Fólkið sem stýrir kosningavélum flokkanna Í kosningabaráttu er flokkunum mikilvægt að hafa hæft fólk við stýrið. Enda er um að ræða fólkið sem á að eltast við hvert einasta mögulega atkvæði fyrir sinn flokk, og stýra sem mestu fylgi heim. Kosningastjórar flokkanna sem bjóða fram í Alþingiskosningunum 30. nóvember næstkomandi eru meðal annars fyrrverandi ráðherra, tryggir aðstoðarmenn og reynslumikið fjölmiðlafólk. Innlent 1. nóvember 2024 07:02
Réttlæti Hallgríms Helgasonar Hallgrímur Helgason rithöfundur barði eftirminnilega á bíl Geirs Haarde í janúarmánuði árið 2009 eins og þar væri einmitt ekki um að ræða manninn sem átti stærstan hlut í því að fall bankanna var ekki ríkisvætt og var ein farsælasta bjargvættarsaga fjármálahrunsins á heimsvísu. Skoðun 1. nóvember 2024 07:02
Þau skipa framboðslista Lýðræðisflokksins Lýðræðisflokkurinn hefur nú birt fullskipaða lista sína fyrir alþingiskosningarnar 30. nóvember. Flokkurinn býður fram í fyrsta sinn í öllum kjördæmum og er með listabókstafinn L. Flokkurinn er stofnaður af Arnari Þór Jónssyni lögmanni og fyrrverandi forsetaframbjóðanda. Innlent 1. nóvember 2024 06:43
Misrétti, vonleysi og baráttan við að halda í bjartsýnina Við stöndum frami fyrir tímamótum í íslenskum stjórnmálum. Sjálfstæðisflokkurinn virðist vera að yfirgefa ríkisstjórn eftir langa veru, Vinstri Græn horfa upp á það að þurrkast algerlega út næsta kjörtímabil og þjóðernis-popúlistaflokkur, Miðflokkurinn, er á uppleið í fyrsta skiptið síðan ég man eftir mér, sem eru þó ekki nema svona 22-23 ár. Skoðun 31. október 2024 23:33
Flokkshollusta á undanhaldi Ráðgjafi segir flakk þingmanna á milli flokka meðal annars skýrast af því að lítill sem enginn munur er á milli stefnumála sumra flokka og flokkshollusta að einhverju leyti á undanhaldi. Innlent 31. október 2024 21:02
Kristrún hefur beðið Dag afsökunar Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar hefur beðið Dag B. Eggertsson afsökunar á að hafa kallað hann aukaleikara sem ekki væri ráðherraefni flokksins að loknum kosningum. Innlent 31. október 2024 19:52
Sigurjón leiðir í Norðausturkjördæmi Sigurjón Þórðarson líffræðingur mun leiða lista Flokks fólksins í Norðausturkjördæmi í komandi alþingiskosningum. Hann starfar sem framkvæmdastjóri hjá heilbrigðiseftirlitinu og sat á Alþingi árin 2003-2007. Sigurjón hefur setið í sveitarstjórn og unnið fjölbreytt störf, þar á meðal á sjó. Innlent 31. október 2024 17:16
Guðmundur Ingi leiðir og skrifstofustjórinn í öðru Guðmundur Ingi Kristinsson, þingflokksformaður Flokks fólksins, mun leiða lista flokksins í Suðvesturkjördæmi í komandi alþingiskosningum. Jónína Björk Óskarsdóttir, skrifstofustjóri Flokks fólksins, skipar 2. sæti listans. Áður starfaði hún sem forstöðumaður félagsstarfs aldraðra í Hafnarfirði. Jónína situr í stjórn Byggðastofnunar. Innlent 31. október 2024 15:52
Hið augljósa útlendingavandamál Það er svo augljóst að það er útlendingavandamál á Íslandi. Ég segi það ekki af því að ég er haldinn einhverri útlendingaandúð, ég er það alls ekki. Skoðun 31. október 2024 15:17
Þúsundir íbúða á glámbekk! Samfylkingin segir að þúsundir íbúða standi auðar eða séu leigðar út til ferðamanna í gegnum Airbnb, jafnvel allan ársins hring. Boðar Samfylkingin tómthússkatt og aðgerðir gegn Airbnb m.a. með því að leyfa gististarfsemi í atvinnuskyni aðeins í samþykktu atvinnuhúsnæði, en ekki íbúðarhúsnæði óháð því hvenær rekstrarleyfi var gefið út. Skoðun 31. október 2024 15:02
Formaður Lýðræðisflokksins sagður misbeita samsæriskenningu Stjórnmálafræðiprófessor segir það ranga notkun á hugtökum að blanda mögulegri spillingu við veitingu embætta saman við samsæriskenningu um „djúpríki“ sem stýri landinu á bak við tjöldin. Formaður Lýðræðisflokksins sagði djúpríkið staðreynd á Íslandi. Innlent 31. október 2024 15:01
„Pabbi minn hefði örugglega orðið reiður“ Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar segist vera búin að biðja Dag B. Eggertsson afsökunar á einkaskilaboðum til íbúa í Grafarvogi sem komust í dreifingu. Dagur var kallaður aukaleikari í skilaboðunum og ekki ráðherraefni. Innlent 31. október 2024 14:50
Borgarfulltrúi skipar annað sætið í kjördæmi formannsins Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, mun leiða lista flokksins í Reykjavík suður í komandi alþingiskosningum. Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir sálfræðingur skipar 2. sæti listans, en hún hefur setið sem borgarfulltrúi flokksins frá árinu 2018 og var áður meðal annars formaður Barnaheilla. Innlent 31. október 2024 14:30
Framboðslisti Flokks fólksins í Suðurkjördæmi birtur Ásthildur Lóa Þórsdóttir alþingismaður og kennari, mun leiða lista Flokks fólksins í Suðurkjördæmi í komandi þingkosningum. Sigurður Helgi Pálmason safnvörður og þáttagerðarmaður skipar 2. sætið, Elín Fanndal félagsliði og varaþingmaður, skipar 3. sætið og Jónas Yngvi Ásgrímsson, stjórnarmaður hjá VR og miðstjórnarmaður ASÍ, það fjórða. Innlent 31. október 2024 13:07
Þau skipa framboðslista Pírata í kosningunum Píratar hafa sent frá sér samþykkta framboðslista fyrir þingkosningarnar sem fram fara 30. nóvember næstkomandi. Flokkurinn stóð fyrir prófkjöri fyrr í mánuðinum þar ljóst var hverjir myndi skipa efstu sætin á listum flokksins. Innlent 31. október 2024 12:39
Ábyrg framtíð býður bara fram í Reykjavík norður Flokkurinn Ábyrg framtíð hyggst bjóða fram lista í Reykjavíkurkjördæmi norður í komandi þingkosningum. Innlent 31. október 2024 10:34
Skiluðu meðmælalistum í Hörpu Frestur stjórnmálaflokkanna til að skila framboðslistum sínum til alþingiskosninganna 30. nóvember rennur út klukkan tólf á hádegi. Skila má listum rafrænt eða í Hörpu. Vísir verður í beinni útsendingu úr Hörpu þar sem kemur í ljós hvaða flokkar ná að skila listum. Innlent 31. október 2024 09:25
Lilja Rafney skipar annað sætið á lista Flokks fólksins Lilja Rafney Magnúsdóttir, fyrrverandi þingmaður Vinstri grænna, skipar annað sæti á lista Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi þingkosningar. Eyjólfur Ármannsson þingmaður leiðir listann. Innlent 31. október 2024 08:49
Það er kominn tími á uppfærslu á Íslandi Það sem einkennir kosningar á Íslandi er að ýmsir flokkar virðast skyndilega detta niður á mjög einfaldar lausnir á mjög flóknum vandamálum nokkrum vikum áður en þær fara fram. Þessum lausnum er svo oft pakkað í glansandi umbúðir af markaðssérfræðingum og reynt að selja þær í skiptum fyrir atkvæði. Skoðun 31. október 2024 08:01
Þau eru í framboði fyrir Sósíalistaflokkinn Sósíalistaflokkurinn birti í gærkvöldi framboðslista sína í öllum kjördæmum. Búið var að tilkynna um flesta oddvita áður. Sanna Magdalena Mörtudóttir er pólitískur leiðtogi flokksins á sviði Alþingis og oddviti í Reykjavíkurkjördæmi suður. Flokkurinn bauð fyrst fram til Alþingis á landsvísu í síðustu kosningum 2021 en náði ekki manni inn. Flokkurinn á tvo menn í borgarstjórn og hefur boðið þar fram tvisvar og náð manni inn. Innlent 31. október 2024 07:46
Af hverju Píratar? Þetta er spurning sem ég og eflaust margir Píratar eru spurðir reglulega, enda er þetta mjög góð spurning sem ég velti oft sjálfur fyrir mér. Málið er að enginn annar flokkur er, eins og staðan er núna, raunhæfur kostur. Alvöru breytingar. Skoðun 31. október 2024 07:31
Frestur til að skila framboðslistum rennur út í dag Frestur til að skila inn framboðslistum til Alþingiskosninga rennur út á slaginu tólf í dag. Í gær bárust þær fréttir frá Landskjörstjórn að búið væri að skila inn 26 listum víðsvegar að af landinu ásamt tilskildum fjölda meðmæla. Innlent 31. október 2024 06:56
Kallar veikleiki stjórnmálaflokkanna á þekkt andlit til liðsinnis? Eftir því sem líður að kosningunum verður sífellt ljósara að stjórnmálaflokkunum skortir skýra stefnu og markvissa staðfærslu í huga kjósenda - sem hafa þann tilgang að gera eiginleika flokkanna skiljanlegri. Skoðun 31. október 2024 06:17
Ruglaðist Kristrún á flokkum, þegar hún fór í stjórnmál? - Það hefði verið einfaldara fyrir hana, að ganga strax í Framsókn, en að breyta Samfylkingunni í Framsókn Kristrún Frostadóttir hefur í sinni valdatíð umturnað stefnumálum Samfylkingarinnar, sem þar með verður Nýja Samfylkingin, eða, eins nánast mætti segja, Framsókn Nr. 2, B2. Skoðun 31. október 2024 06:03
Faðir Dags gagnrýnir Kristrúnu: „Dagur veginn og metinn og léttvægur fundinn“ Eggert Gunnarsson, dýralæknir og faðir Dags B. Eggertssonar, hefur látið í ljós óánægju sína með orð Kristrúnar Frostadóttur, formanns Samfylkingarinnar, þess efnis að Dagur sé aukaleikari og ekki ráðherraefni flokksins. Innlent 30. október 2024 23:25
„Ég sé bara íhaldssemi hérna“ Stofnandi Lýðræðisflokksins hafnar því að vera bendlaður við öfgahyggju, og formaður Miðflokksins segir Sjálfstæðisflokkinn vera að færast til vinstri. Þá þykir formanni Viðreisnar fróðlegt að hlusta á málfutning flokkanna sem best megi lýsa sem „Litla- og Stóra-Miðflokki.“ Innlent 30. október 2024 22:00
Kosningar og knattspyrna Alþingispólitíkin dregur æ meira dám af knattspyrnu og kosningar eru stórmót þar sem keppt er í atkvæðasöfnun. Skoðun 30. október 2024 20:31
„Flokkarnir urðu skíthræddir“ Græningjar eru hættir við að bjóða fram í alþingiskosningum 30. nóvember næstkomandi. Formaður flokksins segir innkomu Græningja hafa hrætt hina flokkana og haft áhrif á lista þeirra. Flokkurinn muni bjóða fram í næstu alþingiskosningum. Innlent 30. október 2024 19:56
Flestir treysta Miðflokknum best fyrir málefnum hælisleitenda Samfylkingin nýtur mest trausts í flestum málaflokkum, nema í málefnum hælisleitenda þar sem flestir treysta Miðflokknum. Fleiri treysta Sjálftstæðisflokknum fyrir nokkrum málaflokkum en myndu kjósa hann. Innlent 30. október 2024 19:14
Útlendingur eða innflytjandi? Þegar ég heyri orðið útlendingur fæ ég alltaf vonda tilfinningu. Fyrir mér vísar orðið „út-lendingur“ til einhvers sem tilheyrir ekki eða er ekki hluti af samfélaginu, en ekki til einstaklings af erlendu bergi brotinn sem er fullgildur meðlimur samfélagsins. Skoðun 30. október 2024 18:47