Alonso kallar á úrbætur Heimsmeistarinn Fernando Alonso hjá Renault vill að lið hans spýti í lófana fyrir næstu keppni til að bregðast við góðri byrjun fyrrum heimsmeistarans Michael Schumacher og Ferrari í móti ársins, en Þjóðverjinn hefur nú unnið tvær keppnir í röð. Næsta mót fer fram á heimavelli Alonso á Spáni strax um næstu helgi. Sport 8. maí 2006 16:31
Annar sigur Schumacher í röð Michael Schumacher á Ferrari sigraði Þýskalandskappaksturinn í Formúlu 1 í Nürburgring í dag og landaði þar með sínum öðrum sigri í röð. Heimsmeistarinn Fernando Alonso á Renault varð annar og Felipe Massa á Ferrari varð þriðji en þetta er í fyrsta sinn sem hann kemst á verðlaunapall í Formúlu 1. Sport 7. maí 2006 13:45
Alonso með besta tímann í tímatökum Spánverjinn Fernando Alonso á Renault verður á ráspól í Evrópukappakstrinum í Nürburgring í Formúlu 1 kappakstrinum á morgun en tímatökunni lauk nú upp úr hádegi. Michael Schumacher á Ferrari varða annar og félagi hans, Felipa Massa varð þriðji. Sport 6. maí 2006 14:35
Schumacher íhugar að keppa í tvö ár enn Luca di Montezemolo, forseti Ferrari, segir að þýski ökuþórinn Michael Schumacer sé að íhuga að halda áfram keppni í Formúlu 1 í tvö ár til viðbótar. "Ég held að Michael vilji keppa eitt ár í viðbót, en umfram allt sleppa við sömu vangaveltur að ári og því gæti hann allt eins samið út árið 2008," sagði forsetinn. "Við viljum hafa hann áfram og ef hann verður á samkeppnishæfum bíl, held ég að hann kjósi að halda áfram að keppa." Sport 29. apríl 2006 20:30
Nýtt lið til keppni árið 2008 Nýtt keppnislið hefur nú verið samþykkt inn á mótaröðina í Formúlu 1 árið 2008 og verða keppnisliðin því orðin 12. Nýja liðið verður undir stjórn David Richards og ber nafnið Prodrive. Richards þessi var áður liðsstjóri BAR og Benetton, en hefur ekki verið viðriðinn Formúlu 1 í tvö ár. Tíu umsóknum um inngöngu í mótaröðina var hafnað, þar sem menn eins og Eddie Jordan, Paul Stoddard og Craig Pollock voru á meðal þeirra sem voru úti í kuldanum. Sport 28. apríl 2006 11:43
6,6 milljarðar fyrir tveggja ára samning? Þýska blaðið Bild segist hafa heimildir fyrir því að formúlulið Ferrari sé búið að bjóða fyrrum heimsmeistaranum Michael Schumacher tæpa 6,6 milljarða íslenskra króna fyrir að framlengja samning sinn um tvö ár. Í samningi þessum á að vera klásúla sem heimilar honum að leggja stýrið á hilluna ef hann yrði meistari á samningstímanum, jafnvel þó það yrði strax á þessu tímabili. Sport 26. apríl 2006 16:15
Schumacher vann á Imola Michael Schumacher vann góðan sigur í Formúla 1 kappakstrinum á Imola-brautinni í San-Marínó í dag. Schumacher var á ráspól fyrir keppnina og leiddi lengst af. Renault-ökumaðurinn og heimsmeistarinn Fernando Alonso þjarmaði vel að Scumacher lengst af og kom í mark örfáum sekúndum á eftir Schumacher: Sport 23. apríl 2006 13:40
Alonso og Schumacher náðu bestum tíma á Imola Keppinautarnir Fernando Alonso hjá Renault og Michael Schumacher hjá Ferrari náðu besta tímanum á seinni æfingunni fyrir San Marino-kappaksturinn á Imola brautinni í dag. Schumacher náði besta tímanum á fyrstu æfingunum í morgun, en þriðja besta tímanum á síðari æfingunni náði Felipe Massa. Sport 21. apríl 2006 14:45
Alonso sigurviss á Imola Fernando Alonso segir að lið hans Renault hafi alla burði til að sigra á Imola-brautinni í San Marino um helgina. "Við erum liðið sem allir eru að keppa við sem fyrr og ég er viss um að við verðum í baráttunni um sigurinn í San Marion," sagði Alonso, sem hefur unnið tvær af þremur fyrstu keppnum ársins og hefur 14 stiga forskot í keppni ökuþóra. Sport 19. apríl 2006 19:15
