

Geimurinn
Fréttir af geimvísindum og geimferðum.

Rannsökuðu eigin samsæriskenningar um fljúgandi furðuhluti
Fámenn sérstök skrifstofa í varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna hafði varið mögum mánuðum í að rannsaka samsæriskenningar um leynilegar tilraunir yfirvalda í Bandaríkjunum með furðulega furðuhluti, þegar þeir uppgötvuðu að einn þeirra, að minnsta kosti, átti uppruna í ráðuneytinu sjálfu.
Fréttir í tímaröð

Klóra sér í kollinum yfir stórri reikistjörnu á braut um litla stjörnu
Stjörnufræðingar gætu þurft að endurskoða hugmyndir sínar um hvernig reikistjörnur myndast eftir að þeir uppgötvuðu stóra reikistjörnu á braut um litla stjörnu. Stjarnan er sú minnsta sem vitað er til að hýsi svo stóra reikistjörnu.

Brotlentu öðru einkafari á tunglinu
Japanska geimfyrirtækið ispace brotlenti öðru geimfari á tunglinu í gærkvöldi. Þetta var önnur tilraun fyrirtækisins til að lenda smáu tunglfari í einkaeigu en báðar hafa misheppnast.

Segir netheima kexruglaðra hafa gert sig að mennskum boxpúða
Tónlistarkonan Katy Perry, sem var gagnrýnd fyrir þátttöku sína í ferð geimskutlunnar Blue Origin, segir netverja hafa komið fram við sig eins og mennskt piñata. Netið sé ruslahaugur fyrir vanheila og hún finni styrk í stuðningsríkum aðdáendum.

Rýna í innyfli deyjandi reikistjörnu
Fjarreikistjarna sem er að gufa upp og skilur eftir sig hala utan um móðurstjörnu sína er sögð gefa vísindamönnum einstakt tækifæri til þess að rannsaka efnasamsetningu bergreikistjarna. Aðeins örfáar deyjandi reikistjörnur af þessu tagi hafa fundist til þessa.

Sterkar vísbendingar um líf á annarri plánetu
Hópur vísindamanna hefur fundið sterkar vísbendingar um að líf sé til á öðrum plánetum. Finnist fleiri vísbendingar verður hægt að staðfesta að líf í vetrarbrautinni sé algengt að sögn prófessors.

Furðureikistjarna sem gengur hornrétt um tvístirni
Stjörnufræðingar sem rannsökuðu óvanalegt tvístirni voru furðu lostnir þegar þeir uppgötvuðu fyrir tilviljun reikistjörnu á braut sem liggur hornrétt á sporbraut stjarnanna. Þetta er í fyrsta skipti sem slík reikistjarna finnst en tilgátur voru um að þær gætu verið að finna í alheiminum.

Von á fallegum, litríkum og kvikum norðurljósum í kvöld
Góðar líkur eru á því að norðurljósin sæki landann heim í kvöld. Kröftugur segulstormur geisar um jörðina vegna kórónugoss sem varð á sólinni fyrir þremur dögum og varpaði orkuríkum sólvindi til jarðarinnar.

Geimferðin gagnrýnd: „Mér býður við þessu“
Áhöfn geimfarsins New Shepard, sem skotið var á loft í gær, braut blað í sögunni þar sem hún var einungis skipuð konum. Margir fögnuðu tímamótunum en aðrir hafa gagnrýnt geimskotið sem hégómafullt, tilgangslaust og sóun á auðlindum.

Bein útsending: Katy Perry fer út í geim
Stórstjarnan Katy Perry verður hluti áhafnar sögulegs geimflugs Blue Origin, geimflugfélags Jeffs Bezos í dag. Flugið verður sögulegt fyrir þær sakir að um borð í geimflauginni verða eingöngu konur.

Þýsk geimflaug hrapaði eftir hálfa mínútu
Þýsku geimflauginni Spectrum var skotið á loft frá norsku eyjunni Andoja í dag. Flaugin, sem var tóm, tókst á loft en þó aðeins í um þrjátíu sekúndur, áður en hún hrapaði í hafið.

