
Íslendingar sólgnir í skyndibita á aðventunni
Töluvert er um að Íslendingar nýti sér næli sér í skyndibita í aðdraganda jólanna.
Allt um undirbúninginn, aðventuna, uppskriftir, jólalög og margt fleira.
Töluvert er um að Íslendingar nýti sér næli sér í skyndibita í aðdraganda jólanna.
Það er hefð á mörgum heimilum að skreyta ekki jólatréð fyrr en á Þorláksmessu, á afmælisdaginn hans Hurðaskellis. Systkinunum þykir því tilvalið að nýta daginn í dag til að búa til fallegar jólakúlur sem hægt er að hengja á jólatréð.
Ketkrókur er tólfti jólasveinninn sem kemur til byggða. Hann stakk löngum stjaka með króki á niður um strompana til að krækja í kjötlærin sem héngu í eldhúsloftinu.
Sara Dögg Guðnadóttir hefur haft í nógu að snúast fyrir jólin.
Kári Garðarsson, garðyrkjustjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæmis, segir að nóg umferð og álag sé við kirkjugarðana um hátíðarnar þó svo að ferðamenn bætist ekki við líka.
Glænýr bóksölulisti liggur nú fyrir en um er að ræða síðasta listann fyrir jól sem tekur til bóksölu vikuna 13. til 19. desember.
Við Melabraut á Seltjarnarnesi stendur upplýst jólahús. Þar býr Magnús Sigurðsson rafvirkjameistari og fjölskylda hans. Á hverju ári prýðir hann húsið og garðinn með þúsundum ljósapera.
Þegar flestir Íslendingar verða uppteknir í jólaboðum með fjölskyldum og vinum um hátíðarnar þá munu tug þúsundir ferðamanna vera á ferð og flugi um landið.
Risastóri jólaþáttur Loga Bergmanns var á dagskrá Stöðvar 2 á föstudagskvöldið síðastliðið.
Heilsugúrúinn og fagurkerinn Hildur Sif Hauksdóttir er komin með jóladressið. Eftir dágóða leit fann hún hinn fullkomna jólakjól sem mun vera afar þægilegur og smart.
Helga Karólína Karlsdóttir, eigandi verslunarinnar Coolcos, er á því að glamúrinn eigi að vera í fyrirrúmi þegar kemur að jólaförðuninni. Rauður varalitur og gerviaugnhár setja punktinn yfir i-ið.
Á jólatónleikum Hymnodiu í Akureyrarkirkju í kvöld verður sköpuð kyrrlát stemning, þar sem slökkt verður á raflýsingu, ekkert talað og engar þagnir hafðar milli laga. Óvenjulegt það.
Gáttaþefur kom til byggða í nótt og af því tilefni ákveða þau Hurðaskellir og Skjóða að föndra einmitt hann.
„Undanfarin tvö ár höfum við séð mikla aukningu í kaupum á sönnum gjöfum. Í fyrra voru keyptar gjafir fyrir rúmar þrettán milljónir og við erum alveg viss um að við höfum selt fyrir meira í ár,“ segir Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri Unicef á Íslandi.
Samherji tilkynnti í gærkvöldi að 60 mánaða rannsókn Seðlabankans á dótturfélagi fyrirtækisins hefði verið hætt. Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, viðurkennir að málið hafi tekið á. Hann er ósáttur við framgöngu ba
Íslensk börn taka þátt í sannkölluðu heimsæði fyrir þessi jólin en leikfangið Hatchimals er uppselt á heimsvísu. Foreldrar biðu í röð fyrir utan Toys'R'us til að kaupa leikfangið sem gengur kaupum og sölum á netinu fyrir háar fjárhæðir.
Hurðaskellir fær mikilvægt símtal og þarf nauðsynlega að hlaupa í annað verkefni. Sem betur fer er hún Skjóða tilbúin með skemmtilegt föndur sem hún kennir okkur á meðan hann er í burtu.
Nú fer hver að verða síðastur að taka þátt í jólaljósmyndakeppni Vísis og Fréttblaðsins. Vegleg myndavél í verðlaun.
Gluggagægir er sjötti jólasveinninn sem kemur til byggða. Hann gægðist inn um hvern glugga til að reyna að koma auga á eitthvað sem hann gæti hnuplað.
Það er fátt jólalegra en að hlusta á góðan spilunarlista af jólalögum og komast í gott hátíðarskap í leiðinni.
Í dag ætla þau Hurðaskellir og Skjóða að kenna ykkur að gera snjókarla og jólasveinagrímur og þá getið þið leikið snjókarla og jólasveina.
Dr. Gunni sem er bæði tónlistarmaður og poppsérfræðingur segist ekki vera mikið jólabarn. „Ég læt það nú alveg vera, en konan mín er mikið jólabarn og ég smitast af því. Mér finnst reyndar þessi tími alveg frábær, nema kannski músíkin sem fylgir þessu.“
Bjúgnakrækir er níundi jólasveinninn sem kemur til byggða. Hann var fimur við að klifra uppi í rjáfri og stal þar reyktum hrossabjúgum.
Hildur Rut Ingimarsdóttir, höfundur matreiðslubókarinnar Avocado, hefur brennandi áhuga á hollri og einfaldri matargerð.
Hverju haldið þið að Hurðaskellir og Skjóða hafi fundið upp á núna? Þau ætla að föndra jólastjörnu úr þvottaklemmum. Bara svona venjulegum þvottaklemmum sem maður notar til að hengja upp þvottinn á miðvikudagsmorgnum.
Tara Brekkan Pétursdóttir förðunarfræðingur hefur haldið úti bloggsíðu og verið með námskeið í heimahúsum þar sem hún aðstoðar konur með förðun. Einnig er Tara með netsíðuna torutrix.is. Tara veit vel hvað ungar sem eldri konur vilja í jólapakkann.
Á heimili Mögnu Sveinsdóttur rís fallegt jólaþorp fyrir hver jól. Hún segir það allt hafa byrjað með litlu kirkjuþorpi sem hún keypti fyrir ein jólin í Húsasmiðjunni. Jólaþorpið er þó ekki látið duga heldur setur hún líka upp heilt jólasveinaland.
Skyrgámur er áttundi jólasveinninn sem kemur til byggða. Hann var ægilegur rumur sem þefaði upp skyrtunnur og át þar til hann stóð á blístri.
Það þarf ekki að vera dýrt eða flókið en á jólum er gaman að leggja sérstaka alúð við borðhaldið. Þrír fagurkerar gefa góð ráð við nostrið, forrétt, eftirrétt og skreytinguna á hátíðarborðið.