

Innrás Rússa í Úkraínu
Fréttir af yfirstandandi innrás Rússa í Úkraínu sem hófst 24. febrúar 2022.

Rússar skutu 25 stýriflaugum á Úkraínu í nótt
Rússar eru sagðir hafa skotið 25 stýriflaugum á Úkraínu í nótt og í morgun, daginn sem þeir minnast sigurs Sovétmanna í seinni heimsstyrjöldinni.

Rússar láta sprengjum rigna í Úkraínu
Yfirvöld í Úkraínu segjast hafa skotið niður þrjátíu og fimm íranska Shahed dróna í morgun en Rússar sendu þá á skotmörk víðsvegar um landið.

Auknar áhyggjur af öryggi kjarnorkuversins eftir að nærliggjandi svæði var rýmt
Forstöðumaður kjarnorkumálastofnunar Sameinuðu þjóðanna hefur vaxandi áhyggjur af öryggi Zaporizhzhia-kjarnorkuversins í suðausturhluta Úkraínu. Fylkisstjóri svæðisins sem er á valdi Rússa hefur fyrirskipað að nærliggjandi hverfi verði rýmd en langvarandi átök hafa staðið yfir við kjarnorkuverið sem er það stærsta í Evrópu.

Stjórnvöld í Moskvu sögð láta undan hótunum Prigozhin
Leiðtogi Wagner-málaliðahópsins segir yfirvöld í Moskvu hafa fallist á kröfur um aukin skotfæri eftir að hann hótaði að draga menn sína frá borginni Bakhmut í austanverðri Úkraínu fyrir miðja næstu viku.

Segja Kadyrov munu taka við framlínunni í Bakhmut 10. maí
Ramzan Kadyrov, leiðtogi Tjéténa og einn dyggasti bandamaður Vladimir Pútíns Rússlandsforseta, hefur boðið liðsmönnum Wagner-málaliðahópsins að ganga til liðs við Akhmat-sveitir sínar í Bakhmut.

Rússar aftur sakaðir um að nota fosfórssprengjur
Úkraínumenn hafa sakað Rússa um að nota fosfórssprengjur í Bakhmut og hefur herinn birt myndskeið tekin úr dróna sem virðast sýna elda loga í borginni á sama tíma og hvítum fosfór rignir niður.

Hótar að draga Wagner-liða frá Bakhmút
Leiðtogi Wagner-málaliðahópsins rússneska hótar því að draga hermenn sína frá borginni Bakhmút í austanverðri Úkraínu fyrir miðja næstu viku útvegi rússnesk stjórnvöld þeim ekki skotfæri. Hann skýtur föstum skotum á rússneska ráðamenn.

Clinton segist hafa vitað frá 2011 að Pútín myndi gera innrás
Financial Times hefur birt tilvitnanir í Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, þar sem hann segist hafa vitað það árið 2011 að það væri aðeins tímaspursmál hvenær Vladimir Pútín Rússlandforseti myndi ráðast inn í Úkraínu.

Skutu eigin dróna niður yfir Kænugarði
Loftvarnarflautur ómuðu og sprengingar heyrðust í Kænugarði í kvöld þegar Úkraínumenn neyddust til að skjóta niður eigin dróna sem þeir höfðu misst stjórn á.

Pútín sé réttdræpur vegna glæpa sinna
Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttardómari, hefur enga trú á því að hægt verði að draga Vladímír Pútín, Rússlandsforseta, fyrir dóm fyrir glæpi sína. Segir hann Úkraínumenn í fullum rétti að ráða hann af dögum.

Rússar gerðu árásir á úkraínskar borgir í morgun
Sprengingar hafa heyrst víða um Úkraínu í nótt og í morgun, degi eftir að Rússar sökuðu Úkraínumenn um að gera drónaárás á Kreml í Moskvu.

Segja Rússa geta skemmt sæstrengi til að refsa Vesturlöndum
Rússar hafa lagt mikið kapp á að kortleggja neðansjávarinnviði að undanförnu gætu skemmt sæstrengi og leiðslur til að refsa Vesturlöndum fyrir stuðninginn við Úkraínu. Forsvarsmenn Atlantshafsbandalagsins segja hættuna á skemmdarverkum umtalsverða.

„En okkur líkar við flugvélarnar ykkar“
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, stakk óvænt upp kollinum í Helsinki í Finnlandi í dag þar sem hann fundaði með leiðtogum Norðurlanda. Honum var heitið auknum stuðningi frá Norðurlöndum en enn sem áður þrýsta Úkraínumenn á að fá herþotur frá Vesturlöndum.

Ætla að kynna aukið framlag til Úkraínu fyrir leiðtogafundinn
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segir að aukning á framlagi Íslands til Úkraínu verði kynnt fyrir leiðtogafund Evrópuráðsins, sem fram fer hér á landi seinna í mánuðinum. Hún segir að það framlag sem þegar hafi verið kynnt á þessu ári, sé til jafns á við allt framlag Íslands á síðasta ári en bætt verði frekar í.

„Við réðumst ekki á Pútín eða Moskvu“
Volodomír Selenskí Úkraínuforseti segir ásakanir rússneskra stjórnvalda á hendur Úkraínu um að hafa staðið fyrir banatilræði gegn Vladimír Pútín Rússlandsforseta í Moskvu í morgun ekki eiga við rök að styðjast.

