Viðbúnaður og viðbrögð lögreglu vekja furðu Viðbúnaður og viðbrögð lögreglu Bandaríkjaþings við áhlaupi æstra stuðningsmanna Donalds Trump, forseta, á þinghúsið í gær hafa vakið mikla furðu meðal þingmanna og sérfræðinga. Þingmenn hafa þegar heitið því að rannsaka störf lögreglunnar og með stjórn á báðum deildum þingsins eru Demókratar í stöðu til að gera breytingar. Erlent 7. janúar 2021 09:10
Kjör Bidens staðfest þrátt fyrir innrás í þinghúsið Bandaríkjaþing staðfesti nú rétt í þessu kjör Joe Bidens og Kamölu Harris sem forseta og varaforseta Bandaríkjanna eftir ótrúlega atburðarás í gær þar sem þetta lýðræðislega ferli var hindrað. Erlent 7. janúar 2021 08:48
Fjórir látnir eftir árásina á þinghúsið Að minnsta kosti fjórir eru látnir eftir óeirðirnar við þinghús Bandaríkjaþings í Washington DC í gær. Erlent 7. janúar 2021 07:02
Trump einangraður eftir ótrúlega atburðarás Þingmenn, stórfyrirtæki og stjórnmálaleiðtogar hafa fordæmt Donald Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseta, fyrir viðbrögð hans við atburðum gærkvöldsins í þinghúsinu í Washington D.C. Twitter ákvað að loka fyrir aðgang hans af ótta við að færslur hans myndu hvetja til ofbeldis og samstarfsmenn hans eru sagðir íhuga að koma honum frá völdum. Erlent 7. janúar 2021 03:25
Segja ríkisstjórnina ræða að koma Trump frá völdum Fréttamenn vestanhafs greina nú frá því að óformlegar viðræður hafi átt sér stað innan ríkisstjórnarinnar um að þvinga Donald Trump Bandaríkjaforseta úr embætti með því að virkja 25. viðauka bandarísku stjórnarskrárinnar. Varaforsetinn Mike Pence tæki þá við embætti fram að embættistöku Joe Biden. Erlent 7. janúar 2021 02:24
Obama sakar repúblikana um að afvegaleiða stuðningsmenn sína Atburðarás dagsins verður skráð í sögubækurnar sem hneisa og skömm bandarísku þjóðarinnar. Þetta segir Barack Obama, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, í yfirlýsingu sem hann hefur birt á Twitter. Erlent 7. janúar 2021 02:13
Leiðtogar bregðast við: „Óásættanleg aðför að lýðræðinu“ Fjölmargir leiðtogar hafa tjáð sig um atburðarásina í Washington D.C. fyrr í kvöld, þar sem múgur réðist inn í þinghúsið þegar staðfesting Joe Biden sem næsta forseta Bandaríkjanna stóð yfir. Erlent 7. janúar 2021 01:10
Starfsmannastjóri Melaniu segir af sér Stephanie Grisham, fyrrum samskiptastjóri Hvíta hússins og starfsmannastjóri Melaniu Trump, hefur sagt af sér vegna atburðanna í þinghúsinu í kvöld. Þetta hefur CNN eftir heimildarmanni innan Hvíta hússins. Erlent 7. janúar 2021 01:02
Náðu að bjarga atkvæðum kjörmanna Starfsfólk þinghússins náði að bjarga atkvæðum kjörmanna úr þingsal eftir að stuðningsmenn Donald Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseta, réðust inn í þinghúsið. Erlent 7. janúar 2021 00:06
Twitter eyðir færslum Trump og lokar aðganginum í tólf tíma Twitter hefur nú þegar eytt í það minnsta tveimur færslum frá Donald Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseta, sem birtar voru í kvöld. Önnur færslan innihélt myndband þar sem hann bað þá sem réðust inn í þinghúsið að fara heim. Erlent 6. janúar 2021 23:45
Gat ekki gengið að kröfum Trump Mike Pence, fráfarandi varaforseti Bandaríkjanna, sagðist ekki hafa neitt vald til þess að ákveða úrslit kosninga og gæti ekki breytt þeirri niðurstöðu sem varð í forsetakosningunum vestanhafs í nóvember síðastliðnum. Sameiginlegur fundur fulltrúa- og öldungadeildar Bandaríkjaþings hófst í dag til að afgreiða kjör Joe Biden til embættis forseta. Erlent 6. janúar 2021 22:40
