

Dómsmál
Fréttir af málum sem rata fyrir dómstóla.

Réðst á fyrrverandi kærustur og aðstoðarslökkviliðsstjóra
Karlmaður á fertugsaldri hefur hlotið tíu mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundinn til þriggja ára, í Héraðsdómi Austurlands fyrir brot gegn tveimur fyrrverandi kærustum sínum og gegn slökkviliðsmanni.

Ákærður fyrir að nauðga barnungri frænku sinni
Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að nauðga náfrænku sinni á barnsaldri. Við húsleit lögreglu kom í ljós að maðurinn hafði mikið magn barnaníðsefnis, þar á meðal af stúlkunni, í fórum sínum.

Verður kominn í rafrænt eftirlit þremur árum eftir manndrápið
Sæmundur Tryggvi Norðquist Sæmundsson, nítján ára karlmaður sem hlaut tólf ára fangelsisdóm fyrir manndráp við Fjarðarkaup í apríl í fyrra, afplánar nú á áfangaheimilinu Vernd. Þar má hann vera í átján mánuði og eftir það fer hann í rafrænt eftirlit, gangi allt að óskum.

Dómur yfir Alberti kveðinn upp á fimmtudag
Dómur í nauðgunarmáli Alberts Guðmundssonar verður kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur á fimmtudag. Verði hann sakfelldur á hann yfir höfði sér allt að sextán ára fangelsisdóm.

Mannekla bindur hendur héraðssaksóknara í samráðsmáli
Embætti héraðssaksóknara hefur ekki mannafla til þess að halda úti rannsókn á ólöglegu samráði Eimskipa og Samskipa á sama tíma og möguleg brot nálgast það að fyrnast. Sex starfsmönnum embættisins var sagt upp í fyrra vegna niðurskurðarkröfu stjórnvalda.

Nágrannaerjur í Kópavogi: Ekki sýnt fram á að ákveðin tré valdi verulegum óþægindum
Trjálundur í Hjallahverfinu í Kópavogi er uppspretta nágrannaerja sem hafa verið teknar fyrir á tveimur dómstigum. Landsréttur felldi dóm í málinu í gær og gerir konu, sem býr í einbýlishúsi í hverfinu, að klippa trjágróður við lóðarmörk nágranna hennar, sem búa í nærliggjandi parhúsi.

Níu ára stúlka sem féll niður loftræstistokk á rétt á skaðabótum
Barnung stúlka féll niður loftræstistokk við Þverholt í Mosfellsbæ árið 2015 og hlaut skaða af. Landsréttur staðfesti í gær dóm héraðsdóms um að eigandi fasteignarinnar þar sem slysið átti sér stað bæri skaðabótaábyrgð á slysinu.

Þrír í haldi í fíkniefnamáli
Þrír voru í dag úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald í héraðsdómi Reykjavíkur, grunaðir um aðild að fíkniefnamáli sem lögregla hefur til rannsóknar.

Kynferðisleg svefnröskun hélt ekki vatni
Landsréttur staðfesti í dag tveggja og hálfs árs fangelsisdóm á hendur manni í nauðgunarmáli. Honum var gefið að sök að nauðga konu sem var sofandi, en maðurinn bar fyrir sig að hann sé haldinn af kynferðislegri svefnröskun.

Ótrúverðugar skýringar í nauðgunarmáli
Arnar Björn Gíslason, 26 ára karlmaður, hefur verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun. Arnar Björn var sakfelldur í Héraðsdómi Reykjavíkur í nóvember í fyrra og var refsingin staðfest í Landsrétti í dag.

Gestur greiðir ekki krónu þó að pallaolía hafi hellst í bílinn
Gestur Breiðfjörð Gestsson viðskiptamaður var sýknaður af öllum kröfum bílaumboðsins BL ehf. fyrir Héraðsdómi Reykjaness í gær. BL krafðist þess að Gestur yrði dæmdur til að greiða 2.633.469 króna skuld eftir að pallaolíudósir fóru á flug inn í bílaleigubíl BL, sem hann var með til afnota, en við það opnuðust dósirnar og helltist pallaolían niður sem olli umtalsverðu tjóni í bílnum.

Tilefnislaus líkamsárás við Traðarkotssund „fyrir Pútín“
Karlmaður hlaut í gær tveggja mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára, fyrir líkamsárás við Traðarkotssund í miðbæ Reykjavíkur sem átti sér stað aðfaranótt laugardagsins 1. október árið 2022.

Tveggja milljarða gjaldþrot Ingvars Jónadabs tók tíu ár
Skiptum er nú lokið á þrotabúi Ingvars Jónadabs Karlssonar, sem rak heildverslunina Karl K. Karlsson um árabil, tíu árum eftir að hann var úrskurðaður gjaldþrota. 18,7 prósent fengust upp í ríflega tveggja milljarða króna lýstar kröfur.

Neituðu að hafa smyglað tuttugu milljónum sígaretta
Tveir sakborninga í máli sem varðar tollalagabrot upp á 741 milljón króna og innflutning á um einni milljón pakka af sígarettum neita sök. Einn sakborninga var erlendis þegar málið var þingfest í morgun og tekur afstöðu til sakarefnis síðar.

Tekinn með efni eftir að vinur sló sig í höfuðið með skiptilykli
Karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa haft amfetamín og nokkrar töflur af róandi og kvíðastillandi lyfi í fórum sínum. Lögregla framkvæmdi húsleit heima hjá honum eftir að hann hafði hringt á lögreglu vegna þess að vinur hans hafi slegið sjálfan sig í höfuðið með skiptilykli.

Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“
Dómari í Kaliforníu hefur komist að þeirri niðurstöðu að það hefði verið rangt af Netflix að halda því fram að þættirnir Baby Reindeer væru „sönn saga“ í upphafi þáttarins.

Hlaut varanlegan skaða vegna myglu en fær ekki krónu
Orkuveitan hefur verið sýknuð af öllum kröfum konu sem starfaði hjá fyrirtækinu en þurfti að hætta vegna veikinda af völdum myglu. Landsréttur taldi Orkuveituna hafa gripið til nægra ráðstafana með því að færa starfsmenn úr þeim hluta Orkuveituhússins sem var myglaður.

Samherji hvetur Odd Eystein til frekari verka
Samherji segist engan áhuga hafa haft að höfða mál gegn listamanninum Oddi Eysteini Friðrikssyni heldur neyðst til þess til að verja fjörutíu ára gamalt vörumerki. Sjávarútvegsfyrirtækið hvetji til listrænnar sköpunar og sér í lagi Odd til frekari verka svo framarlega sem hann virði réttindi samborgara sinna.

Veitingastaður ber ekki ábyrgð á hnefahöggi starfsmanns
Landsréttur hefur sýknað veitingastaðinn Fish house og tryggingafélag hans, Sjóvá, af kröfum manns sem varð fyrir líkamsárás af hendi starfsmanns staðarins á staðnum árið 2019. Áður hafði Héraðsdómur Reykjavíkur komist að þeirri niðurstöðu að maðurinn ætti rétt á bótum frá árásarmanninum, tryggingarfélaginu og skemmtistaðnum vegna tjónsins sem hann hlaut af árásinni.

Sagður hafa nauðgað konu fyrir níu árum
Karlmaður hefur verið ákærður fyrir nauðgun sem er sögð hafa átt sér stað þann 28. júní 2015, fyrir rúmum níu árum síðan.

Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum
Héraðssaksóknari hefur ákært Brynjar Joensen Creed fyrir kynferðislega áreitni gegn átta stúlkum. Stúlkurnar voru aldrinum 11 til 14 ára þegar brotin eiga að hafa átt sér stað. Brynjar afplánar nú sjö ára dóm fyrir nauðganir og önnur brot gegn fimm stúlkum. Fjallað var fyrst um ákæruna á vef RÚV í kvöld.

Sátt Eimskipa við Samkeppniseftirlitið kom Samskipum ekki við
Samskip hafði ekki hagsmuna að gæta í sátt sem Eimskip gerði við Samkeppniseftirliti í samráðsmáli fyrirtækjanna tveggja. Landsréttur sneri við niðurstöðu héraðsdóms sem hafði fallist á kröfur Samskipa um að reyna að fá sáttinni hnekkt.

Sextán ára dómur fyrir manndráp í Drangahrauni stendur
Landsréttur hefur staðfest sextán ára fangelsisdóm Maciej Jakub Talik fyrir að verða herbergisfélaga sínum, Jaroslaw Kaminski, að bana í Drangahrauni í Hafnarfirði sumarið 2023. Honum var gert að greiða þrjár og hálfa milljón króna í áfrýjunarkostnað.

Áfrýjaði engu nema ákvörðun um launin og málið fellt niður
Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Landsréttar um að fella niður mál ákæruvaldsins á hendur Alexander Mána Björnssyni, sem hætti við að áfrýja sex ára dómi í Bankastrætis club málinu svokallaða. Ómar Valdimarsson, verjandi hans, fór fram á að krafa um endurákvörðun málsvarnarlauna í héraði yrði tekin fyrir þrátt fyrir að fallið yrði frá málinu að öðru leyti.

Varla komist í kast við lögin fyrr en hann flutti kókaín til landsins
Albert Lleshi hefur hlotið tveggja ára og átta mánaða langan fangelsisdóm fyrir að flytja rétt rúm tvö kíló af kókaíni til landsins.

Kona ákærð fyrir stunguárás í Mosfellsbæ
Kona hefur verið ákærð fyrir stunguárás sem á að hafa átt sér stað í íbúð í Mosfellsbæ um nótt í apríl 2021.

„Sérstakar ástæður“ urðu til þess að dómur skrifstofustjórans var ekki birtur
Sérstakar ástæður, sem ekki er talið unnt að gefa upp á grundvelli persónuverndarsjónarmiða, urðu til þess að dómur yfir Magnúsi Stefáni Jónassyni, fyrrverandi forseta bæjarstjórnar Fjallabyggðar og skrifstofustjóra Afls sparisjóðs á Siglufirði, var ekki birtur.

Talinn hafa stungið mann eftir að hafa skemmt bílinn hans
Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að valda skemmdum á bíl annars manns, brjótast inn til hans og stinga hann í tvígang. Atvikið sem málið varðar átti sér stað í Kópavogi árið 2022.

Tveir hafa játað sök í stóra fíkniefnamálinu sem fer ekki fet
Aðalmeðferð umfangsmikils fíkniefnamáls, sem hefur verið kennt við skemmtiferðaskip en líka verið kallað stóra fíkniefnamálið, mun fara fram í sal 101 í Héraðsdómi Reykjavíkur dagana 28. október til 6. nóvember.

Mál Samherja gegn Odee tekið fyrir dóm í vikunni
Réttarhöld í máli Samherja gegn Oddi Eysteini Friðrikssyni, sem gengur undir listamannsnafninu Odee, hefjast í London á fimmtudag. Samherji höfðaði málið eftir að Oddur sendi út afsökunarbeiðni í nafni fyrirtækisins vegna framgöngu þess í Namibíu.