

Fótbolti
Allt það helsta sem gerist í fótbolta um víða veröld.

Mbappé með slæmar fréttir fyrir mótherja Real Madrid
Franski framherjinn Kylian Mbappé segist vera aftur kominn í sitt besta form og hann sýndi það með því að skora tvívegis í 4-1 sigri Real Madrid á Las Palmas í spænsku deildinni í gær. Slæmu fréttirnar fyrir mótherja spænska stórliðsins er að sá franski telur sig nú vera búinn að aðlagast nýja félaginu sínu.

Arnar fer með Ísland til Skotlands
Karlalandslið Íslands í fótbolta mun mæta Skotlandi í vináttulandsleik á Hampden Park í Glasgow þann 6. júní.

Sölvi tekinn við Víkingum með Viktor og Aron til aðstoðar
Sölvi Geir Ottesen var í dag kynntur sem nýr aðalþjálfari Víkings í fótbolta karla. Beðið hefur verið eftir þessu frá því að ljóst varð að Arnar Gunnlaugsson hætti til að taka við íslenska landsliðinu.

Seldu treyjur Orra á uppboði fyrir fjölskyldu Maciej
Karlalið Fylkis í fótbolta seldi tvær treyjur frá landsliðsmanninum Orra Óskarssyni fyrir samtals hálfa milljón króna, á uppboði á herrakvöldi félagsins á dögunum. Þetta kemur fram á Facebook-síðu Fylkismanna.

Elísabet tekin við Belgum
Elísabet Gunnarsdóttir hefur verið ráðin þjálfari kvennalandsliðs Belgíu í fótbolta. Samningur hennar við belgíska sambandið gildir fram í júlí 2027.

Svona hjálpaði Sara fótboltakonum að geta valið bæði fjölskyldu og fótbolta
Alþjóðaleikmannasamtökin vöktu athygli á því á miðlum sínum hvað knattspyrnukonur heimsins eigi íslensku knattspyrnukonunni Söru Björk Gunnarsdóttur mikið að þakka.

Fowler með sína kenningu um þá samningslausu hjá Liverpool
Liverpool goðsögnin Robbie Fowler hefur sína hugmynd um af hverju sé svona lítið sé að frétta af samningamálum þríeykisins Virgil van Dijk, Mohamed Salah og Trent Alexander-Arnold.

Rotta hljóp um á grasinu á Old Trafford í miðjum leik
Það er ekki aðeins leikmannahópur og lið Manchester United sem þarf nauðsynlega á endurnýjun að halda.

Neymar á heimleið?
Brasilíski knattspyrnumaðurinn Neymar Jr. virðist mögulega vera á leið aftur til uppeldisfélags síns, Santos í Brasilíu, en félagið hefur lagt fram formlega beiðni til Al Hilal um að fá leikmanninn að láni.

„Við erum mögulega lélegasta lið í sögu Manchester United“
Ruben Amorim, stjóri Manchester United, var ómyrkur í máli þegar hann ræddi við blaðamenn eftir 1-3 tap á heimavelli gegn Brighton í dag. Hann bauð sjálfur upp á fyrirsögn dagsins með hreinskilni sinni.

Real Madrid á toppinn eftir þægilegan sigur
Real Madrid tyllti sér aftur á topp spænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag eftir þægilegan sigur 4-1 sigur á Las Palmas.

Bjarki Steinn í fyrsta sinn í byrjunarliði Venezia
Tveir Íslendingar voru í byrjunarliði Venezia sem gerði 1-1 jafntefli við Parma á útivelli í ítölsku úrvalsdeildinni í dag.

Áttundi sigur Forest í síðustu níu leikjum
Nottingham Forest lagði botnlið Southampton að velli, 3-2, í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Yfirlýsing frá City með stórsigri
Englandsmeistarar Manchester City áttu ekki í neinum vandræðum með nýliða Ipswich í ensku úrvalsdeildinni í dag en City-menn léku við hvurn sinn fingur og unnu að lokum öruggan og þægilegan 6-0 sigur.

