Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Bandaríkin eru nú að leita til annarra ríkja og biðja um að þau taki þátt í alþjóðlegu samstarfi um að opna Hormússund aftur. Erlent 30.4.2026 13:17
Írönum vísað úr landi fyrir ársþing FIFA Yfirmönnum íranska knattspyrnusambandsins var vísað burt af landamæraeftirliti Kanada. Íran mun því ekki eiga fulltrúa á ársþingi FIFA sem fer þar fram um helgina. Fótbolti 30.4.2026 08:24
Áttu langt símtal Vladimír Pútín Rússlandsforseti og Donald Trump Bandaríkjaforseti ræddu við hvor annan í síma í einn og hálfan tíma. Erlent 29.4.2026 18:32
Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í kvöld að vopnahlé milli Líbanon og Ísraels yrði framlengt um þrjár vikur. Hann segir Bandaríkjamenn auk þess hafa „algjöra stjórn“ á Hormússundi. Erlent 23. apríl 2026 22:38
Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur fyrirskipað flotanum við Hormússund að skjóta á og sökkva hverjum báti sem leggur þar tundurdufl. Erlent 23. apríl 2026 13:46
Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Hermenn úr byltingarverði Íran tóku í dag yfir stjórn á tveimur skipum á Hormússundi og fylgdu þeim til hafnar í Íran. Þá varð þriðja skipið fyrir árás en Írönum tókst ekki að taka stjórn á því. Bandaríkjamenn meina enn öllum skipum að sigla til og frá Íran og Hormússundi er enn lokað. Erlent 22. apríl 2026 20:19
Framlengir vopnahléið og herkvína Donald Trump segist ekki ætla að skipa hernum að hefja á nýjan leik árásir á Íran þegar vopnahlé milli Bandaríkjamanna og Ísraela annars vegar og Írana hins vegar rennur sitt skeið á morgun. Hann segir að herkvínni gagnvart Íran verði þó haldið áfram. Erlent 21. apríl 2026 20:32
Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ráðamenn í Íran hafa ekki enn ákveðið hvort þeir muni senda fulltrúa til viðræðna við Bandaríkjamenn í Pakistan. Tveggja vikna vopnahlé í átökum Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran fellur úr gildi á morgun og Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur sagst tilbúinn til að hefja árásir á Íran að nýju. Erlent 21. apríl 2026 18:06
Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Ráðamenn í Íran virðast ekki enn hafa tekið ákvörðun um það hvort þeir senda fulltrúa til viðræðna við Bandaríkjamenn í Pakistan. Undirbúningur viðræðna er sagður standa yfir í Islamabad en JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, sem mun sækja viðræðurnar fyrir hönd stjórnvalda þar í landi, ku ekki vera lagður af stað. Erlent 21. apríl 2026 07:21
Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Ríkismiðlar í Íran greindu frá því í gærkvöldi að stjórnvöld í Tehran hefðu engar áætlanir uppi um að taka þátt í viðræðum við fulltrúa Bandaríkjanna í Pakistan. Nokkrum klukkustundum áður hafði Donald Trump lýst því yfir að sendinefnd landsins myndi ferðast til Islamabad í dag. Erlent 20. apríl 2026 06:47
Barist á hafi úti Íranir gerðu í kvöld drónaárás á bandarísk herskip, samkvæmt írönskum ríkismiðlum. Erlent 19. apríl 2026 22:40
„Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Bandaríkjaforseti sakar Írani um brot á vopnahléssamkomulaginu eftir að Íranir skutu flutningaskip skömmu eftir að Hormússundi var lokað í gær. Fulltrúar Bandaríkjanna eru á leið til Pakistan til að halda áfram friðarsamkomulagi en vopnahléið rennur út eftir örfáa daga. Erlent 19. apríl 2026 14:29
Klukkan tifar og enn langt í land Ekki hefur verið boðað opinberlega til fundar í friðarviðræðum Bandaríkjanna og Íran nú þegar um þrír dagar eru eftir af tveggja vikna vopnahléi ríkjanna. Forseti íranska þingsins segir viðræður um að binda enda á stríðið hafa „miðað áfram“ en ríkin séu „langt frá lokaviðræðum.“ Erlent 19. apríl 2026 10:44