Schumacher ákveður sig fljótlega Ross Brawn hjá Ferrari segir að Michael Schumacher muni að öllum líkindum taka ákvörðun um framtíð sína á allra næstu mánuðum, en mikið hefur verið rætt um hvort hann hætti að keppa eða gangi jafnvel til liðs við Renault. Sport 18. apríl 2006 15:30
Barrichello í erfiðleikum Brasilíski ökuþórinn Rubens Barrichello viðurkennir að erfið byrjun hans með liði Honda sé farin að setjast nokkuð á sálina og hafi óneitanlega reynt á sjálfstraust hans sem ökumanns. Barrichello var áður í sex ár hjá Ferrari, en eftir að vera bjartsýnn á gott gengi í vetur hefur hann aðeins náð í tvö stig í fyrstu þremur keppnunum sem búnar eru. Sport 7. apríl 2006 19:22
Toyota rekur tæknistjórann Lið Toyota í Formúlu 1 rak í dag tæknistjóra sinn Mike Gascoyne úr starfi eftir að árangur hans þótti ekki viðeigandi, en eins hafa borist fréttir af stormasömu samstarfi hans við forráðamenn liðsins. Gascoyne var áður hjá liðum Jordan og Renault. Sport 5. apríl 2006 17:45
Davidson fljótastur á æfingum Anthony Davidson hjá Honda náði bestum tíma allra á æfingum fyrir Melbourne-kappaksturinn í Formúlu 1 sem háður verður í Ástralíu um helgina. Alex Wurz hjá Williams náði öðrum besta tímanum og Robert Kubica hjá BMW Sauber náði þriðja besta tímanum. Sport 31. mars 2006 17:15
Ánægður að vera á undan Schumacher Felipe Massa var mjög ángæður með að skáka félaga sínum hjá Ferrai, Michael Schumacher, í Formúlu-1 kappakstrinum í Malasíu um helgina. Massa lenti í fimmta sæti en Schumacher í því sjötta. Sport 21. mars 2006 07:00
Wurz fljótastur á æfingum Æfingaökuþórinn Alex Wurz hjá Williams náði besta tímanum á fyrstu æfingunum fyrir tímatökur í Malasíukappakstrinum sem fram fer um helgina. Fáir aðalökumenn spreyttu sig á brautinni í dag, en þó var heimsmeistarinn Fernando Alonso einn þeirra sem óku í dag og náði hann tíu hundraðshlutum úr sekúndu betri tíma en Kimi Raikkönen hjá McLaren. Sport 17. mars 2006 18:45
Massa þarf að skipta um vél Ökuþórinn Felipe Massa hjá Ferrari þarf að taka út 10 sæta refsingu í keppninni í Malasíu um helgina eftir að ljóst varð að hann þarf að skipta um vél í bíl sínum. Hann náði öðrum besta tímanum í Barein um síðustu helgi, en endaði í níunda sæti í keppninni. Sport 16. mars 2006 17:45
Button vill fá bílinn í lag Ökuþórinn Jenson Button hjá Honda í Formúlu 1, heimtar að liðið komi bíl sínum í keppnishæft ástand fyrir næstu keppni sem er í Malasíu um helgina, en bilun varð til þess að hann varð af sæti á verðlaunapalli um síðustu helgi í Barein. Sport 14. mars 2006 17:45
McLaren vill halda í Raikkönen Forráðamenn McLaren í Formúlu eitt vilja ólmir ná að halda í finnska ökuþórinn Kimi Raikkönen lengur en út þetta keppnistímabil, en orðrómur er uppi um að hann hafi undirritað samkomulag um að ganga til liðs við Ferrari á næsta ári. Liðsmenn McLaren vilja heldur ólmir sjá þá Raikkönen og Fernando Alonso vera ökuþóra liðsins um ókomin ár, en Alonso gengur til liðs við McLaren á næsta ári. Sport 14. mars 2006 16:00
Forráðamenn Renault biðja Fisichella afsökunar Forráðamenn Renault í Formúlu 1 hafa beðið ökuþórinn Giancarlo Fisichella afsökunar á því að hafa skaffað honum illa búinn bíl í keppni helgarinnar í Barein, þar sem Fisichella þurfti að hætta keppni eftir aðeins 21 hring vegna leka í vökvakerfi bílsins. Sport 13. mars 2006 18:15
Tímabilið verður galopið í ár Heimsmeistarinn Fernando Alonso hjá Renault segist eiga von á að keppnistímabilið í Formúlu 1 í ár verði mjög spennandi og opið, en hann vill meina að fjögur keppnislið muni berjast um sigurinn í hverri einustu keppni. Sport 12. mars 2006 16:33