Onana með skelfileg mistök þegar United tapaði enn og aftur fyrir Brighton
Þriðja tímabilið í röð vann Brighton sigur á Manchester United á Old Trafford í ensku úrvalsdeildinni. Lokatölur 1-3, Mávunum í vil.

Cecilía hélt enn einu sinni hreinu og Inter vann
Inter minnkaði forskot Juventus á toppi ítölsku úrvalsdeildarinnar niður í fjögur stig með 1-0 sigri á Como á heimavelli. Cecilía Rán Rúnarsdóttir var á sínum stað í marki Inter.

Draumaendurkoma hjá Moyes á Goodison Park
Everton vann 3-2 sigur á Tottenham í fyrsta leiknum undir stjórn Davids Moyes á Goodison Park í tólf ár.

Misstu niður forystu þrátt fyrir að vera manni fleiri
Ekkert gengur hjá Alberti Guðmundssyni og félögum í Fiorentina þessi dægrin. Í dag gerði liðið 1-1 jafntefli við Torino í ítölsku úrvalsdeildinni þrátt fyrir að vera manni fleiri í tæpan klukkutíma.

Fyrrverandi landsliðsmaður Englands mætir KSI í boxbardaga
Wayne Bridge, sem lék 36 landsleiki fyrir England á sínum tíma, mætir YouTube-stjörnunni KSI í boxbardaga í lok mars.

Segir Liverpool besta lið heims
Thomas Frank, knattspyrnustjóri Brentford, hrósaði Liverpool í hástert eftir leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Antony á leið til Betis
Brasilíumaðurinn Antony er á förum frá Manchester United og á leið til Real Betis.

Fjármagnaði leikmannakaup Wimbledon með tölvuleikjaspilun
Félagaskipti í ensku D-deildinni rata ekki oft í íslenska fjölmiðla, nema kannski þegar íslenskir leikmenn eiga í hlut, en sagan á bakvið hvernig Marcus Browne varð leikmaður Wimbledon er lyginni líkust og vert að greina frá henni nánar.

Brynjólfur Willumsson á skotskónum í tapleik Groningegn
Brynjólfur Andersen Willumsson og félagar í Groningen þurftu að sætta sig við svekkjandi 2-1 tap gegn GA Eagles í hollensku úrvalsdeildinni í dag en sigurmarkið kom ekki fyrr en í uppbótartíma.

Sex í röð hjá Napólí
Napólí vann dýrmætan sigur í toppbaráttunni í Seríu A í kvöld þegar liðið sótti þrjú stig í greipar Atalanta.

Juventus lagði AC Milan
Juventus er áfram taplaust í Seríu A á Ítalíu en liðið lagði AC Milan 2-0 í dag.

Ollie Watkins gerði Arsenal skráveifu
Arsenal tapaði tveimur dýrmætum stigum í toppbaráttunni í ensku úrvalsdeildinni í kvöld þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við Aston Villa.

Sjöunda tap Leicester í röð
Ruund van Nistelrooy og lærisveinar hans í Leicester eiga ekki sjö dagana sæla í ensku úrvalsdeildinni þessa dagana en liðið hefur ekki unnið deildarleik síðan 3. desember á síðasta ári. Liðið tapaði í dag á heimavelli gegn Fulham 0-2.

Núnez með tvö mörk í uppbótartíma
Darwin Núnez skoraði bæði mörk Liverpool í uppbótartíma í 0-2 sigri á Brentford í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Jónatan Ingi tryggði Val sigur á Fram
Valur er með fullt hús stiga eftir fyrstu tvo leiki sína í B-riðli Reykjavíkurmóts karla í fótbolta. Valur sigraði Fram, 1-0, í dag.

Kluivert með þrennu í fyrsta leik dagsins
Eftir sex sigra í röð í ensku úrvalsdeildinni tapaði Newcastle United fyrir Bournemouth, 1-4, á St James' Park í dag. Justin Kluivert skoraði þrennu fyrir gestina sem eru taplausir í tíu deildarleikjum í röð.