„Þið verðið að fara heim núna“ Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur birt skilaboð til mótmælenda við þinghúsið þar sem hann biður þá um að fara heim. Hann segist skilja reiði þeirra, en mest allt myndbandið, sem sjá má hér að neðan, snerist um innihaldslausar ásakanir hans um að umfangsmikið kosningasvindl hefði kostað hann sigur í kosningunum Erlent 6. janúar 2021 21:32
Ráðist inn í þinghúsið: Atburðarásin í myndum Sameiginlegur þingfundur beggja deilda bandaríska þingsins hófst með hefðbundnum hætti um kvöldmatarleytið að íslenskum tíma. Þingið var samankomið til að staðfesta sigur Joe Biden í forsetakosningunum vestanhafs en áður höfðu nokkrir þingmanna Repúblikanaflokksins í báðum deildum greint frá því að þeir hygðust andmæla. Erlent 6. janúar 2021 21:27
Fátt sem getur komið í veg fyrir staðfestingu úrslitanna Þingmenn beggja deilda Bandaríkjaþings munu koma saman í dag og staðfesta sigur Joe Bidens í forsetakosningunum í nóvember. Þrátt fyrir mótmæli fjölda þingmanna Repúblikana sem hafa, ásamt Donald Trump, fráfarandi forseta, haldið því fram að sigur Bidens sé mögulega ólögmætur eru litlar sem engar líkur á öðru en að niðurstaðan verði staðfest, þó það gæti dregist til morguns vegna mótmælanna. Erlent 6. janúar 2021 15:47
Flokkshestar reiðir út í Trump en kjósendur ekki Reiðir flokkshestar í Repúblikanaflokknum eru þegar byrjaðir að kenna Donald Trump, fráfarandi forseta, um að Demókratar muni líklega ná báðum öldungadeildarsætunum í Georgíu og þar með meirihluta í báðum deildum Bandaríkjaþings. Kjósendur flokksins virðast þó enn standa þétt við bakið á forsetanum. Erlent 6. janúar 2021 11:16
Pence tjáði Trump að hann hefði ekki vald til að breyta úrslitunum Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, er sagður hafa tjáð forsetanum að hann muni ekki getað komið í veg fyrir að Bandaríkjaþing staðfesti kjör Joe Biden sem næsta forseta landsins. Erlent 6. janúar 2021 06:01
Afar mjótt á munum í aukakosningunum í Georgíu Afar mjótt er á munum milli frambjóðenda Repúblikanaflokksins og Demókrataflokksins í aukakosningunum sem fram fóru í Georgíu í dag. Í húfi eru tvö þingsæti í öldungadeild Bandaríska þingsins. Erlent 6. janúar 2021 03:04
Leiðtogi Proud Boys handtekinn fyrir að kveikja í Black Lives Matter fána Lögregla í bandarísku höfuðborginni Washington DC handtók í gær leiðtoga hægriöfgahópsins Proud Boys fyrir að hafa borið eld að Black Lives Matter fána í síðasta mánuði. Erlent 5. janúar 2021 07:41
Trump fór mikinn á kosningafundi í Georgíu: „Þau taka ekki Hvíta húsið“ Donald Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseti, fór mikinn á kosningafundi í Dalton í Georgíu í gær. Erlent 5. janúar 2021 07:27
Aukakosningarnar skipta sköpum fyrir verðandi forsetann Á morgun fara fram aukakosningar til öldungadeildar Bandaríkjaþings. Tveir sitjandi öldungadeildarþingmenn Georgíuríkis, báðir Repúblikanar, sækjast eftir endurkjöri. Niðurstöður kosninganna gætu litað fyrstu ár forsetatíðar Joes Biden mikið. Þær munu ráða því hvort Repúblikanar halda meirihluta sínum í deildinni eða ekki. Erlent 4. janúar 2021 23:26
Tóku Trump upp ef hann segði ósatt frá, sem hann svo gerði Brad Raffensperger, innanríkisráðherra Georgíu, og starfsmenn hans ákváðu að taka upp umdeilt símtal þeirra við Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, og starfsmenn hans meðal annars vegna þess hve frjálslega forsetinn hefur farið með sannleikann. Erlent 4. janúar 2021 15:01
