Twitter eftir leik: „Okkar allra besti landsliðsmaður“ Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu vann öruggan 4-0 sigur gegn Liechtenstein í undankeppni EM 2024 í kvöld. Eins og við var að búast fylgjast íslenskir áhorfendur vel með og láta skiðanir sínar í ljós á samfélagsmiðlinum X, sem áður hét Twitter. Fótbolti 16. október 2023 20:45
Nik tekur við Blikum Nik Chamberlain hefur látið af störfum sem þjálfari Þróttar í Bestu deild kvenna í knattspyrnu. Hann er í þann mund að taka við sem þjálfari kvennaliðs Breiðabliks. Íslenski boltinn 16. október 2023 20:38
Sevilla hefur áhuga á Greenwood Talið er að enski framherjinn Mason Greenwood vilja skipt alfarið yfir til Getafe þar sem hann er á láni frá Manchester United. Talið er að Sevilla ætli að veita Getafe samkeppni um leikmanninn sem spilaði hvorki né æfði í fleiri mánuði eftir að þáverandi kærasta hans sagði hann hafa beitt sig ítrekuðu líkamlegu ofbeldi og birti myndir því til sönnunar. Fótbolti 16. október 2023 20:00
Sú markahæsta riftir samningi sínum við Fjölni Alda Ólafsdóttir var markahæst allra á Íslandi á ný afstaðinni leiktíð ef horft er í meistaraflokks knattspyrnu á Íslandi. Hún hefur nú rift samningi sínum við Fjölni og gæti farið í nýtt lið á næstu dögum. Íslenski boltinn 16. október 2023 19:30
Gylfi Þór markahæstur Gylfi Þór Sigurðsson er orðinn markahæsti leikmaður í sögu íslenska karlalandsliðsins. Fótbolti 16. október 2023 19:07
Austurríki á EM Austurríki er komið á EM karla í knattspyrnu sem fram fer í Þýskalandi næsta sumar eftir 1-0 útisigur á Aserbaísjan í kvöld. Fótbolti 16. október 2023 18:05
Byrjunarlið Íslands: Gylfi Þór snýr aftur í byrjunarliðið Byrjunarlið Íslands fyrir leik kvöldsins gegn Liechtenstein í undankeppni EM karla í knattspyrnu sem fram fer í Þýskalandi næsta sumar er klárt. Gylfi Þór Sigurðsson kemur inn í byrjunarliðið eftir að hafa komið inn af bekknum í síðasta leik. Fótbolti 16. október 2023 17:34
Alda skoraði langmest allra á Íslandi sumarið 2023 Knattspyrnukonan Alda Ólafsdóttir var án nokkurs vafa markadrottning sumarsins 2023 í íslenskum fótbolta. Íslenski boltinn 16. október 2023 16:00
Landsliðsstrákar kepptu í spurningakeppni: Hótaði að kæra keppnina Íslensku landsliðsmennirnir Jón Dagur Þorsteinsson og Guðmundur Þórarinsson skemmtu sér og öðrum í spurningakeppni á hóteli íslenska landsliðsins í aðdraganda leiks Íslands og Liechtenstein í undankeppni EM í kvöld. Fótbolti 16. október 2023 15:31
Åge viss um að Gylfi muni slá markametið bara kannski ekki í kvöld Åge Hareide stýrir íslenska landsliðinu á Laugardalsvellinum í kvöld á móti Liechtenstein í síðasta heimaleik Íslands. Fótbolti 16. október 2023 15:00
Aron Einar: Gylfi bætir æfingar og allt í kringum landsliðið Aron Einar Gunnarsson verður aftur fyrirliði íslenska landsliðsins í leiknum á móti Liechtenstein í kvöld en hann mætti fyrir hönd íslenska liðsins á blaðamannafund í gær. Fótbolti 16. október 2023 13:31
Óskar Hrafn ráðinn þjálfari Haugesund Óskar Hrafn Þorvaldsson hefur verið ráðinn þjálfari norska úrvalsdeildarfélagsins Haugesund FK. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Haugesund. Fótbolti 16. október 2023 13:05
Skipting Heimis gerði gæfumuninn í sigri Jamaíku Strákarnir hans Heimis Hallgrímssonar í jamaíska fótboltalandsliðinu héldu áfram á sigurbraut þegar þeir lögðu Haítí að velli, 2-3, í B-riðli A-deildar Þjóðadeildar Norður- og Mið-Ameríku. Fótbolti 16. október 2023 12:31
Utan vallar: Fær íslenska þjóðin nostalgíukvöld í Laugardalnum í kvöld? Eitt það mest spennandi við landsleik Íslands og Liechtenstein á Laugardalsvellinum í kvöld er kannski það hvað verður hlutverk Gylfa Þórs Sigurðssonar í leiknum. Fótbolti 16. október 2023 11:01
