
Brynjar Björn: Eins og menn vildu vera einhvers staðar annars staðar en á vellinum
"Frammistaðan var slök, mjög léleg. Mér fannst leikurinn í heildina lélegur. Víkingur skapaði varla færi en skora tvö mörk eftir horn," sagði Brynjar Björn Gunnarsson þjálfari HK eftir tapið gegn Víkingi í Pepsi Max-deildinni í dag.