

Ferðamennska á Íslandi
Fréttir af ýmsum málum tengdum ferðamennsku á Íslandi.

Sjóður í Abú Dabí að kaupa hlut Íslendinga í Edition-hótelinu fyrir 22 milljarða
Einn af þjóðarsjóðum furstadæmisins Abú Dabí, ADQ, er langt kominn í viðræðum um að kaupa ríflega 70 prósenta eignarhlut félags í eigu íslenskra fjárfesta, sem er að stórum hluta lífeyrissjóðir, í Marriott Edition-lúxushótelinu í Austurhöfn.

Telur mörg þúsund hafa gengið að gosinu í dag
Svæðið við gosstöðvarnar í Meradölum var opnað aftur í morgun eftir þriggja daga lokun. Fjöldi fólks lagði leið sína að gosstöðvunum og telur björgunarsveitarmaður að þúsundir hafi farið um svæðið í dag.

Gögn sýna viðspyrnu Icelandair
Greining sem Ferðamálastofa hefur unnið sýnir að Icelandair hafi náð einna bestri viðspyrnu norræna flugfélaga í sumar, í fjölda farþega talið.

Brottfarir erlendra ferðamanna fleiri nú í júlí en árið 2019
Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru rúmlega 234 þúsund í júlímánuði samkvæmt talningu Ferðamálastofu. Þetta er meiri fjöldi en árið 2019 og um leið fjórði fjölmennasti júlímánuðurinn frá því að mælingar hófust.

Lögðu stikur í svartaþoku og snarvitlausu veðri
Björgunarsveitin Þorbjörn lögðu stikur fyrir alla gönguleiðina að gosstöðvunum í Meradölum í svartaþoku og snarvitlausu veðri í gærkvöld. Ekki veitir af enda virðast ferðamenn enn hætta sér á gönguleiðina í vonskuveðri þvert á tilmæli björgunarsveita og lögreglu.

Reyndi að bjarga strönduðum dróna með dróna í Stuðlagili
Hún heppnaðist ekki, björgunaraðgerð drónaflugmanns sem kom auga á strandaðan dróna á syllu í Stuðlagili í sumar.

Heimilt að sekta fólk sem ekki virðir lokanir á gosstöðvum
Lögreglan á Suðurnesjum hefur heimildir til að sekta fólk sem virðir ekki lokanir lögreglu við gosstöðvarnar í Meradölum. Það er þó ekki til skoðunar sem stendur. Svæðið er lokað öllum í dag, vegna veðurs, og verður framvegis alfarið lokað börnum yngri en tólf ára.

Miklu meiri aðsókn í Vök en reiknað var með
Um tvö hundruð þúsund gestir hafa heimsótt Vök baths við Egilsstaði frá því að staðurinn opnaði fyrir tæpum þremur árum. Það er miklu meiri aðsókn en eigendur staðarins þorðu nokkurn tímann að vona. Bjórinn á staðnum er bruggaður upp úr jarðhitavatni svæðisins.

Play flutti fleiri í júlí en allt árið 2021
Flugfélagið Play flutti 109.937 í júlí sem er fjórðungsaukning frá farþegafjölda í júní. Fjöldi farþega í júlí 2022 er meiri en samanlagður fjöldi allra farþega sem Play flutti á árinu 2021.

Farþegar Icelandair yfir hálfa milljón í fyrsta sinn frá upphafi faraldurs
Icelandair flutti yfir hálfa milljón farþega í millilandaflugi í nýliðnum júlí. Fjöldi farþega hefur ekki farið yfir hálfa milljón síðan á háannatíma árið 2019 áður en áhrifa heimsfararaldurs kórónuveiru fór að gæta í flugrekstri.

Hverarúgbrauð og brauðsúpa í símaklefa
Hverarúgbrauð, taupokar, brauðsúpa og símaklefi, hvað ætli það eigi sameiginlegt?

Lífshættulegt að slökkva ekki á búnaði í útilegum
Öryggisfræðingur segir nauðsynlegt að fólk hugi vel að búnaði í ferðahýsum fyrir ferðalög. Lífshættulegt geti verið að sofa með kveikt á gas-, olíu- eða rafmagnsbúnaði.

„Ég hugsaði, ég er bara að fara að deyja núna“
Aðeins sekúndum mátti muna að heil fjölskylda léti lífið vegna koltvísýringseitrunar í fellihýsi á dögunum. Þau segjast þakklát fyrir að ekki fór verr og að tveggja ára sonur þeirra eigi nú allt lífið fram undan.

Sigurvegari leiksins Göngum um Ísland
Gönguleiknum Göngum um Ísland er lokið.

Áskorun að mæta aukinni eftirspurn vegna eldgossins
Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir gífurlega landkynningu felast í þeim myndbirtingum og þeirri fjölmiðlaumfjöllun sem gosið hafi fengið í stórum fréttamiðlum um allan heim. Það hafi sýnt sig vel í síðasta gosi að slík kynning sé gríðarlega verðmæt fyrir Ísland sem áfangastað.

