

Katherine Mansfield, rithöfundur og eiginkona bókmenntarýnisins Johns Middleton Murry, til hjákonu Murry, 24. mars, 1921. Ég vil biðja þig um að hætta að senda eiginmanni mínum ástarbréf á meðan við hjónin búum saman. Það er einn af þessum hlutum sem tíðkast ekki í okkar heimi. Þú ert mjög ung. Fáðu eiginmann þinn til að útskýra fyrir þér óhagræðið við slíka hegðun.
Forsvarsmenn flestra grunnskóla virðast hins vegar langflestir fyrst hafa frétt af þessum fyrirætlunum þegar umfjöllun blaðsins birtist.
Eins með Kodak sem vissi ekki sitt rjúkandi ráð þegar stafrænu myndavélarnar komu til sögunnar – sem lentu svo líka í klandri vegna snjallsímanna.
Ég er staddur í matvöruverslun um hábjartan dag. Það er ekkert sérstaklega hlýtt úti en sólin skín. Það er því nokkuð létt yfir fólkinu sem ýtir innkaupakerrunum á undan sér og kaupir mjólk, brauð, egg og aðrar nauðsynjar.
Íslenska ríkið heldur uppi viðskiptahindrunum með tollum á ýmsar innfluttar vörur án þess að verið sé að vernda nokkra íslenska framleiðslu.
Lífríkið er þeirrar náttúru að plöntum og dýrategundum fer eftir atvikum ýmist fjölgandi eða fækkandi. Tegundir deyja út og aðrar vaxa fram. Sama lögmál gildir um þjóðtungur og þjóðmyntir.
Í nokkur ár hefur verið heimild í fjárlögum til að einkavæða allt að 30 prósenta hlut ríkisins í Landsbankanum.
Fyrir helgi kom út skýrsla greiningardeildar ríkislögreglustjóra um skipulagða brotastarfsemi hér á landi. Gegnumgangandi stef í skýrslunni er að lögreglan sé vegna niðurskurðar illa búin til að sinna öllum sínum verkefnum sem skyldi.
Íslensku strákarnir spiluðu með hjartanu og stuðningsmennirnir hvöttu þá áfram af mikilli elju. Erlendir fjölmiðlar keppast um að lofa frammistöðu allra og heilluðu stuðningsmenn starfsmenn í höllinni í Berlín, sem skáluðu sérstaklega fyrir þeim að móti loknu.
Vert er að spyrja hvernig sú fjárhæð er fengin út sem ákveðið er að úthluta eins mikilvægri stofnun og æðsta handhafa ákæruvalds landsins.
Svo virðist sem Ólafur Ragnar sé lenging (við Íslendingar höfum ekki gaman af styttingum) á enska orðinu oracle, það er að segja véfrétt.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra hitti líkast til naglann á höfuðið í vikunni þegar hann sagði Pírata vera jaðarflokk. Flokk sem nýtur fylgist vegna þess að almenningur hefur misst alla trú á hefðbundnum stjórnmálum.
Ég var að rúnta á smájeppanum á föstudaginn með fullan bíl af kanilsnúðum og hressan leikskóladreng í aftursætinu. Fössari í fólki og við á leiðinni heim að njóta helgarinnar. Í allri gleðinni misfórst að líta til hægri og vinstri
Talað er um það í fréttaskýringum að Jeremy Corbyn, nýr leiðtogi Verkamannaflokksins, sé gamaldags, fulltrúi úreltra viðhorfa á borð við að útrýma fátækt, skapa jöfn tækifæri og hugsa um hagsmuni heildarinnar fremur en einstakra forréttindahópa.
Margir stytta sér stundir við að ráða í orð forseta lýðveldisins við þingsetninguna í vikunni. Það er samkvæmisleikur sem mörgum sem hafa áhuga á fjörlegum pólitískum fléttum, þykir mergur í
Í Star Trek var geimverutegund sem hét Vúlkanar. Vúlkanar voru rökfastir, agaðir en um leið tilfinningasnauðir. Vúlkönum fannst oft eitthvað sem mennirnir voru að gera vera "órökrétt“. Tilfinningar væru órökréttar. Ákvarðanir sem byggðust á tilfinningum væru órökréttar.
