Úrtaka fyrir HM í hestaíþróttum Í dag hófst úrtaka fyrir Heimsmeistaramótið í hestaíþróttum á félagssvæði Fáks í Víðidal. Það var hart barist í þremur af þeim fjórum greinum sem voru í dag, en aðeins keppandi var í 100m skeiði. Meðfylgjandi eru úrslit dagsins. Dagskrá hefst aftur á morgun klukkan 13.00 slaktaumatölti T2 . Sport 13. júní 2007 20:09
Einn magnaðasti skeiðsprettur ársins 2006 Skeiðspretturinn ógurlegi á milli Sæs frá Bakkakoti og Ás frá Ármóti á Landsmóti 2006 er kominn inn á vef TV Hestafrétta. Það er sjaldgæft að sjá svona höfðinga takast á á vellinum á fljúgandi skeiði. Sport 12. júní 2007 19:38
Rífleg peningaverðlaun í tölti og skeiði Rífleg peningaverðlaun eru í boði í tölti og 100 m skeiði á FM07. Alls eru veittar 200 þúsund krónur í verðlaun í hvora keppnisgrein: 100 þúsund á fyrsta sæti og 50 þúsund á annað og þriðja sæti. Sport 12. júní 2007 09:58
Dómar frá Sörlastöðum Dómar á Sörlastöðum hófust aftur í morgun eftir helgarhlé, en seinni kynbótasýning þar hófst fimmtudaginn 7. júní. Nú er búið að dæma í þrjá daga og eru dómar eftir þá daga meðfylgjandi. Sport 12. júní 2007 09:56
Byggði eitt flottasta stóðhestahús í heimi Herbert Ólason (Kóki) var að leggja síðustu hönd á byggingu eins flottasta stóðhestahúss sem fyrir finnst. Kóki hefur staðið að þessari byggingu með heimilisfólkinu á hofi sínu Hrafnsholti sem staðsett er í Þýskalandi. Stóðhestahúsið er um 22 metrar á lengd, 7,5 metrar á breidd og lofthæðin er allt upp í 7 metra. Sport 11. júní 2007 14:49
Úrslit Gæðingamóts Geysis Gæðingamót Geysis og SS lauk nú í dag. Glæsilegasta par mótsins var Guðmundur F. Björgvinsson og Hvellhetta frá Ásmundarsstöðum. Hulda Gústafsdóttir vann töltið á Völsung frá Reykjavík og Sigurbjörn Bárðarson sigraði A flokk á Stakk frá Halldórsstöðum. Meðfylgjandi eru úrslit mótsins. Sport 10. júní 2007 21:30
Kynbótahross að týnast inn á FM 07 Nú eru kynbótahross farin að týnast inn á Fjórðungsmót sem haldið verður á Austurlandi dagana 28. Júni til 1. júlí næstkomandi. Samkvæmt heimildum WorldFengs eru nú þegar skráð 15 kynbótahross. Má þar nefna Mátt frá Torfunesi, Mola frá Skriðu og Hött frá Hofi I. Sport 10. júní 2007 11:31
Frábær stemning á Gaddstaðaflötum Það er óhætt að segja að stemningin hafi verið góð á Gaddstaðaflötum í dag þar sem forkeppni fór fram á Opnu Gæðingamóti Geysis og SS, en þar öttu kappi margir af sterkustu hestum landsins. Efstur inn í úrslit í A flokki opnum er Stakkur frá Halldórsstöðum með eink. 8,56. Sport 10. júní 2007 11:29
Skráning hafin á FM 07 Skráning fyrir FM07 hefur verið opnuð í Mótafeng. Þar er hægt að skrá í gæðinga- ungmenna- unglinga og barnakeppni, töltkeppni og 100 m skeið. Formenn aðildarfélaganna eru ábyrgir fyrir skráningu sinna félagsmanna. Sport 7. júní 2007 22:30
Gæðingamót Harðar Gæðingakeppni Harðar byrjaði í dag á Varmárbökkum í Mosfellsbæ. Mótið stendur til 10. júní. Dagana 7.-10. Forkeppni í A flokk var að ljúka og er Súsanna Ólafsdóttir og Garpur frá Torfastöðum II efst með 8,28. Sport 7. júní 2007 22:28
Dómstörf hafin á Sörlastöðum Seinni kynbótasýning á Sörlastöðum í Hafnafirði byrjaði í morgun. Dómar standa yfir til 13 júní og eru tæplega 400 hross sem koma þar í dóm. Sport 7. júní 2007 22:24
1 af 27 hrossum yfir 8 á Stekkhólma Ekki var mikið um sprengingar og stórsýningar á kynbótasýningu á Stekkhólma í dag. Af 27 sýndum hrossum var aðeins eitt hross sem komst yfir 8, en það var Hekla frá Eskifirði sem sýnd var af Hans Kjerúlf og fékk hún 8.30 í aðaleinkunn. Meðfylgjandi eru dómar sýningarinnar. Sport 7. júní 2007 22:22