Knattspyrnukonurnar sem urðu eftir Knattspyrnukonurnar í íranska kvennalandsliðinu í fótbolta sem urðu eftir í Ástralíu eftir Asíubikar kvenna eru að hefja nýtt líf fjarri sviðsljósinu. Þær dreymir samt um að snúa aftur í fremstu röð í fótboltanum. Fótbolti 18. apríl 2026 23:17
Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Bandaríkjaforseti varar stjórnvöld í Íran við því að reyna að „kúga“ Bandaríkin með því að hætta við opnun Hormússunds. Yfirvöld í Teheran tilkynntu í gær að sundið yrði opið fyrir skipaumferð á meðan tímabundið vopnahlé Íran og Bandaríkjanna væri í gildi. Erlent 18. apríl 2026 16:58
Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Tveir bátar Íranska byltingarvarðarins hafa skotið á olíuflutningaskip á Hormússundi, að sögn Sjóviðskiptastofnunar Bretlands (UKMTO). Átti atvikið sér stað tuttugu sjómílur norðaustur af Óman. Olíuflutningaskipið og áhöfnin eru sögð heil á húfi. Erlent 18. apríl 2026 11:26
Hormússundi lokað á ný Íranir hafa lokað Hormússundi á ný eftir að Bandaríkjaforseti neitaði að aflétta herkví á landið. Í kjölfar þess að opnað var fyrir umferð um Hormússund í gær ræddi Bandaríkjaforseti við fjölda blaðamanna og staðhæfði að Íranir hefðu samþykkt að gefa upp úranauðgunina sína. Orðin fóru illa í íranska ráðamenn sem saka forsetann um lygar. Erlent 18. apríl 2026 08:46
Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Olíuverð féll í dag eftir að stjórnvöld í Íran fullyrtu að Hormússundi yrði haldið opnu á meðan vopnahlé er í gildi. Sundið hefur formlega verið opnað fyrir umferð að sögn Bandaríkjaforseta og utanríkisráðherra Írans. Frakkland og Bretland hyggjast leiða alþjóðlega aðgerð sem miðar að því að halda sundinu opnu. Erlent 17. apríl 2026 21:42
Hormússundið opið á ný Hormússundið hefur formlega verið opnað fyrir umferð samkvæmt utanríkisráðherra Írana og Bandaríkjaforseta. Erlent 17. apríl 2026 14:04
Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Donald Trump Bandaríkjaforseti segist bjartsýnn á að samningar náist milli stjórnvalda í Líbanon og Ísrael á næstu dögum en í gær tilkynnti hann um tíu daga vopnahlé á svæðinu sem gekk í gildi í gærkvöldi. Erlent 17. apríl 2026 07:49
Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Ísraelsmenn og Líbana hafa komist að samkomulagi um tíu daga vopnahlé sem á að taka gildi klukkan 22 í kvöld að íslenskum tíma. Erlent 16. apríl 2026 15:58
Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Bandaríkin munu halda uppi herkví við Hormússund eins lengi og þörf krefur að sögn Pete Hegseth varnarmálaráðherra landsins. Hann segir Bandaríkin nú undirbúa sig undir möguleikann á frekari átökum, Íranir hafi val um að ljúka átökum með því að velja auðveldu leiðina ellegar verði þeim gert að fara erfiðu leiðina. Hann hótaði árásum á orkuinnviði landsins. Erlent 16. apríl 2026 14:53
Infantino fullviss um að Íran muni spila á HM Þó stríð geysi enn milli Írans og Bandaríkjanna er forseti FIFA fullviss um að Íran muni spila á HM í Bandaríkjunum í sumar. Fótbolti 16. apríl 2026 10:00
Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Donald Trump Bandaríkjaforseti segir leiðtoga Ísrael og Líbanon munu ræða saman í dag um mögulegt vopnahlé. Frá þessu greindi hann á Truth Social en nefndi leiðtogana ekki á nafn. Áður höfðu fjölmiðlar greint frá því að Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, sætti þrýstingu af hálfu Bandaríkjanna um að ganga að samningaborðinu. Erlent 16. apríl 2026 06:55