Ég hef alla ævina verið að reyna að botna í þessu lífi. Ég hef lesið bækur, horft á heimildarmyndir, rætt við annað fólk og svo auðvitað prófað ýmislegt.
Enn á ný er ellefti september runninn upp. Í hugum flestra á Vesturlöndum mun dagsetningin ávallt standa fyrir mannlegan harmleik í sinni fánýtustu mynd; blóðsúthellingar, hrottaskap og grimmd.
Formaður velferðarráðs Reykjavíkur, Björk Vilhelmsdóttir, segir aumingjavæðingu í gangi hjá borginni. Þetta eru stór orð komandi frá manneskju sem hefur helgað sig velferðarmálum á sínum pólitíska ferli sem spannar yfir áratug í borgarpólitíkinni.
Á sama tíma og maður af erlendum uppruna hefur verið gerður að þjóðardýrlingi hafa efasemdarraddir í tengslum við móttöku flóttamanna frá stríðshrjáðum löndum aldrei verið háværari.
Það er sjaldnast þannig með ríkisútgjöld að eitt hindri annað.
Jónas Kristjánsson ritstjóri er einn örfárra íslenzkra manna sem hefur helgað blaðamennskunni ævistarf sitt nær eingöngu og er enn að á eigin spýtur eftir meira en hálfa öld, ódeigur sem fyrr.
Líkt og langflestir þeirra sem samsettir eru úr holdi og blóði hef ég ekki verið ósnortinn af þeim fréttum sem berast af flóttafólki frá Sýrlandi þessa dagana. Hvernig er hægt annað en að finna til með manneskjum sem nauðbeygðar þurfa að flýja heimkynni sín og skilja allt sitt eftir í tættum sprengjurústum?
Frumvarp til fjárlaga næsta árs endurspeglar betri afkomu ríkisins en margur hefði talið von á miðað við stöðuna í heilbrigðiskerfinu og orðræðu tengda kjarasamningum. Um leið þarf að hafa í huga að skuldir ríkisins eru miklar og langtímahagsmunir af því að greiða niður skuldir og draga úr vaxtakostnaði.
Nokkur óvissa hefur verið á undanförnum mánuðum í rekstrarumhverfi fyrirtækja vegna kjarasamningagerðar sem stóð yfir stærstan hluta fyrri parts þessa árs og stendur sums staðar enn yfir. Töluverð hækkun hefur orðið á launakostnaði fyrirtækjanna vegna þessara samninga, eðli málsins samkvæmt.
Ég held að íþróttaunnendur geri sér ekki grein fyrir álaginu sem fylgir landsliðsleikjum. Á okkur hinum. Þið eruð glöð og full af orku en við erum ráðvillt, tætt og ósköp óörugg. Og samviskubitið. Maður minn.
Öll eigum við í huganum lista yfir hluti sem vekja hjá okkur viðbjóð eða valda okkur einhvers konar hugarangri. Algengt er að rottur kalli fram gæsahúð hjá einhverjum á meðan geitungar og köngulær fá aðra til að missa stjórn á sér.
Það er gaman að vera Íslendingur með áhuga á íþróttum þessa dagana, eins og reyndar flesta aðra daga. Árangur íslenskra íþróttamanna á alþjóðavettvangi er með hreinum ólíkindum
Með hverju viðtalinu sem birtist við forsætisráðherrann virðist hann færast fjær því að ætla að taka á móti fleiri flóttamönnum frá Sýrlandi en þessum fimmtíu sem talað var um
Ég er alveg örugglega minnst uppáhalds bakþankahöfundur prófarkalesarateymis Fréttablaðsins. Ég skila alltaf á síðustu stundu vegna þess að það er of mikið af fróðleik á internetinu.