Alonso sigraði í Barein Heimsmeistarinn Fernando Alonso byrjaði keppnistímabilið í Formúlu 1 með stæl í dag þegar hann skaut fyrrum heimsmeistaranum Michael Schumacher ref fyrir rass og sigraði í fyrstu keppni ársins. Schumacher var á ráspól í dag, en varð að láta sér annað sætið duga að þessu sinni. Kimi Raikkonen var engu að síður hetja dagsins því hann vann sig úr síðasta sæti í það þriðja með frábærum akstri. Sport 12. mars 2006 14:41
Raikkönen vongóður þrátt fyrir áföllin Finnski ökuþórinn Kimi Raikkönen er staðráðinn í að láta ekki áföllin í byrjun tímabils hafa áhrif á sig, en eftir að lið hans McLaren lenti í vélarbilunum í gær, þarf hann að byrja síðastur á ráslínu í Barein á morgun eftir að hafa lent í óhappi í fyrsta hring í tímatökunum í dag. Sport 11. mars 2006 16:35
Erfiðið er að borga sig Michael Schumacher segir að þrotlausar æfingar og prófanir séu lykillinn á bak við góðan árangur Ferrari í tímatökunum í Barein í dag. "Það er orðið langt síðan maður var í þessari aðstöðu síðast og nú er allt erfiðið í vetur svo sannarlega að skila sér. Það er ekkert að marka þó hlutirnir líti vel út á æfingu, þú veist aldrei hvar þú stendur fyrr en á brautina er komið," sagði Þjóðverjinn. Sport 11. mars 2006 15:05
Schumacher á ráspól Ferrari gekk allra liða best í tímatökunum fyrir Barein kappaksturinn sem fram fer á morgun. Það var fyrrum heimsmeistarinn Michael Schumacher sem náði bestum tíma og verður því á ráspól í 65. skiptið á ferlinum á morgun. Hann jafnar þar með met Brasilíumannsins Ayrton Senna. Félagi Schumacher Felipe Massa varð í öðru sæti, Jenson Button í þriðja og heimsmeistarinn Fernando Alonso í fjórða. Sport 11. mars 2006 13:48
Vandræði hjá McLaren Forráðamönnum McLaren til mikillar skelfingar virðist þetta keppnistímabil ætla að byrja á sömu nótum og hið síðasta endaði, því bíll Kimi Raikkönen bilaði strax á 12. hring á æfingum í dag og félagi hans Juan Pablo Montoya kvartaði einnig undan því að vélin hefði verið að stríða sér. Sport 10. mars 2006 15:45
Framtíðin björt í Formúlu 1 Ron Dennis, yfirmaður McLaren-liðsins í Formúlu 1, telur að framtíð heimsmeistaramótsins sé björt og er bjartsýnn á að yfirstandandi deilur muni leysast á farsælan hátt. Nokkur af stóru liðunum í Formúlu 1 hafa undanfarið hótað að segja sig úr mótaröðinni og stofna sína eigin, því þeim þykir auðnum misskipt með núverandi fyrirkomulagi. Sport 9. mars 2006 21:30
Alonso verður einbeittur Pat Symonds, yfirhönnuður hjá meisturum Renault í Formúlu 1, segir að það muni ekki hafa nein áhrif á Fernando Alonso á keppnistímabilinu að hann hafi þegar samþykkt að ganga til liðs við McLaren árið 2007. Sport 8. mars 2006 17:05
Coulthard vill framlengja við Red Bull Skoski ökuþórinn David Coulthard segist hafa fullan hug á því að framlengja veru sína hjá liði Red Bull í Formúlu 1, ekki síst fyrir tilkomu bílahönnuðarins Adrian Newey sem áður var hjá McLaren. Samningur Coulthard rennur út eftir næsta tímabil, sem hefst einmitt í Barein um næstu helgi. Sport 7. mars 2006 16:22
McLaren lofar betri bíl Forráðamenn McLaren Mercedez fullyrða að vélar liðsins verði ekki til sömu vandræða og í fyrra og segja prófanir á síðustu fimm vikum lofa góðu um stöðugleika. Sífelldar vélarbilanir hjá Kimi Raikkönen í fyrra urðu þess valdandi að hann gat ekki veitt Fernando Alonso verðuga keppni um titil ökuþóra. Sport 6. mars 2006 19:15
Fjögur lið eiga möguleika á titlinum Fyrrum heimsmeistarinn Michael Schumacher telur fjögur keppnislið eiga möguleika á heimsmeistaratitlinum í Formúlu 1 á komandi keppnistímabili. Hann hefur auðvitað fulla trú á sínum mönnum í Ferrari, en telur að auk þess verði Renault, Honda og McLaren í baráttunni um titilinn. Sport 3. mars 2006 19:45