Úrslit í 100m skeiði á Skeiðleikum Skeiðfélagsins Keppni í 100m skeiði á Skeiðleikum Skeiðfélagsins og Glitnis er lokið. Þetta var jafnframt síðasta keppnisgrein mótsins í kvöld. Sigurður Sigurðarson sigraði á Drífu frá Hafsteinsstöðum á tímanum 7,59. Sport 7. júní 2007 22:20
Íslandsmót yngri flokka í Glaðheimum Íslandsmót í hestaíþróttum fyrir börn, unglinga og ungmenni fer fram í Glaðheimum í Kópavogi dagana 21. -24. júní nk. Skráning fer fram hjá hestamannafélögunum sem sjá um að skila inn skráningargjöldum og skrá keppendur til leiks í gegnum Mótafeng. Sport 7. júní 2007 22:18
Úrtökumót fyrir Fjórðungsmót um helgina Úrtökumót fyrir Fjórðungsmót á Austurlandi fara fram í allmörgum aðildarfélögum að mótinu um næstu helgi, þar á meðal stærstu félögunum á Austurlandi: Freyfaxa, Hornfirðingi og Blæ á Norðfirði. Einnig fara héraðssýningar kynbótahrossa á svæðinu fram á næstu dögum: Þann 6. Og 7. Júní á Fljótsdalshéraði, 8. Júní á Hornafirði og 12. – 14 júní í Eyjafirði. Sport 5. júní 2007 09:01
Atli Guðmundsson og Hrammur standa efstir eftir forkeppni Atli Guðmundsson og Hrammur frá Holtsmúla standa efstir eftir forkeppni í A flokki á Gæðingmóti Fáks og Lýsis sem fram fór í dag. Í öðru og þriðja sæti stendur Sigurður V. Matthíhasson með Klett frá Hvammi í öðru sæti og Örnu frá Varmadal í þriðja sæti. Meðfylgjandi eru úrslit dagsins Sport 26. maí 2007 08:42
Yfirlitssýningu l lokið í Hafnafirði Yfirlitssýningu var að ljúka fyrir stundu í Hafnafirði og var ekki mikið um flugeldasýningar. Þokki frá Kýrholti var með 8.73 fyrir yfirlit og átti hann ekki góðan dag í dag og hækkaði hann ekki eftir yfirlitssýningu. Hruni frá Breiðumörk 2 hækkaði fyrir brokk og Illingur frá Tóftum hækkaði fyrir vilja og geðslag og Tjörfi frá Sunnuhvoli hækkaði fyrir skeið. Sport 25. maí 2007 21:37
Um stöðu hesthúsmála hjá Gusti - hugleiðingar félagsmanns Hvað er að frétta? Ég undirritaður er einn þeirra sem eiga (eða áttu) hlut í hesthúsi í Glaðheimum, félagssvæði Hestamanafélagsins Gusts í Kópavogi. Líkt og flestir aðrir eigendur hesthúsa í Glaðheimum hef ég selt Kópavogsbæ hesthúseign mína og þá í trausti þess að við afhendingu eignarinnar muni ég geta flutt í nýtt hesthús sem byggt yrði á nýju svæði Gusts á Kjóavöllum. Sport 25. maí 2007 10:42
Brautskráning á Hólum Laugardaginn 26. maí verður fyrsta brautskráningin úr Hólaskóla – Háskólanum á Hólum eftir að ný lög um háskólann voru samþykkt. kl. 13 Reiðsýning reiðkennaranema á skeiðvellinum kl. 14 Brautskráning - athöfnin verður í Þráarhöll Brautskráðir verða nemar úr hrossaræktardeild: Sport 24. maí 2007 14:26
Opin gæðingakeppni Mána og Sparisjóðsins. Gæðingakeppni Mána verður haldin dagana 2. og 3. júní á Mánagrund. Keppt verður í : Teymingaflokki Polla, Pollaflokki, Barnaflokki, Unglingaflokki, Ungmennaflokki, A-flokki og B-flokki áhugamanna, A-flokki og B-flokki (opinn). Sport 24. maí 2007 14:24
Tamningamaður eða FT tamningamaður Náttúrutalent eða bókaormur sem ekkert kann í tamningum með FT próf uppá arminn? Já, það er spurning hvað er það sem þarf til að komast inn í Hólaskóla? Ég dúxaði í slugsahætti í skóla þegar ég var yngri. Það komst enginn með tærnar þar sem ég hafði hælana í slugsahættinum. Ég var lang bestur í því. Í verklegu námi var ég þó mjög góður og í íþróttum. Sport 22. maí 2007 08:44
