

Hollywood
Fréttir af fræga fólkinu úti í hinum stóra heimi.

Heche var ekki undir áhrifum fíkniefna
Réttarmeinafræðingur Los Angeles hefur staðfest að leikkonan Anna Heche var ekki undir áhrifum fíkniefna þegar hún lenti í bílslysi í sumar. Hún slasaðist alvarlega í slysinu og dó skömmu síðar, eftir að hafa verið í dái. Hún var 53 ára gömul.

Stjörnurnar skinu skært á bláum dregli Avatar
Heimsfrumsýning Avatar The Way of Water fór fram í gærkvöldi í London í kvikmyndahúsinu á Leicester Square. Það var stjörnuprýddur gestalisti á forsýningunni og létu leikarar og leikstjórar myndarinnar sömuleiðis sjá sig.

Leikkonan Kirstie Alley er látin
Leikkonan Kirstie Alley er látin eftir baráttu við krabbamein. Hún var 71 árs. Alley var einna þekktust fyrir hlutverk sín í sjónvarpsþáttunum Cheers, Look Who's Talking myndunum og fyrir að tilheyra Vísindakirkjunni.

Hundaræninginn hlaut 21 árs fangelsisdóm
Maðurinn sem skaut aðstoðarmann söngkonunnar Lady Gaga þegar hann var á göngu með hunda hennar hefur samið sig frá réttarhöldum og mun þurfa að sitja í fangelsi í 21 ár.

Segir tónlist Ásgeirs Trausta hafa hjálpað sér í veikindum sonar síns
Bandaríski leikarinn og grínistinn Rob Delaney opnaði sig nýlega í hlaðvarpsviðtali og ræddi meðal annars um það hvernig lög íslenska tónlistarmannsins Ásgeirs Trausta veittu honum styrk á erfiðum tímum.

Adele drekkur vín og þykir líkleg til vinsælda
Breska stórstjarnan og söngkonan Adele var kynnt inn sem líkleg til vinsælda á Íslenska listanum á FM í dag með lagið I Drink Wine. Lagið er að finna á plötunni 30 sem Adele sendi frá sér í fyrra.

Orange Is the New Black-leikari látinn
Bandaríski leikarinn og fótboltaspilarinn Brad William Henke, sem þekktastur er fyrir hlutverk sitt í þáttunum Orange Is the New Black, er látinn, 56 ára að aldri.

Fyrsta stiklan úr kvikmyndinni um kókaínbjörninn mætt
Fyrsta stiklan úr kvikmyndinni Cocaine Bear, á íslensku kókaínbjörninn, var birt í gær. Kvikmyndin er byggð á sannsögulegum atburðum og fjallar um svartbjörn sem étur mikið magn af kókaíni.

Dómari ógildir réttarhöldin yfir Masterson
Dómari ógilti réttarhöld yfir leikaranum Danny Masterson í gær, þar sem kviðdómurinn gat ekki náð saman um niðurstöðu. Masterson var ákærður fyrir þrjár nauðganir og hefur notið stuðnings Vísindakirkjunnar í baráttu sinni gegn ásökununum.

West gert að greiða Kardashian um 29 milljónir á mánuði í meðlagsgreiðslur
Bandaríska rapparanum Kanye West hefur verið gert að greiða 200 þúsund Bandaríkjadali á mánuði í meðlagsgreiðslur til fyrrverandi eiginkonu sinnar, raunveruleikastjörnunnar og viðskipakonunnar Kim Kardashian.

Með blöðru á stærð við epli á eggjastokknum
Fyrirsætan Hailey Bieber opnaði sig við fylgjendur sína á Instagram í gær og sagði frá því að hún væri með stóra blöðru á eggjastokknum sem ylli henni talsverðum óþægindum. Hún sagðist vilja deila þessu, þar sem fjölmargar aðrar konur væru að glíma við sama vandamál.

Pete Davidson og Emily Ratajkowski stálu senunni á körfuboltaleik
Grínistinn Pete Davidson og fyrirsætan Emily Ratajkowski mættu saman á körfuboltaleik í New York um helgina. Þau sátu saman á fremsta bekk, hvöttu áfram liðið Knicks og virtust hugfangin hvort af öðru.

Prison Break stjarna nýr stjúpfaðir Miley Cyrus
Tish Cyrus, móðir tónlistarkonunnar Miley Cyrus, er komin í nýtt samband. Sá heppni er Prison Break leikarinn Dominic Purcell.

P!nk ætlar aldrei að hætta að dansa
Tónlistarkonan P!nk skipar ellefta sæti Íslenska listans á FM í þessari viku með lagið Never Gonna Not Dance Again. Vinsældum þessarar sögulegu söngkona virðast engin takmörk sett en hún hefur haldið sér stöðugri í rúm 22 ár í heimi tónlistarinnar.

Irene Cara er látin
Irene Cara, söngkonan sem gerði garðinn frægan með söng og leik í kvikmyndum á borð við Fame og Flashdance, er látin aðeins 63 ára að aldri.