Norðurlöndin heita stuðningi við Úkraínu eins lengi og þurfi
Leiðtogar Úkraínu og Norðurlandanna fimm ítrekuðu fordæmingar sínar á innrás Rússa í Úkraínu. Norðurlönd munu halda áfram stuðningi við Úkraínu í stríðinu sitt í hvoru lagi og á alþjóðavettvangi eins lengi og til þarf. Norðurlöndin heita því að styðja við enn frekari refsiaðgerðir gegn Rússum.

Bein útsending: Blaðamannafundur Selenskí og norrænu ráðherranna
Volodomír Selenskí, forseti Úkraínu, heldur sameiginlegan blaðamannafund með leiðtogum Norðurlandanna í Helsinki. Samkvæmt áætlun á fundurinn að hefjast klukkan 15:00 að íslenskum tíma.

Nauðsynlegt að herða enn frekar á refsiaðgerðum
Volodomír Selenskí Úkraínuforseti sagði nauðsynlegt að herða enn fremur á refsiaðgerðum Vesturlanda gagnvart Rússlandi á blaðamannafundi í Finnlandi í dag.

Saka Úkraínumenn um banatilræði gegn Pútín í morgun
Rússnesk stjórnvöld hafa sakað Úkraínumenn um banatilræði gegn Vladimir Pútín Rússlandsforseta. Þau segja um að ræða skipulagða hryðjuverkaárás og segjast áskilja sér réttinn til að grípa til hefndaraðgerða hvar og hvenær sem er.

Bein útsending: Blaðamannafundur Selenskí og Niinistö
Volodomír Selenskí Úkraínuforseti og Sauli Niinistö Finnlandsforseti halda sameiginlegan blaðamannafund að loknum tvíhliða fundi þeirra í Helsinki þar sem Selenskí sækir leiðtogafund Norðurlandanna.

Katrín fundar með Selenskí
Volodomír Selenskí, Úkraínuforseti, verður gestur á leiðtogafundi Norðurlandanna í Helsinki í dag og mun jafnframt eiga tvíhliða fund með Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra Íslands.

Selenskí var ekki látinn vita af lekanum áður en hann komst í fréttirnar
Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti segir hvorki Hvíta húsið né hermálayfirvöld vestanhafs hafa látið sig vita af gagnalekanum á dögunum áður en fréttir birtust af honum í fjölmiðlum. Hann segir lekann koma niður á bæði stjórnvöldum í Washington og í Kænugarði.

Hundrað þúsund rússneskir hermenn fallið eða særst síðan í desember
Yfir tuttugu þúsund rússneskir hermenn hafa fallið og yfir áttatíu þúsund hafa særst frá því í desember síðastliðnum. Þetta fullyrða bandarísk yfirvöld.

„Það þýðir ekkert að semja við Rússa“
Óskar Hallgrímsson, sem búsettur er í Kyiv í Úkraínu, telur að stríðið í Úkraínu eigi eftir að klárast í ár eða á næsta ári. Hann telur að eina leiðin til að stríðið endi sé sú að Rússland gefist upp, það þýði ekki að semja við þá.

Skutu fjölda eldflauga á Úkraínu í morgun
Rússar skutu fjölda eldflauga á úkraínskar borgir í morgun. Að minnsta kosti einn lést í Kherson-héraði en 34 eru slasaðir í Dnipropetrovsk. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ræddi við varnarmálaráðherra Úkraínu símleiðis í morgun.

Stuðningur við Úkraínu eini valmöguleikinn
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fór til Odessa í Úkraínu í morgun ásamt öðrum utanríkisráðherrum Norðurlanda og Eystrasaltsríkja, sem höfðu verið á fundi í Moldóvu. Ekki hafði verið tilkynnt um heimsóknina fyrirfram af öryggisástæðum.

Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Beðið eftir Úkraínumönnum
Eins og undanfarnar vikur hefur lítið gerst á víglínunum í Úkraínu. Rússar hafa sótt fram í Bakhmut, í austurhluta landsins og náð þar hægum árangri. Hersveitir Rússa hafa reynt að ná bænum frá síðasta sumri og eru nú sagðir stjórna meirihluta hans.

Aftur ráðist á Kænugarð eftir langt hlé
Tólf úkraínskir borgarar eru sagðir hafa látið lífið í loftárásum næturinnar en Rússar gerðu flugskeyta- og drónaárásir víða í landinu í nótt.

Selenskí og Xi áttu „langt og innihaldsríkt“ samtal í morgun
Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti og Xi Jinping, forseti Kína, ræddu saman í síma í morgun. Um er að ræða fyrsta samtalið sem leiðtogarnir eiga frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu.

Segir engin kjarnavopn hafa verið á Íslandi eða í landhelginni síðustu fimm ár
Utanríkisráðherra segir mögulegt að staðhæfa að engin kjarnavopn hafi verið á Íslandi eða í landhelginni á undanförnum fimm árum. Þetta kemur fram í svörum við fyrirspurn Andrésar Inga Jónssonar þingmanns Pírata.