Stefán Teitur skoraði í óvæntum sigri á Sverri Inga og félögum Silkeborg vann heldur óvæntan 3-0 heimasigur á Midtjylland í eina leik dagsins í dönsku úrvalsdeild karla. Stefán Teitur Þórðarson var meðal markaskorara. Fótbolti 29. apríl 2024 19:00
Nær allir leikmenn Man Utd til sölu fyrir rétt verð Flestir af stærstu fjölmiðlum Bretlandseyja hafa staðfest að enska knattspyrnufélagið Manchester United sé tilbúið að hlusta á tilboð í nærri alla leikmenn liðsins, þar á meðal Marcus Rashford. Enski boltinn 29. apríl 2024 17:15
Mikil virðing fyrir Orra: Hárið stundum flækt en alltaf bros á vör Einn af liðsfélögum Orra Steins Óskarssonar hjá FC Kaupmannahöfn hrósar Íslendingnum unga í hástert eftir þrennuna um helgina, og spáir honum bjartri framtíð. Fótbolti 29. apríl 2024 13:01
Hrósar Alberti en Inter þarf að safna fyrir honum Nýkrýndir Ítalíumeistarar Inter eru með Albert Guðmundsson í sigtinu og stjórnandi hjá félaginu viðurkennir áhuga. Inter gæti hins vegar þurft að ná góðri sölu til að hafa efni á Alberti. Fótbolti 29. apríl 2024 08:02
Þjálfari Orra Steins sáttur: Hann hefur haldið kjafti Jacob Neestrup, þjálfari Danmerkurmeistara FC Kaupmannahafnar, var eðlilega sáttur með frammistöðu Orra Steins Óskarssonar í gær þegar FCK lagði AGF 3-2 þökk sé þrennu frá Orra. Fótbolti 29. apríl 2024 07:02
Hundraðasti sigur Arteta kom gegn erkifjendunum: „Stoltur af leikmönnunum“ Mikel Arteta var mjög stoltur af leikmönnum sínum eftir að Arsenal lagði Tottenham Hotspur í því sem var hann 100. sigur í ensku úrvalsdeildinni. Sigurinn lyfti Arsenal á topp deildarinnar. Enski boltinn 28. apríl 2024 23:30
Hetjan Orri Steinn eftir þrennuna: Besta tilfinning í heimi Það var lukkulegur Orri Steinn Óskarsson sem ræddi við fjölmiðla eftir ótrúlegan 3-2 sigur FC Kaupmannahafnar á AGF í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Orri Steinn kom inn af bekknum síðari hálfleik og skoraði öll mörk FCK í leiknum. Fótbolti 28. apríl 2024 22:30
„Ekki boðlegt á þessu getustigi“ „Við gáfum þeim of auðvelt aðgengi að markinu okkar í fyrri hálfleik og það er ekki boðlegt á þessu getustigi,“ sagði Ange Postecoglou, þjálfari Tottenham Hotspur, eftir tap sinna manna gegn erkifjendunum í Arsenal þegar liðin mættust í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu. Enski boltinn 28. apríl 2024 21:45
Fowler hjálpaði Man City að styrkja stöðu sína á toppnum Kvennalið Manchester City er nú með sex stiga forystu á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. Englandsmeistarar Chelsea eru sex stigum á eftir toppliðinu og eiga tvo leiki til góða þegar skammt er til loka tímabilsins. Enski boltinn 28. apríl 2024 19:50
Lærisveinar Freys lifa í voninni KV Kortrijk, lið Freys Alexanderssonar, vann lífsnauðsynlegan sigur í belgísku úrvalsdeild karla í fótbolta. Liðið er í bullandi fallbaráttu en sigurinn heldur vonum liðsins um að spila áfram í efstu deild á lífi. Fótbolti 28. apríl 2024 19:21
„Veit ekki af hverju ég ætti að vera að láta mig detta“ Ari Sigurpálsson átti góðan leik þegar Víkingur Reykjavík vann 4-2 heimasigur á KA í Bestu deild karla. Ari bjóst við erfiðum leik sem varð raunin. Íslenski boltinn 28. apríl 2024 18:45
Abraham bjargaði stigi sem gæti skipt Rómverja sköpum Rómverjar gerðu í dag 2-2 jafntefli við Napolí þökk sé marki Tammy Abraham þegar ein mínúta var til loka venjulega leiktíma. Stigið gæti skorið úr um hvort Rómverjar komist í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð eður ei. Fótbolti 28. apríl 2024 18:31
Þrenna Orra Steins hélt titilvonum FCK á lífi Hinn 19 ára gamli Orri Steinn Óskarsson reyndist hetja FC Kaupmannahafnar í dag þegar hann kom inn af bekknum og skoraði öll mörkin í 3-2 sigri liðsins á AGF. Er þetta hans fyrsta þrenna í dönsku úrvalsdeildinni. Fótbolti 28. apríl 2024 18:05
Meistarar Man City halda í við topplið Arsenal Manchester City vann 2-0 útisigur á Nottingham Forest í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeild karla. Man City er því aðeins stigi á eftir Arsenal og með leik til góða þegar Skytturnar eiga aðeins þrjá leiki eftir af tímabilinu. Enski boltinn 28. apríl 2024 17:30
Davíð Smári: Ekki okkar besta frammistaða Vestri vann annan leik sinn í röð í Bestu deild karla er liðið tók á móti HK í Laugardalnum, nýjum tímabundnum heimavelli Ísfirðinga. Sigurinn vannst 1-0 fyrir Vestra en það var Benedikt Waren sem skoraði markið sem skilur liðin að. Íslenski boltinn 28. apríl 2024 17:16
