Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Samúel Karl Ólason skrifar 29. september 2026 15:41 Töluveiknaðar myndir af því hvernig geimstöðin gæti litið út, til að byrja með. ESA Geimvísindastofnun Evrópu (ESA) hefur veitt tveimur teymum evrópskra fyrirtækja samninga sem snúast um undirbúning evrópskrar geimstöðvar á braut um jörðina. Verkefnið er liður í skipulagningu forsvarsmanna ESA fyrir framtíð stofnunarinnar, eftir að Alþjóðlega geimstöðin verður tekin úr notkun.
Teymin tvö eiga að rannsaka fýsileika þess að Evrópa geri út eigin geimstöð á lágri sporbraut um jörðina eftir að Alþjóðlega geimstöðin verður komin á hafsbotn og Bandaríkjamenn farnir að einblína á tunglið. Alþjóðlega geimstöðin hefur verið á braut um jörðu frá árinu 1998 en síðan þá hefur hún stækkað verulega í gegnum árin. Upprunalega átti hún að vera í notkun í einungis fimmtán ár en nú stendur til að láta hana hrapa til jarðar árið 2031. Þá á hún að lenda á afviknum stað í Kyrrhafinu, þar sem geimrusl er reglulega látið lenda. Staðurinn þykir hentugur til slíks þar sem rúmir 2.700 kílómetrar eru í næstu mannabyggð. Bandaríkjamenn eru staðráðnir í því að koma í staðinn upp varanlegri bækistöð á yfirborði tunglsins. Í tilkynningu á vef ESA er haft eftir yfirmanni könnunardeildar stofnunarinnar að Evrópa hafi byggt upp heimsklassa getu í geimferðum á undanförnum áratugum. „Við stöndum nú frammi fyrir því tækifæri að móta sameiginlega framtíð okkar og í senn standa vörð um gæði verkfræðinga okkar og iðnaðar,“ segir Daniel Neuenschwander. Hann segir að áðurnefndir samningar og rannsóknarvinnan sem þeim fylgir eigi að hjálpa til við að leggja línurnar að framtíðinni og sjá hvernig evrópskur iðnaður geti stutt við geimstörfin og opnað á ný tækifæri. Annar hópanna umræddu er leiddur af Airbus Defence and Space og hinn af OHB. Rannsóknir þeirra eiga að byggja á samstarfinu við rekstur Alþjóðlegu geimstöðvarinnar. Vilja stærri rullu í geimnum Innan Evrópu á sér stað nokkur uppbygging hvað varðar getu til að koma farmi út í geim. Heimsálfan stendur þó ekki nærri Bandaríkjunum í þeim efnum, og þá sérstaklega bandaríska fyrirtækinu SpaceX. Sjá einnig: Starship á sporbraut í fyrsta sinn Í yfirlýsingu ESA segir að evrópsk geimstöð á braut um jörðu myndi færa evrópskum aðilum tækifæri til að spila stærri rullu þegar kemur að öllu starfi á braut um jörðu. Þannig væri hægt að byggja upp tæknigetu og þekkingu fyrir frekari könnunarleiðangra lengra út í geim.
Geimurinn Alþjóðlega geimstöðin Tækni SpaceX Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Fleiri fréttir Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Sjá meira