febrúar 2021 19:56
Lögðu hald á nokkuð magn fíkniefna auk skotvopns Lögreglan á Austurlandi hefur á undanförnum vikum stöðvað tvær kannabisræktarnir í umdæminu. Innlent 12. febrúar 2021 09:22
Fóru úr landi eftir að þeir brutu sóttkví Fjórir ferðamenn sem grunaðir eru um að hafa brotið reglur um sóttkví við komuna til landsins hafa yfirgefið landið. Mennirnir voru hér á vegum fyrirtækis sem sendi þá úr landi eftir að stjórnendur fréttu af brotunum. RÚV greinir frá. Innlent 11. febrúar 2021 19:09
Lögregla beitti piparúða Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu beitt skömmu fyrir klukkan tvö í nótt piparúða til þess að ná stjórn á vettvangi í Hafnarfirði. Innlent 11. febrúar 2021 06:23
Starfsmenn barnaverndar kærðir til lögreglu: „Þarna er hreinn og klár ásetningur“ Starfsmenn Barnaverndar Reykjavíkur og Barnaverndarnefnd Reykjavíkur hafa verið kærð til lögreglu fyrir brot á hegningarlögum. Í kærunni eru starfsmenn barnaverndar sakaðir um að hafa ítrekað og endurtekið haldið fram ósannindum og rangindum í skýrslum og nefndin sökuð um að byggja ákvarðanir á umræddum gögnum. Innlent 11. febrúar 2021 06:15
Náðu ekki í skottið á Bandaríkjamönnum sem grunaðir eru um brot á sóttkví Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú tveggja Bandaríkjamanna sem grunaðir eru um brot á sóttkví. Mennirnir sátu að sumbli á Lebowski bar í miðbæ Reykjavíkur á sunnudag en voru horfnir á braut þegar lögregla kom á staðinn. Innlent 10. febrúar 2021 19:21
Göngumaður ökklabrotnaði í Esjunni Talið er að maður sem var á göngu Esjunni hafi ökklabrotnað síðdegis í gær. Í pósti frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að tilkynning um slysið hafi borist um stundarfjórðungi yfir fimm í gær. Innlent 10. febrúar 2021 07:13
Lögreglan leitar að kofaeiganda Um klukkan hálftíu í gærkvöldi fannst brotinn kofi á Suðurstrandarvegi, rétt vestan við Hlíðarvatn. Innlent 9. febrúar 2021 07:28
Ofurölvi á veitingahúsi og áreitti gest Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók um kvöldmatarleytið í gærkvöldi mann sem var ofurölvi á veitingahúsi í austurbæ Reykjavíkur. Innlent 8. febrúar 2021 06:27
Stríðið gegn konum Gunnar Smári skrifar um umræðuna og gengdarlaust ofbeldi gegn konum. Skoðun 7. febrúar 2021 08:01
Neitaði að borga reikninginn á veitingastað og var vistuð í fangageymslu Lögregla var kölluð til á ellefta tímanum í gærkvöldi vegna konu á veitingahúsi í miðbæ Reykjavíkur. Konan hafði neitað að greiða reikninginn á veitingastaðnum og gaf ekki upp nafn eða kennitölu þegar lögregla kom á vettvang. Var hún vistuð sökum ástands í fangageymslu lögreglu. Innlent 7. febrúar 2021 07:44
Grunaður um að hafa stolið tveimur pokum af humri Lögregla sinnti nokkrum útköllum vegna þjófnaðar í gærkvöldi og í nótt, en á níunda tímanum í gærkvöld var tilkynnt um hnupl úr verslun í miðbæ Reykjavíkur. Þar var maður sagður hafa stolið matvöru og var hann tekinn í skýrslutöku hjá lögreglu en látinn laus að henni lokinni. Innlent 6. febrúar 2021 08:28
Óboðnir gestir ruddust í samkvæmi ungmenna Lögregla var kölluð til í samkvæmi í Grafarvogi á öðrum tímanum í nótt eftir ítrekaðar tilkynningar. Þar voru flestir gestir á aldrinum sextán til átján ára og höfðu óboðnir gestir ruðst inn í samkvæmið samkvæmt upplýsingum lögreglu. Grunur er um líkamsárás, húsbrot og brot á vopnalögum, að því er fram kemur í dagbók lögreglu. Innlent 6. febrúar 2021 08:18
Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna rannsóknar á innflutningi fíkniefna Karlmaður um þrítugt var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald til 12. febrúar á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 5. febrúar 2021 21:42
Lögreglan lýsir eftir Kára Siggeirssyni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir hinum 32ja ára Kára Siggeirssyni. Kári er sagður vera 174 sentimetrar á hæð, þéttvaxinn, brúnhærður og með stutt hár. Innlent 5. febrúar 2021 18:04
Grunaður byssumaður losnar úr varðhaldi Karlmaður á sextugsaldri sem grunaður er um að hafa skotið með riffli á fjölskyldubíl Dags B. Eggertssonar borgarstjóra losnar úr gæsluvarðhaldi klukkan fjögur í dag. Héraðssaksóknari taldi ekki grundvöll til að krefjast áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir manninum. Innlent 5. febrúar 2021 14:16
Í haldi lögreglu vegna líkamsárásar Laust fyrir klukkan miðnætti í gær handtók lögreglan á höfuðborgarsvæðinu manns í Árbænum sem grunaður er um líkamsárás og brot á vopnalögum. Innlent 5. febrúar 2021 06:47
Á 135 kílómetra hraða í Ártúnsbrekkunni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði bíl í Ártúnsbrekkunni eftir hraðamælingu um klukkan átta í gærkvöldi en ökumaðurinn ók bílnum á 135 kílómetra hraða á klukkustund. Leyfilegur hámarkshraði í Ártúnsbrekku er 80 kílómetrar á klukkustund. Innlent 4. febrúar 2021 06:35
Maðurinn sem myrti Freyju áður verið dæmdur fyrir morð Karlmaðurinn sem játað hefur að hafa myrt Freyju Egilsdóttur í Malling á Jótlandi hefur áður verið dæmdur fyrir morð. Árið 1996 hlaut hann dóm fyrir morðið á annarri barnsmóður sinni, en sonur þeirra var þá tveggja ára gamall. Erlent 3. febrúar 2021 21:13
„Hún var vinsæl og vinamörg, við erum í algjöru áfalli“ Vinir Freyju Egilsdóttur sem fannst látin á heimili sínu í nótt segja mikla sorg ríkja í Malling þar sem hún bjó. Þeir tóku þátt í leit að henni í gær, ásamt fjölmennu lögregluliði. Kerti og blóm hafa streymt að heimili hennar í dag. Innlent 3. febrúar 2021 19:00
Garðkönnu kastað í rúðu á heimili varaborgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í nótt Skemmdarverk voru unnin á heimili Ólafs Kr. Guðmundssonar, varaborgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, í nótt. Þetta staðfesti hann í samtali við Vísi en vildi ekki tjá sig frekar um málið. Innlent 3. febrúar 2021 16:59
Líkama látna líklega velt yfir handriðið og kastað Við rannsókn á dauða manns sem lést eftir fall af svölum fjölbýlishúss í Grafarholti 8. desember 2019, komust sérfræðingar að þeirri niðurstöðu að „utanaðkomandi“ kraftur hefði orðið til þess að maðurinn fór fram af. Innlent 3. febrúar 2021 13:37