Sendi leikmennina sína aftur í skóla því þeir gátu ekki lagt saman tvo plús tvo Carlos Tevez, þjálfari Independiente, sýnir leikmönnum sína enga miskunn hvort sem það er fyrir frammistöðu innan vallar eða utan. Fótbolti 16. október 2023 07:31
„Hann var eins og pabbi og besti vinur“ Zlatan Ibrahimovic viðurkennir að hafa átt erfitt eftir andlát umboðsmannsins skrautlega Mino Raiola. Raiola lést í apríl á síðasta ári en hann var umboðsmaður Ibrahimovic allan hans feril. Fótbolti 16. október 2023 07:00
„Maður fer ekki frá skipi þegar það er svona mikil óvissa“ Theodór Elmar Bjarnason skrifaði undir nýjan tveggja ára samning við uppeldisfélag sitt KR á dögunum. Hann sagði það ekki hafa verið erfiða ákvörðun að vera áfram í Frostaskjólinu þrátt fyrir það óvissuástand sem þar ríkir. Fótbolti 15. október 2023 23:01
Spánverjar tryggðu sér og Skotum sæti á EM Fjölmargir leikir fóru fram í undankeppni EM í kvöld. Spánverjar gerðu góða ferð til Osló og þá komu Walesverjar sér í baráttuna í D-riðli eftir góðan sigur gegn Króatíu. Fótbolti 15. október 2023 20:45
Eyjólfur verður aðstoðarþjálfari Halldórs hjá Blikum Eyjólfur Héðinsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokksliðs karla hjá Breiðabliki í knattspyrnu. Eyjólfur hefur starfað hjá Blikum síðan á síðasta ári. Fótbolti 15. október 2023 18:46
Karólína Lea skoraði og lagði upp í öruggum sigri Karólína Lea Vilhjálmsdóttir lét til sín taka í liði Leverkusen í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Sara Björk Gunnarsdóttir kom af bekknum hjá Juventus sem vann stórsigur á Ítalíu. Fótbolti 15. október 2023 18:31
Svona var blaðamannafundur KSÍ Åge Hareide landsliðsþjálfari og Aron Einar Gunnarsson landsliðsfyrirliði sátu fyrir svörum á blaðamannafundi KSÍ í dag. Fótbolti 15. október 2023 16:01
Hlín skoraði í sigri Kristianstad Hlín Eiríksdóttir skoraði fyrra mark Kristianstad er liðið hafði betur gegn Örebro í sænsku úrvalsdeildinni í dag. Fótbolti 15. október 2023 15:03
Udogie: Alltaf verið minn stærsti draumur Destiny Udogie, leikmaður Tottenham og ítalska landsliðsins, segist vera himinlifandi eftir að hafa spilað sinn fyrsta leik fyrir A-landsliðið í gær. Enski boltinn 15. október 2023 14:00
„Það er ógnvænlegt að fylgjast með honum“ Kieran Trippier, fyrirliði Newcastle og leikmaður enska landsliðsins, fór fögrum orðum um Jude Bellingham í viðtali í gær. Fótbolti 15. október 2023 09:01
Guardiola með augastað á Kroos Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, hefur hug á því að bæta þýska miðjumanninum Toni Kroos við leikmannahóp sinn næsta sumar. Fótbolti 15. október 2023 08:09
Nagelsmann byrjar stjórnartíð sína með sigri Julian Nagelsmann byrjar vel sem þjálfari þýska karlalandsliðsins í fótbolta en hann tók við liðinu af Hansi Flick í september síðastliðnum. Þýskaland fór með sigur af hólmi, 3-1, þegar liðið lék vináttulandsleik við Bandaríkin í Connecticut í kvöld. Fótbolti 14. október 2023 22:56
Tottenham Hotspur-leikvangurinn varð fyrir töluverðu tjóni af völdum skemmdarvarga Skemmdarverk voru unnin á Tottenham Hotspur-leikvangnum í vikunni en talið er að tjónið nemi um það bil milljón punda. Fótbolti 14. október 2023 22:48
Ratcliffe nálgast kaup á fjórðung í Man.Utd Sir Jim Ratcliffe er að nálgast samkomulag við Glazer-fjölskylduna um kaup á fjórðungshlut í enska fótboltafélaginu Manchester United. Fótbolti 14. október 2023 22:44
Skov skoraði þegar Danmörk vann mikilvægan sigur Robert Skov skoraði tvö marka Danmerkur þegar liðið bar sigurorð af Kasakstan, 3-1, í undankeppni EM 2024 á Parken í Kaupmannahöfn í kvöld. Fótbolti 14. október 2023 20:54
Casemiro bætist á meiðslalista Man.Utd Casemiro, miðvallarleikmaður Manchester United, varð fyrir ökklameiðslum þegar hann spilaði fyrir Brasilíu í 1-1 jafnftefli brasilíska liðsins gegn Venesúela í undankeppni HM 2026 í vikunni. Fótbolti 14. október 2023 20:47