Úrslit af opnu Íþróttamóti Gusts Íþróttamót Gusts fór fram í Glaðheimum um liðna helgi. Keppt var í flestum greinum hestaíþrótta og var þátttaka nokkuð góð. Fáksmenn gerðu góða ferð í Kópavoginn og þeir félagar Ragnar Bragi Sveinsson og Óskar Sæberg sigruðu í öllum greinum í barna- og unglingaflokkum. Sport 22. maí 2007 08:26
Hvers virði er hestamennskan? Ágætur vinur minn til margra ára hringdi í mig eftir vikulanga dvöl í Rússlandi, búinn að lesa allt um sigurgöngu íslenska hestsins þar í landi. Danni getur þú ekki reddað mér ógurlegum gæðing? Sagði hann við mig í síma. Þessi ágæti maður er einn af þessum nýríku strákum sem hafa hagnast ógurlega á verðbréfaviðskiptum og halda að allt sé fallt fyrir aurinn, meira að segja hvernig eigi að sitja hest. Sport 20. maí 2007 21:32
Heimsmet á kynbótasýningu í Þýskalandi Garri frá Reykjavík toppaði Stála frá Kjarri og setti þar með nýtt heimsmet, en klárinn hjá Jóa Skúla sem sýndur var nú í yfirliti á kynbótasýningu í Þýskalandi kom út með 8,77 í aðaleinkunn. Jói sagði í samtali við Hestafréttir nú rétt í þessu að munurinn á þessum stóðhestum gæti ekki hafa verið minni en það munar á þeim 0.01, en Stáli er með 8.76 í aðaleinkunn. Sport 20. maí 2007 14:04
Elli Sig rétt að byrja Erling Sigurðsson er búinn að vera viðloðandi hestamennsku í hálfa öld, hvort sem það er á keppnisvellinum eða í kennslu. Elli Sig eins og flestir þekkja hann keppti fyrst í stökki árið 1958 og þá byrjaði eiginlegur ferill Ella Sig. Það voru tímamót í lífi þessa stórsnillings í dag þegar hann keppti í síðasta skipti á hesti sínum Feld frá Lauganesi. Sport 19. maí 2007 20:41
Mótahald um helgina Mikið er um mótahald nú um helgina og má þar nefna þrjú íþróttamót. Eitt er haldið hjá Herði í Mosfellsbæ, hjá Andvara í Garðabæ og hjá Gusturum í Kópavogi. Íþróttamót hefst síðan á morgun sunnudag hjá Geysi á Hellu. Sport 19. maí 2007 17:46
Hestarnir alltaf vinsælastir Stöð 2 hélt heljarinnar veislu í Húsdýragarðinum í dag og var talið að um 20.000 manns hafi lagt leið sína í garðinn. Þrátt fyrir skemmtilegar lestaferðir, hoppukastala og annað afþreyingarefni þá var röðin í hestana sú allra lengsta. Sport 19. maí 2007 17:35
Lorenzo og íslenski hesturinn Á hestasýningu sem haldin var um síðustu helgi í Pétursborg í Rússlandi var sýndur í fyrsta skipti þar í landi íslenskur hestur og vakti hann gríðalega athygli. Hestasnillingurinn Lorenzo sem var stjarna sýningarinnar heillaðist svo af íslenska hestinum að hann óskaði eftir því sjálfur við íslensku sendinefndina að fá að fara á bak honum. Sport 17. maí 2007 13:26
Sterkasta kynbótasýning til þessa í þýskalandi Ein sterkasta og stærsta kynbótasýning til þessa í þýskalandi var haldin á búgarðinum Lipperthof Wurz um síðustu helgi. Um 150 hross voru þar sýnd í dóm. Naskur von Oed stóð efstur í flokki 6 vetra stóðhesta með aðaleinkunina 8.58. Djáknar frá Hvammi stóð efstur í flokki 7 vetra stóðhesta með 8.46. Urður frá Gunnarsholti fékk einnig mjög góðan dóm en hún fékk 8.48. Sport 17. maí 2007 09:58
Úrslit fyrstu skeiðleika 2007 Þá er keppni lokið á fyrstu Skeiðleikum Skeiðfélagsins og Glitnis. Verslunin Baldvin og Þorvaldur gaf gjafabréf fyrir reiðhjálmi í fyrsta sætið í 250m skeiði. Veðrið lék við gesti Skeiðleikanna en meðfylgjandi eru úrslit öll úrslit mótsins. Sport 17. maí 2007 09:56