
Körfuboltakvöld: Umræða um Njarðvík og Richotti
Kjartan Atli Kjartanson og félagar í Subway Körfuboltakvöldi fóru yfir frammistöðu Nicolas Richotti, leikmanns Njarðvíkur, í leiknum gegn Þór Þorlákshöfn á föstudagskvöld.
Fréttir af leikmönnum og liðum í körfubolta, bæði á Íslandi og erlendis.
Kjartan Atli Kjartanson og félagar í Subway Körfuboltakvöldi fóru yfir frammistöðu Nicolas Richotti, leikmanns Njarðvíkur, í leiknum gegn Þór Þorlákshöfn á föstudagskvöld.
Memphis Grizzlies hefur heldur betur komið á óvart í vetur og unnu enn einn leikinn í nótt þegar þeir mættu meiðslahrjáðu liði Los Angeles Clippers, 108-123.
Það eru liðnir 942 dagar síðan Klay Thompson spilaði síðast körfuboltaleik. Níuhundruð fjörutíu og tveir dagar. Allt bendir til þess að nú sé stóri dagurinn runninn upp.
Körfuboltamaðurinn Kevin Durant segist ekki ætla að neyða Kyrie Irving, liðsfélaga sinn hjá Brooklyn Nets í NBA-deildinni í körfubolta, til að láta bólusetja sig.
NBA-deildin í körfubolta bauð upp á níu leiki í nótt. LeBron James var atkvæðamestur Los Angeles Lakers-manna er liðið vann 134-118 sigur á Atlanta Hawks og hefur nú unnið fjóra leiki í röð.
Haukur Helgi Pálsson var ánægður með sigurinn á Íslandsmeisturunum í kvöld þrátt fyrir að hann væri með verki í ökklanum.
Íslandsmeistarar Þórs lutu í lægra haldi gegn bikarmeisturum Njarðvíkur er liðin mættust í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld. Lokatölur urðu 92-109, en liðin eru nú jöfn í öðru sæti deildarinnar.
Franski miðherjinn Rudy Gobert hjá Utah Jazz er aftur smitaður af kórónuveirunni. Þegar það gerðist fyrst hafði það gríðarlegar afleiðingar fyrir NBA-deildina.
Þórsarar frá Akureyri unnu sinn fyrsta sigur í Subway-deild karla í körfubolta í gær og fögnuðu honum vel og innilega.
Leik Breiðabliks og KR í Subway-deild karla í körfubolta hefur verið frestað vegna sóttkvíar og einangrunar leikmanna. Þá hefur fjórum öðrum leikjum verið frestað af sömu ástæðu.
Körfuboltamaðurinn Martin Hermannsson missti af fyrsta leik spænska liðsins Valencia á nýju ári eftir að hafa ásamt konu sinni og syni smitast af kórónuveirunni. Martin fann varla fyrir veikindum og stefnir á að spila á sunnudag.
RJ Barrett var í litlu jafnvægi, undir mikilli pressu, þegar honum tókst að skora magnaða sigurkörfu New York Knicks gegn Boston Celtics í NBA-deildinni í nótt.
Topplið Keflavíkur vann góðan níu stiga sigur er liðið tók á móti Vestra í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld. Lokatölur urðu 80-71.
Þór Akureyri vann sinn fyrsta sigur í Subway-deild karla í körfubolta þegar þeir fengu Grindavík í heimsókn í Höllina á Akureyri í kvöld. Þórsarar fyrir leikinn í neðsta sæti án stiga en Grindvíkingar í þriðja sæti með 14 stig, fjórum stigum frá toppliði Keflavíkur.
Bjarki Ármann Oddsson, þjálfari Þórs Akureyri, var virkilega ánægður með fyrsta sigur síns liðs í Subway deildinni á þessu tímabili en liðið hafði tapað öllum 10 leikjum sínum hingað til.
Calvin Burks, leikmaður Keflavíkur, var ánægður með níu stiga sigur á Vestra í kvöld en hugur hans var þó aðallega á þá hluti sem liðið getur bætt sig í.
Kyrie Irving, sem enn er óbólusettur gegn Covid-19, fékk að spila sinn fyrsta leik á tímabilinu í NBA-deildinni í körfubolta í gærkvöld og fagnaði sigri.
Það hefur ekki mikið gengið upp hjá Los Angeles Lakers það sem af er leiktíð í NBA-deildinni en Malik Monk hefur hins vegar komið skemmtilega á óvart þar sem ekki var búist við miklu af leikmanni sem Charlotte Hornets leyfði að fara á frjálsri sölu í sumar.
Nýliðar Grindavíkur tóku á móti Íslandsmeisturum Vals í HS Orku höllinni í Grindavík í kvöld þar sem gestirnir fóru að lokum með nokkuð sanngjarnan sigur af hólmi, 58-73.
Hinn óbólusetti Kyrie Irving mun spila sinn fyrsta leik á tímabilinu í NBA-deildinni í körfubolta þegar Brooklyn Nets sækir Indiana Pacers heim í nótt.
Þetta er sérstakt kvöld í sögu NBA-liðsins Dallas Mavericks og fyrir besta leikmanninn í sögu félagsins. Treyja Þjóðverjans Dirk Nowitzki fer þá upp í rjáfur.
Jón Arnór Stefánsson, sem var besti körfuknattsleiksmaður Íslands um langt árabil, hefur haslað sér völl á nýjum starfsvettvangi og verið ráðinn til verðbréfafyrirtækisins Fossa markaða.
Meiðslaófarir karlaliðs Þórs Ak. í körfubolta virðast engan enda ætla að taka. Svisslendingurinn Jérémy Landenbergue er farinn frá liðinu eftir að hafa slitið krossband í hné í leik gegn KR 16. desember.
Körfuboltakona ársins Sara Rún Hinriksdóttir byrjaði nýja árið vel en hún átti mjög flottan leik í dag þegar Phoenix Constanta tryggði sér sæti í undanúrslitum rúmenska bikarsins.
Stjórn KKÍ hefur ákveðið að fresta undanúrslitum og úrslitaleikjum VÍS-bikarsins í körfubolta um rúma tvo mánuði vegna kórónuveirusmitbylgjunnar sem gengur yfir landið.
LeBron James gerði gæfumuninn þegar Los Angeles Lakers sneru stöðunni sér í vil á lokakaflanum og unnu Sacramento Kings, 122-114, í NBA-deildinni í körfubolta í nótt.
Körfuknattleiksdeild Álftaness tilkynnti í dag að liðið hefði samið við Slóvenann Sinisa Bilic, fyrrum leikmann Tindastóls, Vals og Breiðabliks.
Leikur Fjölnis og Breiðabliks í Subway-deild kvenna sem fram átti að fara í Grafarvogi annað kvöld hefur verið frestað.
Fjögurra leikja sigurganga Njarðvíkinga í Subway-deildinni endaði með skelli í Garðabænum í gærkvöldi.
Þó að Atlanta Hawks hafi orðið að sætta sig við tap, 136-131, gegn Portland Trail Blazers má segja að Trae Young hafi stolið senunni í NBA-deildinni í körfubolta í nótt með stórkostlegum sóknarleik.