
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Haukar - Njarðvík 89-97 | Gestirnir búnir að jafna toppliðið að stigum
Njarðvík vann góðan 89-97 sigur á Haukum í Subway-deild karla í kvöld. Sigurinn lyftir Njarðvíkingum upp að hlið Vals á toppi deildarinnar.
Fréttir af leikmönnum og liðum í körfubolta, bæði á Íslandi og erlendis.
Njarðvík vann góðan 89-97 sigur á Haukum í Subway-deild karla í kvöld. Sigurinn lyftir Njarðvíkingum upp að hlið Vals á toppi deildarinnar.
„Ég er glaður, það er gaman að vinna. Mér fannst liðið spila vel í dag sem er ánægjulegt. Við vorum mjög agaðir varnarlega,“ sagði Helgi Már Magnússon, þjálfari KR, aðspurður hver lykillinn að sigrinum gegn Keflavík hefði verið. Með sigrinum heldur KR sér á lífi í Subway-deild karla í körfubolta. Það þarf hins vegar allt að ganga upp til að það gerist.
„Hvað við vorum ógeðslega lélegir, hvað við erum búnir að vera ógeðslega lélegir í þrjá leiki í röð,“ sagði Hjalti Þór Vilhjálmsson aðspurður hvaða hugsanir færu í gegnum höfuðið á sér strax eftir leik. Hjalti er þjálfari Keflavíkur sem tapaði í kvöld sínum þriðja leik í röð.
Mál Jas Morant, stjörnu Memphis Grizzlies, verður meðal annars til umfjöllunar í Lögmáli leiksins í kvöld. Þátturinn er á dagskrá Stöðvar 2 Sports 2 klukkan 20:00.
Stúlknalið frá Hoover í Alabama í Bandaríkjunum þurfti að horfa upp á stráka taka við meistarabikar þrátt fyrir að hafa unnið þá í úrslitaleik.
Óvíst er hvenær Ja Morant snýr aftur í lið Memphis Grizzlies eftir að myndband af honum veifa byssu inni á skemmtistað birtist á Instagram-síðu hans.
Tap Stjörnumanna í Grindavík í gærkvöldi þýðir að KR-ingar eru enn ekki fallnir úr Subway deild karla í körfubolta.
Mikil gleði var í Reykjanesbæ um helgina er Nettó-mótið í körfubolta fór fram. Yfir eitt þúsund keppendur tóku þátt á mótinu.
Þór Þorlákshöfn vann fjögurra stiga sigur á ÍR 91-87. Þórsarar voru leiðandi en ÍR sem er að berjast fyrir lífi sínu í deildinni gaf ekkert eftir. Fjórði leikhluti var stál í stál en Þór hafði betur að lokum og vann sinn fimmta sigur í röð.
Grindavík lyfti sér upp í sjöunda sæti Subway-deildar karla í körfubolta er liðið vann mikilvægan ellefu stiga sigur gegn Stjörnunni í kvöld, 99-88.
Þór Þorlákshöfn vann fjögurra stiga sigur á ÍR 91-87. Lárus Jónsson, þjálfari Þórs Þorlákshafnar, var ánægður með sigurinn en hefði viljað sjá betri frammistöðu.
Topplið Vals vann góðan níu stiga sigur er liðið sótti Hött heim í 18. umferð Subway-deildar karla í körfubolta í kvöld. Lokatölur 81-90, og sigurinn þýðir að Valsmenn halda toppsæti deildarinnar fram að næstu umferð í það minnsta.
Það mátti sjá á Jóhanni Þór Ólafssyni, þjálfara Grindavíkur, að það var þungu fargi af honum létt eftir sigur hans manna á Stjörnunni í kvöld. Grindvíkingar unnu að lokum nokkuð öruggan sigur, lokatölur 99-88, sem þýðir að heimamenn færast aðeins fjær hinni þéttu fallbaráttu í Subway-deild karla. Jóhann viðurkenndi fúslega að sigurinn hefði verið sætur.
Tindastóll vann mikilvægan sex stiga sigur er liðið tók á móti Breiðablik í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld, 94-100. Liðin sitja í 5. og 6. sæti Subway-deildarinnar og með sigrinum náðu Stólarnir fjögurra stiga forskoti á Blika.