„Björn Daníel sagði mér að skjóta“ Kjartan Kári Halldórsson, leikmaður FH, var sáttur í leikslok eftir að lið hans bar sigur úr býtum gegn ÍA í miklum baráttuleik í Bestu deild karla í fótbolta. Lokatölur í Akraneshöllinni 0-1. Íslenski boltinn 28. apríl 2024 16:55
Lyon í úrslit Meistaradeildar Evrópu Franska stórliðið Lyon er komið í úrslit Meistaradeildar Evrópu kvenna í knattspyrnu eftir sigur á París Saint-Germain í undanúrslitum. Lyon mætir Barcelona í úrslitaleiknum sem fram fer Estadio San Mamés-vellinum í Bilbao á Spáni þann 25. maí næstkomandi. Fótbolti 28. apríl 2024 16:51
Arnór Ingvi skoraði það sem reyndist sigurmarkið Arnór Ingvi Traustason skoraði það sem reyndist sigurmark Norrköping í 2-1 útisigri liðsins á BK Häcken í sænsku úrvalsdeild karla. Fótbolti 28. apríl 2024 16:30
Tuchel sár vegna ummæla Hoeness Thomas Tuchel, knattspyrnustjóri Bayern München, var langt frá því að vera sáttur með ummæli Uli Hoeness, heiðursforseta félagsins. Fótbolti 28. apríl 2024 14:30
Dúndurbyrjun hjá Gísla og félögum Íslendingaliðið Halmstad komst upp í 2. sæti sænsku úrvalsdeildarinnar með sigri á Varnamo, 1-3, í dag. Góð byrjun lagði grunninn að sigri gestanna. Fótbolti 28. apríl 2024 13:56
Hákon og félagar upp í þriðja sætið Hákon Arnar Haraldsson og félagar í Lille komust upp í 3. sæti frönsku úrvalsdeildarinnar með 1-2 útisigri á Metz í dag. Fótbolti 28. apríl 2024 12:59
Meistararnir snöggir að nýta sér liðsmuninn Þrátt fyrir að hafa tryggt sér ítalska meistaratitilinn á mánudaginn gaf Inter ekkert eftir þegar liðið tók á móti Torino í ítölsku úrvalsdeildinni í dag. Meistararnir unnu 2-0 sigur. Fótbolti 28. apríl 2024 12:27
„Alveg ljóst að fínni blæbrigði knattspyrnurnnar þurfa að víkja“ Halldór Árnason, þjálfari Breiðabliks, segir leikmenn sína staðráðna í því að bæta fyrir svekkjandi tap fyrir Keflavík í miðri viku þegar liðið sækir KR heim í Bestu deild karla í kvöld. Hann segist þó þurfa að aðlaga leikplan liðsins að slæmum grasvelli. Íslenski boltinn 28. apríl 2024 12:02
„Versta ákvörðun í sögu Meistaradeildarinnar“ Emma Hayes, knattspyrnustjóri Chelsea, sparaði ekki stóru orðin eftir að liðið féll úr leik fyrir Barcelona í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í gær. Fótbolti 28. apríl 2024 10:01
Ten Hag segir sitt lið þróttmikið og eitt af þeim skemmtilegri í deildinni Manchester United gerði 1-1 jafntefli við Burnley á heimavelli sínum Old Trafford í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta í gær, laugardag. Erik ten Hag, þjálfari liðsins, fór ekki beint í frasabókina eftir leik en viðtal hans hefur þó vakið talsverða athygli. Enski boltinn 28. apríl 2024 07:00
Klopp: Verð hamingjusamur ef rétt ákvörðun er tekin Jürgen Klopp, þjálfari Liverpool, var heldur súr eftir 2-2 jafntefli sinna manna gegn West Ham United í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta fyrr í dag. Hann ræddi við fjölmiðla um leikinn og mögulegan arftaka sinn, Arne Slot. Enski boltinn 27. apríl 2024 19:15
Meistaraþynnka Leverkusen entist ekki og liðið enn taplaust Þýskalandsmeistarar Bayer Leverkusen lentu 0-2 undir gegn Stuttgart í dag en tókst að bjarga sér fyrir horn. Lokatölur 2-2 og Leverkusen því enn taplaust í öllum keppnum á leiktíðinni. Fótbolti 27. apríl 2024 19:00
Evrópumeistarar Barcelona sneru dæminu við og eru komnar í úrslit Barcelona er komið í úrslit Meistaradeildar Evrópu kvenna eftir 2-0 sigur á Chelsea í Lundúnum í dag, laugardag. Sneru Börsungar dæminu við eftir að tapa óvænt á heimavelli. Fótbolti 27. apríl 2024 18:35
Uppgjör og viðtöl: Breiðablik - Tindastóll 3-0 | Sannfærandi sigur Blika á kraftmiklum Stólum Breiðablik er enn taplaust í Bestu deild kvenna í fótbolta eftir góðan sigur á Tindastól í dag. Á 82. mínútu var leikurinn í járnum og Tindastóll nær því að jafna en hitt. Á örfáum sekúndum snerust örlög Tindastóls við og öflugt lið Breiðabliks komið í 3-0 forystu. Íslenski boltinn 27. apríl 2024 18:10
Guðrún skoraði og með fullt hús stiga á toppnum Guðrún Arnardóttir skoraði fyrsta mark Rosengård í 3-0 sigri liðsins á AIK í sænsku úrvalsdeild kvenna í fótbolta. Þá lagði Þórdís Elva Ágústsdóttir upp sigurmark Växjö á Linköping. Fótbolti 27. apríl 2024 17:45