

Körfubolti
Fréttir af leikmönnum og liðum í körfubolta, bæði á Íslandi og erlendis.

Tveir með fimmtíu stiga leik í nótt
Victor Wembanyama og Giannis Antetokounmpo skoruðu báðir fimmtíu stig eða meira í NBA-deildinni í körfubolta í nótt.

Gerði aðeins betur en mamma sín og jafnaði met landsliðsins
Thelma Dís Ágústsdóttir jafnaði tuttugu ára gamalt met Birnu Valgarðsdóttur í sigrinum á Rúmeníu í undankeppni Evrópumóts kvenna í körfubolta.

Tryggvi og Elvar báðir kátir eftir kvöldið
Íslensku landsliðsmennirnir Tryggvi Snær Hlinason og Elvar Már Friðriksson fögnuðu báðir sigrum í Evrópuleikjum liða sinna í kvöld.

Popovich fékk heilablóðfall
Gregg Popovich, þjálfari NBA liðsins San Antonio Spurs, fékk vægt heilablóðfall 2. nóvember síðastliðinn.

Keflavík semur við leikmann sem hefur skorað tvö stig í úrslitaeinvígi NBA
Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur samið við Bandaríkjamanninn Ty-Shon Alexander. Þetta kemur fram á Facebook-síðu félagsins.

Höttur ekki lengi að finna mann í stað McCauley
Höttur hefur samið við Bandaríkjamanninn Justin Roberts um að leika með liðinu út leiktíðina í Bónus deild karla í körfubolta. Hann fyllir skarð Courvoisier McCauley.

Leikmenn í Bónusdeildinni sem útvarpsmenn á FM957 og X977
Útvarpsmaðurinn Egill Ploder var gestur í Körfuboltakvöldi Extra á Stöð 2 Sport í gærkvöldi.

Martin missir af landsleikjunum, Bjarni kemur inn og Viðar í stað Pavels
Craig Pedersen hefur valið sextán leikmenn í íslenska landsliðið í körfubolta fyrir leikina tvo við Ítalíu í undankeppni EM, 22. og 25. nóvember. Liðið þarf að spjara sig án Martins Hermannssonar sem er meiddur.

„Viðurkennt að svona gerum við ekki“
Formaður Körfuknattleikssambands Íslands óttast ekki fjölgun mála á borð við það sem körfuknattleiksdeild Grindavíkur var dæmd fyrir, vegna hegðunar DeAndre Kane í hálfleik gegn Hetti í Bónus-deildinni, þrátt fyrir lága sekt.

Hattarmenn senda Kanann heim
Bandaríkjamaðurinn Courvoisier McCauley hefur leikið sinn síðasta leik fyrir lið Hattar í Bónus deildinni í körfubolta og er á heimleið. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Hetti núna í morgun.

Ísak hættur með ÍR
Fyrstu þjálfarabreytingarnar hafa orðið í Bónus deild karla í körfubolta því Ísak Máni Wium er hættur með ÍR.

Heilsan ástæða þess að Árni lætur af störfum
Árni Þór Hilmarsson hefur ákveðið að segja starfi sínu sem þjálfari Selfoss í 1. deildar karla í körfubolta lausu vegna heilsufarsástæðna. Hann greindi frá ákvörðuninni á Facebook-síðu sinni.

Betur fór en á horfðist hjá Martin sem virtist illa meiddur
Óttast var að Martin Hermannsson, leikstjórnandi Alba Berlínar í efstu deild þýska körfuboltans og íslenska landsliðsins, væri illa meiddur eftir að hann meiddist á hásin. Nú hefur félagið greint frá að meiðslin séu ekki jafn slæmt og fyrst var óttast.

„Hef meiri áhyggjur af þessu með Kára“
Sérfræðingar Bónus Körfuboltakvölds hafa áhyggjur af Val. Staða Íslandsmeistaranna, Kára Jónssonar og Bandaríkjamannsins Sherif Ali Kenny var til umræðu í þætti laugardagsins.

Kallaði Giannis barn eftir að hann neitaði að taka í höndina á honum
Jaylen Brown, leikmaður NBA-meistara Boston Celtics, var ekki sáttur við framkomu stórstjörnunnar Giannis Antetokounmpo í leiknum gegn Milwaukee Bucks í gær.

Teitur spilaði með manni sem dekkaði Jordan og drakk kippu af bjór fyrir æfingar
Í Bónus Körfuboltakvöldi valdi Teitur Örlygsson úrvalslið uppáhalds samherja sinna á ferlinum. Einn þeirra spilaði í úrslitum NBA-deildarinnar.