Sex leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í kvöld. Ber þar helst að nefna sigur Philadelphia 76ers á Milwaukee Buck, toppliði Austurdeildar. Þá vann Minnesota Timberwolves góðan sigur á Sacramento Kings.
NBA-stjarnan Ja Morant, leikmaður Mamphis Grizzlies, hefur verið sendur í að minnsta kosti tveggja leikja bann eftir að myndband af honum þar sem hann virtist veifa byssu inni á næturklúbbi birtis á Instagram-síðu hans.
Tryggvi Snær Hlinason og félagar hans í Zaragoza gerðu sér lítið fyrir og unnu afar óvæntan tveggja stiga sigur er liðið tók á móti Barcelona í spænsku ACB-deildinni í körfubolta í kvöld, 85-83.
Fjöldi leikja fór fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. New York Knicks vann áttunda leikinn í röð þökk sé Julius Randle, Sacramento Kings sá til þess að Russell Westbrook hefur ekki unnið leik sem leikmaður Los Angeles Clippers og Nikola Jokić náði enn á ný þrefaldri tvennu í sigri Denver Nuggets.
Luka Doncic og Kyrie Irving sýndu í nótt að þeir geta farið báðir á kostum í sama leik en margir höfðu áhyggjur af því hvort þeir gætu náð sínu besta fram hlið við hlið í NBA-deildinni í körfubolta.
Kevin Durant viðurkennir að hafa verið stressaður fyrir frumraun sína með Phoenix Suns í NBA-deildinni í körfubolta.
Lovísa Björt Henningsdóttir átti virkilega góðan leik þegar Haukar unnu Val í toppbaráttuslag Subway-deildar kvenna í körfubolta. Haukar unnu fjórtán stiga sigur, lokatölur 63-77.
Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari Njarðvíkur, var gífurlega ánægður eftir hetjulega baráttu sinna leikmanna í erfiðum útisigri gegn Grindavík í Subway-deild kvenna í kvöld. Njarðvík vann leikinn með 15 stigum, 72-87.
Keflavík skaust í það minnsta tímabundið aftur á topp Subway-deildar kvenna í körfubolta er liðið vann öruggan 20 stiga sigur gegn Breiðablik í kvöld, 80-60. Á sama tíma hafði Fjölnir betur gegn botnliði ÍR, 83-69.
Njarðvík vann gífurlega mikilvægan 15 stiga sigur á Grindavík í Subway-deild kvenna í kvöld, 72-87, í leik sem var æsispennandi allt fram að síðasta fjórðung. Með sigrinum er Njarðvík áfram í fjórða sæti en með sex stiga forskot á Grindavík þegar fimm umferðir eru eftir.
Russell Westbrook tapaði mörgum leikjum með Los Angeles Lakers á leiktíðinni og það hefur ekkert breyst eftir að hann færði sig yfir í hitt NBA-liðið í borginni.
Vanessa Bryant, ekkja körfuboltamannsins Kobe Bryant, hefur komist að samkomulagi við Los Angeles sýslu um bætur vegna mynda sem fóru í dreifingu, af líkamsleifum Kobe, dóttur þeirra og sjö öðrum eftir þyrluslysið fyrir þremur árum.
Haukar unnu gríðarlega mikilvægan 14 stiga sigur er liðið heimsótti Val í Subway-deild kvenna í körfubolta í kvöld. Með sigrinum komu Haukar í veg fyrir að Valskonur myndu endurheimta toppsætið og Haukar eru nú aðeins fjórum stigum á eftir toppliði Keflavíkur.
Nikola Jokic hefur auðvitað vakið mikla athygli fyrir frábæra frammistöðu inn á körfuboltavellinum í NBA-deildinni en hann sker sig líka út fyrir hugarfarið.
LeBron James meiddist í sigurleiknum á móti Dallas Mavericks í NBA-deildinni í körfubolta um helgina og þessi meiðsli virðast vera slæm.
Hinn stórskemmtilegi liður „Nei eða Já“ var á sínum stað í nýjasta þætti af Lögmál leiksins. Þar var að venju farið yfir það helsta sem er að frétta í NBA-deildinni. Farið var yfir hvort Dallas væri verra eftir að Kyrie Irving gekk í raðir liðsins, hvort Orlando kæmist í umspilið, hversu líklegir Denver Nuggets væru og hvort Russell Westbrook hjálpi Los Angeles Clippers.