Hafa ekki enn opinberað endanlegt nafn sonarins
Athafnakonan og raunveruleikastjarnan Kylie Jenner hefur ekki enn greint frá því hvað tæplega tíu mánaða gamall sonur hennar eigi að heita. Þau voru búin að gefa drengnum nafn sem þau hættu svo við, þar sem þeim fannst það ekki eiga nógu vel við hann.

Glæný stikla úr Avatar myndinni sem kemur út í desember
Í nótt kom út glæný stikla fyrir kvikmyndina Avatar: The Way of Water. Nýja Avatar kvikmyndin er væntanleg í bíóhús hér á landi 16. desember.

Bæði á lausu og fingurkoss á tónleikum gerði allt vitlaust
Kendall Jenner sást á tónleikum fyrrverandi kærasta síns Harry Styles á dögunum. Allt ætlaði um koll að keyra á TikTok þegar myndband fór í dreifingu af honum að senda henni fingurkoss í miðju „Love of My Life“ lagi. Í vikunni komu fréttir af sambandsslitum í samböndum þeirra beggja.

Jay Leno útskrifaður af sjúkrahúsi eftir brunaslys
Bandaríski grínistinn og þáttastjórnandinn Jay Leno hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsi í Kaliforníu eftir að hafa hlotið brunasár eftir eldsvoða í bílskúr á heimili sínu í Kaliforníu fyrir tíu dögum.

Biðja aðdáendur afsökunar eftir misheppnaða miðasölu
Miðasölurisinn Ticketmaster hefur beðið aðdáaendur stórsöngkonunnar Taylor Swift afsökunar vegna hruns sem varð á síðu fyrirtækisins þegar sala hófst á miðum á tónleika söngkonunnar. Ticketmaster hefur kennt metaðsókn og tölvuþrjótum um algjörlega misheppnaða sölu.

Tekur sér frí vegna fornæmis fyrir Alzheimer
Ástralski leikarinn Chris Hemsworth hefur ákveðið að taka sér frí frá sviðsljósinu vegna nýuppgötvaðs fornæmis fyrir Alzheimer sjúkdómnum.

Pissaði á fæturna á sér rétt áður en hún labbaði rauða dregilinn á Met Gala
Áhorfendur The Kardashians voru minntir á það að stjörnurnar eru í raun alveg eins og við hin, þegar hin undurfagra ofurfyrirsæta Kendall Jenner pissaði í ísfötu á leið á sinni á stærsta og glæsilegasta tískuviðburð í heimi.

Harry Styles og Olivia Wilde segja það gott í bili
Leikarinn og söngvarinn Harry Styles og leikkonan og leikstjórinn Olivia Wilde hafa ákveðið að gera hlé á sambandi sínu. Parið hefur verið saman síðan í janúar á síðasta ári.

Snoop Dogg er mættur í gæludýrabransann
Rapparinn Snoop Dogg hefur ákveðið að fara í gæludýrabransann með nýju Snoop Doggie Doggs línunni sinni sem hann hannaði sjálfur.

Twerkoholic-rapparinn B. Smyth er látinn
Bandaríski rapparinn B. Smyth, sem þekktastur er fyrir lag sitt Twerkoholic frá árinu 2014, er látinn, 28 ára að aldri.

Fær ekki að vera hin eina sanna „drottning jólanna“ þrátt fyrir allt
Söngkonan Mariah Carey hefur oft verið kölluð drottning jólanna enda jólalög hennar órjúfanlegur hluti af jólahaldi margra. Carey hafði óskað eftir því að titillinn yrði skráður sem vörumerki í hennar eigu. Í vikunni fékkst sú niðurstaða í málið að Carey fengi ekki einkaleyfi fyrir vörumerkinu og má því hver sem er kalla sig „drottningu jólanna“.

Ekki auðveld ákvörðun að hætta saman
Parið Gemma Owen og Luca Bish, sem byrjuðu að slá sér upp í raunveruleikaþáttunum Love Island, eru hætt saman eftir þriggja mánaða samband. Gemma er dóttir fótboltamannsins Michael Owen sem spilaði fyrir Liverpool og enska landsliðið.

James Bond sýnir ótrúlegar mjaðmahreyfingar
Leikarinn Daniel Craig sýnir danstaktana sína þar sem hann dansar um París í vodka auglýsingu sem er leikstýrt af Óskarsverðlaunahafanum Taika Waititi.

Nágrannar fengu fjármagn og fara ekki fet
Sápuóperan Nágrannar kvaddi skjáinn fyrr á árinu eftir 37 ár í sjónvarpi. Tárin féllu þegar Nágrannarnir sögðu bless og voru aðdáendur um heim allan í öngum sínum. Þeir geta þó tekið gleði sína á ný þar sem ný þáttaröð er væntanleg.

Mikið líf í Gufunesinu þar sem True Detective og Snerting eru tekin upp
Eitt stærsta kvikmyndaver Evrópu, sem staðsett er í Gufunesinu í Reykjavík, er töluvert aðdráttarafl fyrir erlendar framleiðslur að sögn leikstjóra og eiganda þess sem segist viss um að kvikmyndaiðnaðurinn geti verið ein af stoðgreinum landsins. Gríðarlegt umfang er á svæðinu þar sem þættirnir True detective eru teknir upp.