Í þessum fyrsta þætti sýnir Linda okkur notalegan jólabröns með girnilegum mjúkum kanilsnúðum með valhnetukaramellu, ljúffengum pönnukökum, jólajógúrt og klassísku heitu súkkulaði.
Mjúkir kanilsnúðar með valhnetukaramellu
Kanilsnúðar
- 7 g þurrger
- 120 ml volgt vatn
- 120 ml volg mjólk
- ½ dl sykur
- 80 g brætt smjör
- 1 tsk salt
- 1 egg
- 450 g hveiti
Kanilfylling
- 120 g mjúkt smjör
- 2 dl sykur
- 2 msk kanill
Setjið volgt vatn og volga mjólk ásamt gerinu og sykri í hrærivél og hrærið smá til að þurrgerið blotni.
Bætið eggi, smjöri og salti saman við.
Bætið svo nánast öllu hveitinu út í, skiljið um það bil 50 g eftir og hellið gerblöndunni líka ofan í stóru skálina.
Hnoðið deigið saman þangað til allt hefur blandast vel. Deigið á að vera klístrað en ef það er ennþá mjög blautt setjið þá restina af hveitinu út í.
Látið deigið hefast í 1 – 1 ½ klst eða þangað til deigið hefur tvöfaldast í stærð.
Útbúið valhnetukaramelluna á meðan degið hefast.
Valhnetukaramella
- 150 g valhnetur
- 100 g púðursykur
- 50 g hvítur sykur
- 150 g hlynsíróp
- 50 g smjör
- 50 ml mjólk
- ⅓ tsk salt
Setjið hlynsíróp og smjör saman í pönnu þar til bráðnað, bætið þá öllum öðrum innihaldsefnum á pönnuna og hitið þar til sykurkornin eru bráðnuð.
Bætið þá valhnetum út á pönnuna og hrærið þar til karamellan þekur hneturnar.
Setjið valhnetukaramelluna í stórt eldfast mót
Þegar deigið hefur hefað sig dreifið þið svolítið af hveiti á borðið, takið deigið úr skálinni og fletjið það út í um það bil 20×40 cm flöt.
Blandið saman mjúku smjöri, sykri og kanil í skál, hrærið þar til blandað saman. Smyrjið fyllingunni yfir allt deigið.
Rúllið svo upp deiginu frá 40 cm endanum í lengju og skerið hana svo í 12 – 15 bita.
Raðið snúðunum ofan á karamelluna, það má vera frekar rúmt á milli snúðanna því þeir eiga eftir að stækka.
Leggið hreint viskastykki yfir formið og látið snúðana hefast aftur í 30-60 mínútur
Stillið ofninn á 175°C og undir- og yfirhita.
Setjið snúðana í ofninn og látið bakast í 35-45 mín (tími fer eftir hversu þykkir snúðarnir eru) eða þangað til þeir eru orðnir fallega gullnir á litinn.
Heitt súkkulaði
- 500 ml nýmjólk frá Örnu mjólkurvörum
- 150 g Síríus suðusúkkulaði
- 2 msk sykur
- Rjómi frá Örnu mjólkurvörum
Setjið mjólkina í pott ásamt sykrinum og súkkulaðinu, hitið að suðu en látið ekki sjóða.
Slökkvið á hitanum undir súkkulaðinu og hrærið saman þar til allt hefur samlagast.
Hellið í bolla eða glös, þeytið rjómann og bætið út á heita súkkulaðið.