Trump þrýsti á flokksbróður og hótaði til að hagræða úrslitunum Donald Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseti, hvatti flokksbróður sinn í Repúblikanaflokknum og innanríkisráðherra Georgíuríkis, Brad Raffensperger, til þess að „finna“ nógu mörg atkvæði í ríkinu til þess að snúa stöðunni í forsetakosningunum sem fram fóru í Bandaríkjunum í nóvember. Erlent 3. janúar 2021 20:43
Pence ánægður með þingmenninna sem vilja ekki samþykkja niðurstöðurnar Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, virðist ánægður með framtak ellefu öldungadeildarþingmanna Repúblikanaflokksins sem segjast ekki ætla að samþykkja niðurstöður forsetakosninganna þar ytra nema fram fari óháð rannsókn á kosningunum í ákveðnum ríkjum Bandaríkjanna. Erlent 3. janúar 2021 10:27
Þingmenn Repúblikana neita enn að viðurkenna niðurstöður kosninganna Ted Cruz og Ron Johnson eru á meðal þeirra öldungadeildarþingmanna úr röðum Repúblikanaflokksins sem segjast ekki ætla að samþykkja niðurstöður kosningaúrslita úr þeim ríkjum þar sem Donald Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseti, hefur dregið framkvæmd og úrslit kosninganna í efa. Erlent 2. janúar 2021 22:25
Lögsókn sem átti að heimila Pence að hafna kjörmönnum hent út Alríkisdómari í Texas hefur hafnað lögsókn fulltrúadeildarþingmanns Repúblikana og samflokksmanna hans í Arizona sem miðaði að því að heimila varaforseta Bandaríkjanna að hafna atkvæðum ákveðinna kjörmanna í forsetakosningunum ytra. Erlent 2. janúar 2021 10:37
Bandaríkjaþing virðir neitun Trumps að vettugi Bandaríska þingið hefur ákveðið að þvinga í gegn frumvarpi um fjárveitingar til varnarmála þrátt fyrir að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi beitt neitunarvaldi sínu og neitað að skrifa undir lögin. Erlent 1. janúar 2021 20:21
Þingmenn munu neyðast til að taka afstöðu með eða á móti Trump Öldungadeildarþingmaðurinn Josh Hawley greindi frá því í dag að hann hygðist mótmæla þegar Bandaríkjaþing „telur“ kjörmannaatkvæðin eftir forsetakosningarnar 6. janúar næstkomandi. Erlent 30. desember 2020 23:04
Deilurnar um ávísanirnar halda áfram Mitch McConnell, forseti öldungadeildar Bandaríkjaþings, kom sér undan því í gær að halda atkvæðagreiðslu um það að senda hverjum Bandaríkjamanni tvö þúsund dala ávísun. Frumvarpið hefur áður verið samþykkt í fulltrúadeildinni, þar sem Demókratar eru í meirihluta. Þar að auki hafði Donald Trump, fráfarandi forseti, krafist þess að frumvarp þar að lútandi yrði samþykkt. Erlent 30. desember 2020 13:45
Segir forystu Repúblikanaflokksins aumkunarverða og kunna ekkert nema að tapa Svo virðist sem uppreisn sé hafin gegn ofríki Donald Trump innan Repúblikanaflokksins en forsetinn fór mikinn á Twitter í dag eftir að samflokksmenn hans í fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykktu að þvinga í gegn frumvarpi um fjárveitingar til hermála, sem Trump hafði neitað að lögfesta með undirskrift sinni. Erlent 29. desember 2020 17:39
Sakar Trump-liða um að draga lappirnar Joe Biden, verðandi forseti Bandaríkjanna, segir að pólitískt ráðnir starfsmenn Donalds Trump, fráfarandi forseta, og Trump sjálfur séu að draga lappirnar varðandi stjórnarskiptin. Vísaði hann sérstaklega til starfsmanna stofnanna í varnarmálaráðuneytinu og Office of Management and Budget eða OMB. Erlent 29. desember 2020 15:01
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent