Kraftaverkaþjálfarinn frá Klaksvík verður eftirmaður Freys Danska félagið Lyngby er búið að finna eftirmann íslenska þjálfarans Freys Alexanderssonar. Fótbolti 12. janúar 2024 06:34
„Vildi koma heim meðan ég hef eitthvað fram að bjóða“ „Mér líst bara mjög vel á þetta. Hrikalega spenntur að vera kominn heim, var að hitta strákana í dag, geggjaður hópur sem tók vel á móti mér og er bara spenntur að byrja,“ sagði Aron Sigurðarson, nýjasti leikmaður KR í viðtali við Stöð 2 og Vísi eftir að vistaskiptin voru staðfest. Íslenski boltinn 11. janúar 2024 23:30
Fær nýjan samning þrátt fyrir að hafa slitið krossband nýlega Stormsenterinn Sam Kerr hefur framlengt samning sinn við Englandsmeistara Chelsea til 2025 hið minnsta. Tímasetningin vekur athygli en stutt er síðan Kerr sleit krossband í hné og ljóst að hún spilar ekki meira á þessari leiktíð. Enski boltinn 11. janúar 2024 23:01
Milik með sýningu þegar Juventus flaug inn í undanúrslit Gott gengi Juventus á tímabilinu heldur áfram en liðið er komið í undanúrslit Coppa Italia, bikarkeppninnar á Ítalíu, eftir 4-0 sigur á Frosinone. Fótbolti 11. janúar 2024 22:30
Barcelona mætir Real Madríd í úrslitum Barcelona er komið í úrslit spænska Ofurbikarsins eftir 2-0 sigur á Osasuna. Fótbolti 11. janúar 2024 21:01
Segja Aron vera að ganga í raðir Breiðabliks Vængmaðurinn Aron Bjarnason mun að öllum líkindum spila með Breiðabliki í Bestu deild karla í knattspyrnu. Hann lék á sínum tíma 69 leiki fyrir félagið. Íslenski boltinn 11. janúar 2024 18:00
Dier eltir Kane til Bayern Félagaskiptaofvitinn Fabrizio Romano hefur greint frá því að það styttist í að Þýskalandsmeistarar Bayern München tilkynni miðvörðinn Eric Dier sem nýjasta leikmann liðsins. Fótbolti 11. janúar 2024 17:31
Bjórflösku kastað í leikmann Roma Eins og oft í leikjum Lazio og Roma gekk mikið á þegar liðin mættust í átta liða úrslitum ítölsku bikarkeppninnar í gær. Fótbolti 11. janúar 2024 15:01
Umboðsmaður Dragusins steinhissa að hann hafi valið Tottenham fram yfir Bayern Það kom umboðsmanni Radus Dragusin verulega á óvart að hann hafi valið að ganga í raðir Tottenham í staðinn fyrir Bayern München. Enski boltinn 11. janúar 2024 13:30
Dortmund staðfestir komu Sanchos Jadon Sancho er kominn aftur til Borussia Dortmund á láni frá Manchester United. Lánssamningurinn gildir út tímabilið. Fótbolti 11. janúar 2024 12:39
Fyrstu landsleikir ársins í beinni útsendingu Íslenska karlalandsliðið í fótbolta spilar fyrstu landsleiki sína á árinu í Bandaríkjunum á næstunni og fótboltaáhugafólk getur horft á þá báða í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Fótbolti 11. janúar 2024 12:01
Sven-Göran á bara ár eftir ólifað Sven-Göran Eriksson, fyrrverandi landsliðsþjálfari Englands, er með krabbamein og á væntanlega aðeins ár eftir ólifað. Fótbolti 11. janúar 2024 10:01
Rubiales segir að allir styðji sig og Hermoso ljúgi Luis Rubiales segir hafa fundið fyrir gríðarlegum stuðningi eftir að hann hætti sem forseti spænska knattspyrnusambandsins og var dæmdur í þriggja ára bann fyrir að hafa kysst Jennifer Hermoso eftir úrslitaleik HM. Fótbolti 11. janúar 2024 07:46
Sjálfsmörk til skiptis í framlengdum leik Nágrannaliðin Atleticó og Real Madrid mættust fjarri heimahögum sínum þegar liðin kepptu í undanúrslitaleik spænska ofurbikarsins, sem fór fram í Sádí-Arabíu. Real unnu að endingu 5-3 eftir framlengdan leik þar sem tvö sjálfsmörk voru skoruð. Fótbolti 10. janúar 2024 21:50
Þrjú rauð spjöld og skotblysaslagur í ítalska bikarnum Nágrannaliðin Lazio og AS Roma áttust við í 8-liða úrslitum ítalska bikarsins í kvöld. Leiknum lauk með 1-0 sigri Lazio, Mattia Zaccagni skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu, þrír leikmenn fengu svo að líta rautt spjald á lokamínútunum. Fótbolti 10. janúar 2024 19:09
Dæmdur í fjögurra leikja bann fyrir að tala illa um dómara Girona verður án varnarmannsins síns David Lopez í næstu leikjum en Girona er öllum að óvörum að berjast um spænska meistaratitilinn við Real Madrid. Fótbolti 10. janúar 2024 17:00
Jadon Sancho lánaður til Dortmund Manchester United hefur náð samkomulagi við þýska liðið Borussia Dortmund um að Sancho fari þangað á láni út tímabilið. Enski boltinn 10. janúar 2024 15:56
Nú í banni út um allan heim Bann Hollendingsins Marc Overmars nær nú út fyrir Holland því aganefnd Alþjóða knattspyrnusambandsins hefur úrskurðað að ársbann hans frá fótbolta sé í gildi út um allan heim. Fótbolti 10. janúar 2024 15:17
Sjáðu markið hjá Sveindísi í endurkomuleiknum Sveindís Jane Jónsdóttir lék í gær sinn fyrsta leik í næstum því fjóra mánuði og íslenska landsliðskonan byrjaði vel. Fótbolti 10. janúar 2024 14:00
Mané giftist átján ára kærustu sinni Senegalski fótboltamaðurinn Sadio Mané, sem leikur með Al-Nassr í Sádi-Arabíu, gekk í það heilaga á sunnudaginn. Fótbolti 10. janúar 2024 07:32
Lýsa upp völlinn og birta skilaboð til heiðurs Beckenbauer Þýska stórveldið Bayern München mun lýsa upp heimavöll sinn, Allianz Arena, næstu daga og senda skilaboð til heiðurs Franz Beckenbauer, sem lést síðastliðinn sunnudag. Fótbolti 9. janúar 2024 23:01
Tottenham staðfestir komu Werner Þýski framherjinn Timo Werner er genginn til liðs við enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham Hotspur á láni frá RB Leipzig. Fótbolti 9. janúar 2024 20:46
Spjaldið dregið til baka og Calvert-Lewin sleppur við bann Framherjinn Dominic Calvert-Lewin, leikmaður enska úrvalsdeildarfélagsins Everton, er ekki á leið í þriggja leikja bann þrátt fyrir að hafa fengið beint rautt spjald í leik liðsins gegn Crystal Palace í FA-bikarnum í síðustu viku. Fótbolti 9. janúar 2024 17:45
Katla María sú þriðja íslenska hjá Örebro Knattspyrnukonan Katla María Þórðardóttir, sem borið hefur fyrirliðabandið í leikjum U23-landsliðsins á þessu ári, er farin frá Selfossi út í atvinnumennsku og hefur samið við sænska félagið Örebro. Fótbolti 9. janúar 2024 17:01
Sveindís skoraði eftir aðeins þrettán mínútur Íslenska landsliðskonan Sveindís Jane Jónsdóttir var ekki lengi að komast á blað í sínum fyrsta leik eftir margra mánaða fjarveru vegna meiðsla. Fótbolti 9. janúar 2024 16:02
Segist sjá eftir högginu en gæti endaði í þrettán ára fangelsi Fyrrum forseti tyrkneska félagsins Ankaragücü segist sjá eftir því að hafa slegið niður dómara eftir leik liðsins í desember síðastliðnum en hann hafnar því aftur á móti að hafa hótað dómaranum lífláti. Fótbolti 9. janúar 2024 16:01
„Ætlarðu bara að dandalast endalaust í ræktinni?“ Paul Scholes gat ekki stillt sig um að skjóta á annan fyrrverandi leikmann Manchester United, Jesse Lingard, í nýlegri færslu þess síðarnefnda á Instagram. Enski boltinn 9. janúar 2024 15:30
Loka dyrunum fyrir umboðsmönnum Norska knattspyrnusambandið hefur miklar áhyggjur af ásókn umboðsmanna í efnilegustu fótboltamenn þjóðarinnar og nú hefur verið tekin ákvörðun um að grípa til aðgerða til að vega á móti þróun síðustu ára. Fótbolti 9. janúar 2024 15:01
Tottenham nálægt því að kaupa liðsfélaga Alberts Tottenham og Genoa eru á lokasprettinum í viðræðum sínum um kaup enska úrvalsdeildarliðsins á varnarmanninum Radu Dragusin. Enski boltinn 9. janúar 2024 14:01
Henry greinir frá glímu við þunglyndi: „Ég grét nánast á hverjum degi“ Thierry Henry, markahæsti leikmaður í sögu Arsenal, greindi frá glímu sinni við þunglyndi í hlaðvarpinu Diary of a CEO. Á meðan kórónuveirufaraldurinn stóð yfir grét hann nánast á hverjum einasta degi. Fótbolti 9. janúar 2024 12:30