Jakob Snær: Vonandi byrjunin á því sem við ætlum að sýna í sumar Jakob Snær Árnason, leikmaður KA, kom inn á sem varamaður í 4-2 sigri gegn Fram á Greifavellinum á Akureyri í dag. Staðan var 2-2 á 85. mínútu en þá skoraði Jakob þegar boltinn fór af honum og í markið eftir skot frá Þorra Mar Þórissyni. Hann innsiglaði svo sigur KA með marki í uppbótartíma eftir skyndisókn. Íslenski boltinn 29. maí 2023 19:01
Stýrði Napoli til langþráðs sigur en hættir samt í sumar Luciano Spalletti verður án efa í guðatölu hjá stuðningsfólki Napoli eftir að hafa stýrt liðinu til sigurs í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Hann mun þó ekki þjálfa liðið á næstu leiktíð. Fótbolti 29. maí 2023 17:45
FC Kaupmannahöfn danskur meistari annað árið í röð Íslendingalið FC Kaupmannahöfn er danskur meistari annað árið í röð eftir sigur á Viborg þar sem Nordsjælland tapaði 5-1 fyrir Bröndby. FCK er því tvöfaldur meistari þar sem liðið varð á dögunum bikarmeistari. Fótbolti 29. maí 2023 17:01
Næstu tveir sólarhringar mikilvægir í baráttu Rico Fjölskylda Sergio Rico, markmanns franska úrvalsdeildarfélagsins Paris Saint-Germain, sem nú liggur inn á gjörgæsludeild á sjúkrahúsi á Spáni, segir næstu tvo sólarhringa skipta höfuðmáli í baráttu leikmannsins. Fótbolti 29. maí 2023 14:31
Lærisveinar Freys unnu gríðarlega mikilvægan sigur Lærisveinar Freys Alexanderssonar í Lyngby unnu í dag gríðarlega mikilvægan sigur á AaB í fallbaráttu dönsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu. Lyngby á möguleika á því að tryggja sér áframhaldandi veru í dönsku úrvalsdeildinni fyrir lokaumferð deildarinnar. Fótbolti 29. maí 2023 14:04
Ronaldo meðal stjarna Portúgal sem mæta til Íslands Roberto Martinez, landsliðsþjálfari Portúgal, hefur opinberað landsliðshópinn sem leikur gegn Íslandi og Bosníu í júní. Cristiano Ronaldo er í leikmannahópnum og mun mæta á Laugardalsvöll. Fótbolti 29. maí 2023 12:36
Alfreð í „skammarkróknum“ en Freyr er með plan A, B og C til reiðu Alfreð Finnbogason verður fjarri góðu gamni í dag er hann tekur út leikbann í gífurlega mikilvægum leik Lyngby gegn AaB. Sævar Atli Magnússon snýr hins vegar aftur í lið Lyngby og Freyr Alexandersson, þjálfari liðsins segist vera klár með plan A, B og C. Fótbolti 29. maí 2023 10:59
Biðst afsökunar eftir að myndband af honum fór í dreifingu Steven Berghuis, leikmaður hollenska úrvalsdeildarfélagsins Ajax, hefur beðist afsökunar eftir að myndband, sem sýndi hann slá til manns fyrir utan heimavöll Ajax, leit dagsins ljós. Fótbolti 29. maí 2023 10:31
Hetja Everton segist ekki vera nein hetja Abdoulaye Doucoure var hetja dagsins þegar hann skoraði eina mark leiksins í 1-0 sigri Everton gegn Bournemouth í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Markið tryggði liðinu ekki bara sigur í leiknum, heldur einnig áframhaldandi veru í deild þeirra bestu á næstu leiktíð. Fótbolti 28. maí 2023 23:00
Umfjöllun og viðtöl: FH - HK 4-3 | FH-ingar upp fyrir HK eftir sjö marka leik Liðin í fjórða og fimmta sæti deildarinnar mættust í kvöld þegar FH tók á móti HK í 9. umferð Bestu deildar karla. Eftir spennandi leik þar sem mörkunum rigndi þá sigruðu heimamenn í FH 4-3. Fótbolti 28. maí 2023 22:56
Heimir: Við spiluðum fyrir fólkið Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, var að vonum hæstánægður með 4-3 sigur FH á HK í Kaplakrika nú í kvöld. FH lenti þrisvar sinnum undir í leiknum en náði að jafna í öll skiptin og það var svo Úlfur Ágúst Björnsson sem skoraði sigurmarkið FH-inga hér í kvöld. Fótbolti 28. maí 2023 21:59
Giroud gerði út um Meistaradeildarvonir Juventus Olivier Giroud skoraði eina mark leiksins er AC Milan vann mikilvægan 1-0 útisigur gegn Juventus í næstsíðustu umferð ítölsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í kvöld. Fótbolti 28. maí 2023 20:41
„Við stýrðum þessum leik“ Hermann Hreiðarsson, þjálfari ÍBV, var afar niðurlútur eftir 2-1 tap á móti Fylki í Árbænum í dag. Þetta er fimmta tap Eyjamanna í Bestu deildinni og virðist lítið ganga hjá Vestmanneyingum um þessar mundir. Fótbolti 28. maí 2023 20:08
