Olli ónæði í Grafarvogi Lögregla á höfuðborgarsvæðinu handtók mann í mjög annarlegu ástandi í Grafarvogi síðdegis í gær. Í dagbók lögreglu segir að tilkynningin hafi borist klukkan 17:20, en ítrekað var búið að hafa afskipti af manninum þar sem hann var að valda ónæði. Innlent 20. júní 2022 07:30
Verkamaðurinn úrskurðaður í fjögurra vikna langt gæsluvarðhald Verkamaður sem réðst á vinnufélaga sinn á sautjánda júní og veittist að honum með haka og klaufhamri hefur verið úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald. Þetta staðfestir Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn í samtali við fréttastofu. Innlent 19. júní 2022 16:39
Skar mann á fæti með brotinni flösku Maður réðst á dyravörð í miðborg Reykjavíkur á þriðja tímanum í nótt og skar hann á fæti með brotinni flösku, að sögn lögreglu. Maðurinn var handtekinn og vistaður í fangageymslu vegna rannsóknar málsins. Innlent 19. júní 2022 07:57
Tveir fluttir á slysadeild eftir að byggingaverkamönnum sinnaðist Tveimur byggingaverkamönnum úr hópi sem var við vinnu við hús á Seltjarnarnesi sinnaðist á ellefta tímanum í morgun með þeim afleiðingum að tveir voru fluttir á sjúkrahús og einn handtekinn. Innlent 17. júní 2022 11:30
Fjórir handteknir í nótt vegna líkamsárása Mikið var um að vera hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt ef marka má dagbók lögreglu. Sextíu og tvö mál voru skráð frá klukkan 17 síðdegis í gær þar til klukkan fimm í morgun. Alls gistu átta í fangageymslum lögreglu í nótt. Innlent 17. júní 2022 07:29
Braut glas á höfði manns Tilkynnt var um líkamsárás á veitingastað rétt fyrir miðnætti niðri í bæ. Kona braut þá glas á höfði manns og var lögregla kölluð til. Konan var komin á annað veitingahús þegar lögregla mætti á staðinn en þar var hún handtekin. Hún var með sár á fingrum og því fyrst flutt til aðhlynningar á bráðadeild áður en hún var vistuð í fangageymslu lögreglu. Innlent 16. júní 2022 06:23
Svínaði fyrir lögreglubíl númerslaus, undir áhrifum fíkniefna og án ökuréttinda Það var nóg um að vera hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt samkvæmt dagbók lögreglu. Þónokkrir ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna eða áfengis. Innlent 15. júní 2022 06:20
Reyndi að flýja lögreglu á hlaupum Ökumaður bifreiðar sem lögreglumenn hugðust stöðva gaf í og reyndi að komast undan. Lögreglumenn hlupu hann uppi eftir að hann yfirgaf bifreiðina og reyndi að komast undan á tveimur jafnfljótum. Innlent 14. júní 2022 17:29
Ungmenni nefbraut ungmenni í Kópavogi Klukkan rúmlega fimm í gær fékk lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tilkynningu um líkamsárás í Kópavogi. Árásarþoli var fluttur nefbrotinn á bráðadeild til aðhlynningar en bæði hann og gerandinn eru fæddir árið 2008. Innlent 14. júní 2022 07:03
Saksóknari með styttuhvarfið til skoðunar Styttu af Guðríði Þorbjarnardóttur var stolið af Snæfellsnesi og flutt til Reykjarvíkur í mars á þessu ári. Málinu er lokið af hálfu lögreglu en þar höfðu tveir stöðu grunaðs manns. Málið hefur nú verið komið til saksóknara sem mun taka ákvörðun um ákæru í málinu. Innlent 13. júní 2022 22:53
Ekið á gangandi, hjólandi og á rafhlaupahjóli Bifreiðum var ekið á gangandi vegfaranda, hjólreiðamann og manneskju á rafhlaupahjóli í Reykjavík í dag. Þá var bíl ekið á lamb í austurborginni. Innlent 13. júní 2022 17:41
Skálar við meinta kynferðisafbrotamenn í svikapóstum Óprúttnir aðilar hafa sent út svikapósta í nafni ríkislögreglustjóra og dómsmálaráðuneytisins þar sem viðtakendur eru sakaðir um að hafa skoðað barnaníðsefni og þeim tilkynnt að fjölmiðlar verði upplýstir um sakargiftirnar. Innlent 13. júní 2022 17:32
Þrír handteknir fyrir ógnandi framkomu og hótanir Þrír menn voru handteknir af lögreglu í nótt á þremur ólíkum stöðum og vistaðir í fangageymslu fyrir ógnandi framkomu og hótanir. Fyrst var tilkynnt um mann í annarlegu ástandi í Hafnarfirði sem var mjög æstur og hafði verið að ógna fólki. Lögregla handtók hann og setti í fangaklefa sökum ástands. Innlent 13. júní 2022 06:47
María er fundin María Bjarnadóttir, sem leitað var frá um klukkan 10 í morgun, er komin í leitirnar heil á húfi. Innlent 12. júní 2022 19:21
Lokaðist inni á veitingastað Nokkur erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt, og talsvert um ölvun í miðborg Reykjavíkur. Innlent 12. júní 2022 07:29