„Klikkað að gera“ eftir að gosið hófst
Ferðaþjónustufyrirtæki eru þegar farin að finna fyrir auknum þunga í bókunartölum vegna eldgossins í Meradölum. Framkvæmdastjóri þyrlufyrirtækis segir erlenda ferðamenn treysta á að gosið endist inn í haustið. Bókanir teygi sig inn í nóvember.

Ferðamenn létu sér ekki segjast: „Þú ert hérna líka!“
Fjöldi fólks hefur lagt leið sína í Meradali frá því að eldgosið hófst í gær og margir heillast að krafti náttúruaflanna. Fréttamaður tók nokkra ferðalanga tali og fékk að heyra hvað þeim finnst um sjónarspilið.

Mikil ásókn í þyrluferðir: „Þetta er sko enginn ræfill núna“
Gríðarleg ásókn er í þyrluflug yfir gosstöðvarnar og flugfélögin finna fyrir auknum áhuga á landinu. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir erfiðara en síðast að taka á móti miklum fjölda með skömmum fyrirvara vegna bókunarstöðu.

„Ég varð að setjast niður og gráta“
Erlendir fjölmiðlar víða um um heim hafa fjallað um eldgosið við Meradali sem hófst í gær. Útgangspunkturinn hjá flestum virðist vera að gosið sé nærri Keflavíkurflugvelli og Reykjavík, þó tekið sé fram að engin hætta virðist vera á ferðum.

Ferðamenn flykktust að eldgosinu
Mikill fjöldi fólks lagði leið sína að gosstöðvunum í Meradölum í gær til þess að freista þess að sjá eldgosið með eigin augum. Ferðamenn, innlendir sem erlendir, sem fréttastofa ræddi við í gær, voru allir mjög spenntir.

Dáðust að náttúrufegurðinni við gosið
Ekki leið langur tími frá því að gos hófst að nýju nærri Fagradalsfjalli þar til fólk byrjaði að streyma að gosstöðvunum til að bera sjónarspilið augum.

Ragnheiður til Keahótela
Ragnheiður Hauksdóttir hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra sölu- og markaðssviðs hjá Keahótelum ehf.

„Ég var dálítið stressaður og var farinn að leita að dyrunum“
Þó Íslendingar séu margir orðnir vanir jarðskjálftum, líkt og þeim sem riðið hafa yfir á Reykjanesskaga og víðar að undanförnu, þá eru það ekki allir. Nokkrir erlendir ferðamenn sem fréttastofa hitti höfðu aldrei upplifað jarðskjálfta fyrr en á mánudagskvöld.

Túristagos ekki endilega jákvætt
Bæjarstjóri Grindavíkurbæjar segir almannavarnir og aðra viðbragðsaðila vera viðbúna ef það skildi byrja að gjósa. Allir reyni að halda sér eins upplýstum og hægt er. Túristagos hafi vissulega jákvæð áhrif á efnahaginn en það sé ekkert grín þegar það gýs svona nálægt byggð.

Færa sig frá Reykjum að Laugum í Sælingsdal
Fráfarandi rekstaraðilar skólabúðanna að Reykjum í Hrútafirði hafa samið við Dalabyggð um að taka ferðaþjónustuþorpið Laugar í Sælingsdal á kaupleigu. Þar ætla þeir að reka ferðaþjónustu frekar en skólabúðir.

Falleg saga frá bráðamóttökunni á Selfossi
Hjón í Hveragerði tóku að sér sjö og tíu ára bræður frá Bretlandi og leyfðu þeim að gista hjá sér í nótt. Ástæðan er sú að eiginmaðurinn er yfirlæknir á Selfossi og hafði verið að sinna bráðveikri mömmu drengjanna, sem þurfti að fara í bráðaaðgerð í Reykjavík. Bræðurnir höfðu ekki í nein hús að venda og tóku hjónin drengina að sér með leyfi barnaverndaryfirvalda.

Suðurlandið markaðssett á kostnað annarra landshluta
Vörumerkið Ísland á ekki við um aðra hluta landsins en Suðurströndina og suð-vesturhornið. Þetta segja aðilar í ferðaþjónustu sem telja markaðssetningu opinberra aðila hafa farið illa með aðra hluta landsins.

„Fórum að sofa og vöknum um vetur“
Snjó kyngdi niður á miðhálendinu í nótt og gular viðvaranir eru á svæðinu yfir helgina. Þegar skálaverðir í Drekagili vöknuðu hafði vetur skollið á um hásumar.

Samdráttur vegna erlendra færsluhirða
Mælanleg erlend kortavelta hefur dregist saman ef litið er til annarra ferðaþjónustufyrirtækja en bílaleiga, hótela og veitingastaða. Þetta sýna tölur Rannsóknarseturs verslunarinnar en kortavelta hefur verið ein helsta leiðin til þess að leggja mat á gengi ferðaþjónustunnar.

Gott sumar í ferðaþjónustunni en ýmsar áskoranir fram undan
Ferðaþjónustan hefur tekið hratt við sér eftir faraldurinn en Ísland er nánast upp bókað næstu mánuði. Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar segir greinina þó standa frammi fyrir ýmsum áskorunum þar sem tryggja þurfi að framboð sé í takt við eftirspurn.