Bein útsending: Deildarmyrkvi á sólu
Deildarmyrkvi á sólu verður frá klukkan tíu til hádegis. Þegar myrkvinn nær hámarki upp úr ellefu hylur tunglið rúmlega 75 prósent af sólinni á sunnanverðum Vestfjörðum.

Góður möguleiki á að sjá deildarmyrkva
Deildarmyrkvi á sólu verður í dag. Hann verður vel sjáanlegur á Vesturlandi þar sem bjartviðri er spáð meðan hann gengur yfir.

Lokaæfing fyrir almyrkva
Deildarmyrkvi á sólu mun sjást vel um allt land í fyrramálið. Sævar Helgi Bragason, Stjörnu-Sævar, segir undirbúning vera að hefjast fyrir almyrkvann sem verður í ágúst á næsta ári. Þá muni landið væntanlega fyllast af túristum og álag aukast á innviði.

Sólmyrkvi á laugardaginn
Deildarmyrkvi á sólu verður vel sjáanlegur frá Íslandi á laugardag, verði veður hagstætt. Þetta er síðasti deildarmyrkvinn sem sýnilegur er hér á landi fyrir almyrkvann í ágúst 2026.

Myndaði segulljós Neptúnusar í fyrsta skipti
Óvenjuleg segulljós Neptúnusar hafa verið mynduð í fyrsta skipti með James Webb-geimsjónaukanum. Athuganirnar leiddu einnig í ljós að efsti hluti lofthjúps reikistjörnunnar hefur kólnað um hundruð gráða.

Fundu stærstu lífrænu sameindirnar hingað til í gömlu sýni
Könnunarfarið Curiosity, sem er statt á yfirborð Mars, hefur fundið stærstu lífrænu sameindirnar hingað til. Fundurinn gefur til kynna að líffræðilegir ferlar hafi verið komnir lengra á Mars en áður hefur verið talið.

Willams og Wilmore komin aftur til jarðar
Geimfararnir Suni Williams og Butch Wilmore lentu örugglega undan ströndum Flórída í Bandaríkjunum í nótt, eftir níu mánaða dvöl í Alþjóðlegu geimstöðinni (ISS).

Geimfararnir snúa aftur eftir níu mánaða dvöl í geimnum
Geimfararnir Sunita Williams og Barry „Butch“ Wilmore eru loksins á leið heim eftir að hafa verið föst um borð í Alþjóðlegu geimstöðinni (ISS) í níu mánuði.

Níu mánaða geimferð sem átti að taka átta daga lýkur
Starfsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna og SpaceX skutu í gærkvöldi fjórum geimförum af stað til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar, þar sem þeir eiga að leysa af hólmi tvo geimfara sem verið nokkurs konar strandaglópar í geimstöðinni í níu mánuði.

Íbúar á austari hluta landsins gætu séð til tunglmyrkvans
Ólíklegt er að íbúar á höfuðborgarsvæðinu og vestari hluta landsins muni geta séð tunglmyrkvann sem á sér stað snemma í fyrramálið. Almyrkvinn verður í hámarki klukkan 6:59 í fyrramálið en sést ekki í heild sinni frá Íslandi þar sem tunglið sest áður en honum lýkur.

Almyrkvi á tungli snemma á föstudagsmorgun
Íslendingar geta séð hluta af almyrkva á tungli ef veður leyfir snemma að morgni föstudags. Almyrkvinn verður í hámarki klukkan 6:29 um morguninn en sést ekki í heild sinni frá Íslandi þar sem tunglið sest áður en honum lýkur.

Annað Starship sprakk í loft upp
Annað tilraunaskot Starship-geimskips SpaceX í röð misheppnaðist í gærkvöldi. Geimskipið sprakk skömmu eftir geimskotið og dreifðist brakið úr því í háloftunum yfir Flórída og Karíbahafinu þar sem það brann, með tilheyrandi sjónarspili.

Katy Perry fer út í geim
Stórstjarnan Katy Perry verður hluti áhafnar sögulegs geimflugs Blue Origin, geimflugfélags Jeffs Bezos. Flugið verður sögulegt fyrir þær sakir að um borð í geimflauginni verða eingöngu konur.