Börsungar unnu stórsigur | Atlético Madrid heldur í við nágranna sína Níu leikir í næstsíðustu umferð spænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu voru leiknir samtímis í dag. Barcelona vann öruggan 3-0 sigur gegn Mallorca og Atlético Madrid getur enn stolið öðru sætinu af nágrönnum sínum í Rea Madrid eftir 2-1 sigur gegn Real Sociedad. Fótbolti 28. maí 2023 19:00
Sveinn Aron á skotskónum í toppslagnum Sveinn Aron Guðjohnsen skoraði fyrsta mark Elfsborg er liðið vann mikilvægan 3-0 sigur gegn Malmö í toppslag sænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag. Fótbolti 28. maí 2023 18:00
Manchester United gulltryggði þriðja sætið Manchester United endar í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir 2-1 sigur gegn Fulham í lokaumferð deildarinnar í dag. Fótbolti 28. maí 2023 17:44
Doucoure hélt Everton uppi | Leeds og Leicester féllu Vísir var með beina textalýsingu frá gangi mála í lokaumferðinni í ensku úrvalsdeildinni. Mesta spennan var í botnbaráttunni þar sem Everton, Leicester City og Leeds United kepptust um að forðast fallið. Fótbolti 28. maí 2023 17:31
Sjáðu markið: Valgeir með gullfallegt mark gegn Helsingborg Valgeir Valgeirsson skoraði eina mark Örebro í 1-1 jafntefli liðsins við Helsingborg í næstefstu deild Svíþjóðar í dag og í sænsku úrvalsdeildinni vann Kalmar Íslendingaslaginn gegn Norrköping. Fótbolti 28. maí 2023 14:59
Glódís á skotskónum er Bayern tryggði sér titilinn Glódís Perla Viggósdóttir skoraði eitt marka Bayern Munchen er liðið vann 11-1 sigur á Potsdam í efstu deild Þýskalands í dag og tryggði sér um leið þýska meistaratitilinn í knattspyrnu. Fótbolti 28. maí 2023 13:49
Markvörður PSG liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi á Spáni Sergio Rico, markvörður franska úrvalsdeildarfélagsins Paris Saint-Germain, liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi í Sevilla á Spáni eftir að hafa slasast alvarlega eftir fall af hestbaki fyrr í dag. Fótbolti 28. maí 2023 13:18
Ólík örlög Íslendinganna í MLS-deildinni í nótt Þrír Íslendingar komu við sögu í bandarísku MLS-deildinni í knattspyrnu í nótt, tveir þeirra voru í sigurliði. Fótbolti 28. maí 2023 11:46
Sjáðu myndbandið: Grét yfir stuðningi fólksins á erfiðri stundu Borussia Dortmund horfði í gær á þýska meistaratitilinn í knattspyrnu renna sér úr greipum er liðið tapaði stigum gegn Mainz í lokaumferð deildarinnar á meðan að Bayern Munchen kláraði sitt verkefni gegn Köln og tryggði sér titilinn. Fótbolti 28. maí 2023 11:01
Al-Nassr og Ronaldo úr leik í titilbaráttunni Al-Nassr verður ekki sádi-arabískur meistari í knattspyrnu þetta tímabilið. Það varð ljóst eftir 1-1 jafntefli liðsins gegn Al-Ettifaq. Fótbolti 28. maí 2023 10:30
Þjálfari Dagnýjar hjá West Ham lætur gott heita Paul Konchesky hefur yfirgefið starf sitt sem þjálfari kvennaliðs West Ham United í knattspyrnu. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá félaginu. Fótbolti 28. maí 2023 09:23
Draumkennd byrjun lagði grunninn að góðum sigri Inter Milan Inter Milan vann í kvöld mikilvægan 3-2 sigur á Atalanta er liðin mættust í ítölsku úrvalsdeildinni. Fótbolti 27. maí 2023 21:31
PSG franskur meistari annað tímabilið í röð Paris Saint-Germain tryggði sér í kvöld Frakklandsmeistaratitilinn í knattspyrnu með 1-1 jafntefli gegn Strasbourg. Fótbolti 27. maí 2023 20:47
Karaktersigur Real Madrid gegn Sevilla Leikmenn Real Madrid sýndu í kvöld mikinn karakter er liðið vann endurkomusigur á Sevilla í spænsku úrvalsdeildinni. Lokatölur á Ramón Sánchez Pizjuán, 2-1 sigur Real Madrid. Fótbolti 27. maí 2023 19:30
Fiorentina með magnaða endurkomu gegn lærisveinum Mourinho Fiorentina vann í dag magnaðan endurkomusigur á Roma er liðin mættust í ítölsku úrvalsdeildinni. Lokatölur á Stadio Artemio Franchi leikvanginum 2-1 sigur Fiorentina. Fótbolti 27. maí 2023 18:24
Aron lagði upp sigurmark Sirius Aron Bjarnason, leikmaður sænska úrvalsdeildarliðsins Sirius, lagði upp sigurmark liðsins í leik gegn Brommapojkarna í dag. Fótbolti 27. maí 2023 17:45
Ingibjörg hafði betur gegn Selmu Sól í Íslendingaslag Valerenga hafði í dag betur gegn Rosenborg í Íslendinga- og toppslag norsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu. Fótbolti 27. maí 2023 16:55