

Golf
Fréttir og úrslit úr heimi golfsins.

McIlroy stakk af undir lokin
Norður-Írinn Rory McIlroy er með 6 högga forystu fyrir fjórða og síðasta keppnisdag opna breska meistaramótsins í golfi sem leikið er á Royal Liverpool vellinum á Englandi.

Fowler búinn að ná McIlroy
Bandaríkjamaðurinn Rickie Fowler hefur leikið frábært golf í dag á opna breska meistaramótinu á Royal Liverpool golfvellinum á Englandi. Fowler er nú jafn Rory McIlroy á toppnum.

Spennan magnast á opna breska | Veðrið setur strik í reikninginn
Allir kylfingar eru farnir af stað á þriðja degi opna breska meistaramótsins í golfi sem haldið er á Royal Liverpool golfvellinum á Englandi. Í fyrsta sinn í sögu mótsins var ræst út á tveimur teigum.

Allt það besta frá öðrum degi á Opna breska
Það voru mörg glæsileg tilþrif sem litu dagsins ljós á öðrum keppnisdegi á Opna breska meistaramótinu sem fram fer á Royal Liverpool vellinum.

McIlroy með góða forystu þegar að Opna breska er hálfnað
Tiger Woods lék mjög illa í dag og rétt náði niðurskurðinum en úttlit er fyrir rigningu og roki á þriðja leikdegi á morgun.

Rory lék óaðfinnanlega á degi tvö
Engan bilbug var að finna á spilamennsku norður-írska kylfingsins á degi tvö á Opna breska Meistaramótinu í dag en hann kom annan daginn í röð í hús á sex höggum undir pari.

Tiger slapp líklegast fyrir horn
Slök hola var nálægt því að slá Tiger Woods úr leik á Opna breska meistaramótinu í golfi í dag. Tiger byrjaði illa annan daginn í röð og var þremur yfir eftir tvær holur í dag.

Rory áfram í miklu stuði á Hoylake
Norður-Írinn spilaði fyrri níu í dag á þremur höggum undir pari og er efstur á mótinu.

Ógleymanlegur afmælisdagur hjá Coetzee
George Coetzee frá Suður-Afríku átti svo sannarlega magnaðan 28 ára afmælisdag. Coetzee er meðal efstu manna á samtals fimm höggum undir pari á Opna breska eftir að hafa leikið annan hring mótsins á 69 höggum eða þremur höggum undir pari.

Tiger byrjar hræðilega í dag | Mickelson spilaði á tveimur undir
Annar keppnisdagur á opna breska meistaramótinu í golfi í fullum gangi.

Hvað var Ernie Els að spá?
Ernie Els fór illa af ráði sínu á fyrstu holu á Opna breska í dag. Hann lék holuna á sjö höggum eftir að hafa tvívegis misst stutt pútt.

Sjáðu öll bestu tilþrif dagsins á Opna breska
Rory McIlroy er með eins höggs forystu eftir fyrsta keppnisdag á Opna breska meistaramótinu sem hófst í dag á Royal Liverpool í Englandi.

Rory McIlroy í efsta sæti á Opna breska eftir viðburðaríkan fyrsta hring
Skor í dag almennt gott og margir sterkir kylfingar ofarlega á skortöflunni - Phil Mickelson hóf titilvörnina illa.

Gallalaus hringur hjá Rory á Hoylake
Norður-Írinn efstur sem stendur á opna breska á sex höggum undir pari.

Tiger fékk fimm fugla á seinni níu | Þrír Ítalir á meðal efstu manna
Tiger Woods spilaði fyrsta hringinn á opna breska á þremur höggum undir pari.

Tiger rétti úr kútnum eftir erfiða byrjun
Fékk skolla á fyrstu tveimur holunum.

Nær Tiger Woods að endurtaka leikinn á Hoylake?
Nær Tiger Woods að endurtaka leikinn frá því árið 2006 þegar hann valtaði yfir keppinauta sína á Hoylake-vellinum sem spilað er á í ár eða lengist biðin eftir næsta risatitli?

Tiger Woods er bjartsýnn fyrir Opna breska meistaramótið
Tiger segist vera að nálgast sitt besta líkamlega form eftir skurðaðgerðina og ætlar sér ekkert annað en sigur á Royal Liverpool.

Sigur það eina sem kemur til greina hjá Tiger
Woods ekki unnið risamót síðan 2008 þegar hann sigraði á opna bandaríska meistaramótinu.

Sveiflukennd frammistaða veldur Rory áhyggjum
Norður-Írinn hefur leik á opna breska meistaramótinu í golfi á morgun.

Dale Hill perla í enskri sveitasælu
Dale Hill golfsvæðið í Suður-Englandi er þess virði að heimsækja

Búið að raða í holl fyrir Opna breska
Rory Mcilroy og Jordan Spieth leika saman á meðan að Tiger Woods leikur með Angel Cabrera og Henrik Stenson.

Brian Harman sigraði á John Deere Classic
Hans fyrsti sigur á PGA mótaröðinni tryggði honum þátttökurétt á Opna breska meistaramótinu um næstu helgi.

Davíð Gunnlaugsson tryggði sér sigur í meistaramóti GKJ með vallarmeti á lokahringnum
Lék Hlíðavöll á 67 höggum eða fimm undir pari þegar að mest lá við.

Justin Rose vann í Skotlandi eftir gallalausan lokahring
Sigraði á sínu öðru atvinnumóti á tímabilinu.

Tiger Woods rásin gæti orðið vinsæl á Opna breska
Sumir horfa á golfmót eingöngu til þess að fylgjast með Tiger Woods. Bandarískir sjónvarpsáhorfendur sem vilja ekkert annað en Tiger munu geta horft á ekkert annað en Tiger á Opna breska meistaramótinu í næstu viku.

Rory setti vallarmet í Skotlandi
Norður-Írinn í stuði og opna breska meistaramótið handan við hornið.

Mörg góð skor á fyrsta hring á John Deere Classic
Nokkrir kylfingar deila forystusætinu - Jordan Spieth hefur titil að verja á TPC Deere Run.

Landsliðið náði ekki í A-riðil
Ísland í fimmtánda sæti af sextán liðum á EM áhugamannalandsliða í golfi.

Þekktur steralæknir heimsótti Tiger fjórtán sinnum
Í nýrri bók um steranotkun hafnaboltamannsins Alex Rodriguez kemur kylfingurinn Tiger Woods óvænt við sögu.