Körfuboltakvöld: Tilþrif 6. umferðar
Að venju var farið yfir tíu bestu tilþrif síðustu umferðar Bónus-deildar karla í körfubolta í Körfuboltakvöldi.

„Ég bað ekki um fjögur stig en fékk fjögur stig“
Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta vann fjögurra stiga sigur gegn Rúmeníu 77-73 í undankeppni EM. Þetta var fyrsti sigur liðsins í tvö ár og Benedikt Guðmundsson, þjálfari liðsins, var ánægður eftir leik.

Uppgjörið: Ísland - Rúmenía 77-73 | Fyrsti sigur íslenska liðsins í tvö ár
Ísland vann fjögurra stiga sigur gegn Rúmeníu 77-73 í undankeppni EM. Danielle Rodriguez var hetja liðsins þegar hún henti í ótrúlega fjögurra stiga sókn þegar staðan var jöfn og lítið eftir. Uppgjör og viðtöl væntanleg.

„Þetta var óþarflega spennandi“
Ísland vann fjögurra stiga sigur gegn Rúmeníu 77-73 í undankeppni EM. Thelma Dís Ágústsdóttir fór á kostum í íslenska liðinu og var ánægð með sigurinn.

Fullkominn og frábær leikur Tryggvi dugði ekki
Tryggvi Snær Hlinason og félagar í Bilbao Basket urðu að sætta sig við svekkjandi tap á útivelli í æsispennandi leik við Basquet Girona, 100-94, í spænsku ACB deildinni í körfubolta í dag.

Teitur og Sævar fóru fögrum orðum um Kane í Körfuboltakvöldi
DeAndre Kane skoraði átján stig á aðeins fimmtán mínútum í sigri Grindavíkur á Þór í lokaleik sjöttu umferðar Bónus deildar karla en kvöldið hans endaði mjög snögglega í fyrri hálfleiknum. Bónus körfuboltakvöld hrósaði kappanum mikið og fór líka yfir höfuðmeiðsli hans í leiknum.

Sonur Scottie Pippen kom sér og föður sínum í sögubækurnar
Scottie Pippen hefur kvartað lengi yfir því að vera alltaf í skugganum á Michael Jordan en nú getur hann þakkað syni sínum fyrir að gera sig einstakan í sögu NBA deildarinnar í körfubolta.

Martin með tvöfalda tvennu í sigri á toppliðinu
Martin Hermansson átti virkilega fínan leik þegar Alba Berlín lagði Ulm í efstu deild þýska körfuboltans.

„Þegar svona gír er á okkur þá erum við fjandi góðir“
Grindavík tók á móti Þór Þorlákshöfn í Smáranum þegar lokaleikur sjöttu umferðar Bónus deild karla fór fram. Grindavík gat með sigri lyft sér upp að hlið Þórs Þ. í töflunni sem þeir gerðu með góðum 29 stiga sigri í dag, 99-70.

Uppgjörið: Grindavík - Þór Þ. 99-70 | Grindvíkingar svöruðu kallinu
Grindavík tók á móti Þór Þorlákshöfn í lokaleik 6. umferðar Bónus deild karla í dag. Fyrir akkurat ári síðan mættust þessi lið í síðasta leik sem fram fór í Grindavík. Í þeim leik hafði Grindavík betur og það varð enginn breyting í ár því Grindavík hafði betur 99-70.

Grindavík fær 35 þúsund króna sekt vegna háttsemi Kane
Aga- og úrskurðarnefnd Körfuknattleiksambands Íslands hefur tekið fyrir mál Grindvíkingsins DeAndre Kane og leikmaðurinn sleppur við leikbann.

Sendu Bronny James niður í G-deild og allir miðarnir seldust upp
Bronny James, sonur LeBron James, er á leiðinni í þróunardeild NBA, svokallaða G-deild, eftir að hafa byrjað tímabilið með föður sínum í Los Angeles Lakers.

Fyrstir í NBA í níu ár til að vinna tíu fyrstu leiki sína
Það virðist enginn geta stoppað lið Cleveland Cavaliers í byrjun NBA tímabilsins í körfubolta.

Jónína með þrennu og Ármannsstelpur ósigraðar á toppnum
Ármann hélt áfram sigurgöngu sinni í 1. deild kvenna í körfubolta í gærkvöldi og hefur nú unnið fimm fyrstu leiki sína.