„Ekki boðlegt að fólk sé að deyja þarna við þessar aðstæður“ Erlendur ferðamaður á áttræðisaldri lést í Reynisfjöru í gær. Viðvörunarskilti eru í fjörunni en nokkur banaslys hafa orðið þar á undanförnum árum. Yfirlögregluþjónn á Suðurlandi segir erfitt að meta hvað annað væri hægt að gera en takmarka aðgengi að fjörunni til að koma í veg fyrir slys. Innlent 11. júní 2022 12:30
Banaslys í Reynisfjöru Erlendur ferðamaður, karlmaður á áttræðisaldri lést í gær þegar alda hreif hann með sér úr Reynisfjöru og út í sjó. Innlent 11. júní 2022 09:44
Létu greipar sópa í Vesturbænum Par sem kom í íbúð í Vesturbænum í gærkvöldi undir því yfirskyni að sækja þar tösku létu greipar sópa. Innlent 11. júní 2022 07:25
Tvö umferðarslys á Miklubraut í morgun Tilkynnt var um tvö umferðarslys á Miklubraut í Reykjavík í morgun, annað til móts við Skeifuna og hinn við Stakkahlíð á leið vestur. Innlent 10. júní 2022 12:42
Vill vægari kröfur um gæsluvarðhald Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu kallar eftir auknum heimildum lögreglu til að takast á við skipulagða brotastarfsemi, líkt og þá sem greint var frá í dag en lögregla lagði nýlega hald á mesta magn fíkniefna sem hún hefur gert á Íslandi í einu og sama máli. Innlent 9. júní 2022 19:06
Innbrotsþjófur stal stórri múffu úr kynlífstækjaversluninni Blush Brotist var inn í kynlífstækjaverslunina Blush á Dalvegi klukkan sjö í morgun og greip innbrotsþjófurinn með sér múffu af stærri gerðinni. Þessu greinir Gerður Arinbjarnar, eigandi verslunarinnar frá. Innlent 9. júní 2022 17:01
Eitt mesta magn fíkniefna sem lögregla hafi lagt hald á Lögreglan hefur lagt hald á gríðarlegt magn fíkniefna og handtekið tíu manns í tengslum við tvær umfangsmiklar rannsóknir á skipulagðri brotastarfsemi. Innlent 9. júní 2022 14:25
Svona var blaðamannafundur lögreglu vegna tveggja umfangsmikilla rannsókna Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu boðaði til blaðamannafundar í dag klukkan 14. Fjallað var um aðgerðir lögreglu vegna skipulagðrar brotastarfsemi hér á landi og greint frá tveimur umfangsmiklum rannsóknum lögreglu í málaflokknum. Innlent 9. júní 2022 11:26
Slagsmál við bensínstöð og öllum dyrabjöllum hringt ítrekað Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út eftir tilkynnt var um slagsmál við bensínstöð í umdæminu í gærkvöldi eða í nótt. Innlent 9. júní 2022 07:25
Einstaklingar hafi „farið í þannig ástand“ við handtöku að þeim var gefið róandi Upp hafa komið tilvik þar sem einstaklingar sem flytja á úr landi í fylgd hafa „farið í þannig ástand“ að nauðsynlegt hefur þótt að gefa viðkomandi róandi lyf. Þetta hefur verið gert til að koma í veg fyrir að viðkomandi skaði sjálfan sig eða aðra. Innlent 9. júní 2022 06:36
Fundarhöld með namibískum rannsakendum og saksóknara Héraðssaksóknari hefur átt tvo fundi með þeim sem fara fyrir rannsókn og saksókn í Samherjamálinu í Namibíu. Varaforsætisráðherra Namibíu er stödd hér á landi ásamt sendinefnd til að ræða við íslensk stjórnvöld og rannsakendur. Héraðssaksóknari segir að það sé góður gangur á rannsókninni. Innlent 8. júní 2022 12:16
Margir í hverfinu hafi vitað af ógnandi hegðun hins grunaða Morðrannsókn lögreglu í Barðavogi heldur áfram en ýmsir þættir eru nú til skoðunar. Maðurinn sem lést var á fimmtugsaldri og lætur eftir sig fjögur börn. Íbúar í hverfinu lýsa ógnvekjandi hegðun hins grunaða um árabil og segja marga hafa óttast hann. Innlent 7. júní 2022 23:12
„Áður en ég veit af er hann búinn að negla aftan á mig“ Á leið niður Laugaveginn á hjóli á laugardagskvöld lenti Margeir Steinar Ingólfsson í því að ökumaður ók aftan á hann með þeim afleiðingum að Margeir féll til jarðar og hjól hans kastaðist eftir götunni. Í kjölfarið ók ökumaðurinn yfir hjól Margeirs, brunaði niður göngugötu og flúði af vettvangi. Innlent 7. júní 2022 07:01
Sérfræðingar munu meta ástand hins grunaða Gera má ráð fyrir að morðrannsókn lögreglu í Barðavogi muni taka mánuði. Sérfræðingar munu meta hinn grunaða og réttarkrufning þarf að fara fram. Lögregla getur ekki tjáð sig um hvort játning liggur fyrir eða hvort morðvopn hafi fundist. Innlent 6. júní 2022 19:32
Telja eigin viðbrögð hafa verið rétt Lögregla telur sig hafa brugðist rétt við þegar hún var kölluð tvisvar að húsi í Barðavogi í Reykjavík, vegna mannsins sem skömmu síðar var handtekinn, grunaður um að myrða nágranna sinn. Rannsókn málsins miðar vel og búið er að ræða við vitni í málinu. Innlent 6. júní 2022 11:34