Ákærður fyrir að nauðga barnungri hálfsystur sinni Karlmaður hefur verið ákærður fyrir tvær nauðganir en önnur þeirra beindist gegn barnungri hálfsystur hans. Meint brot mannsins áttu sér stað árið 2021, annars vegar í maí og hins vegar í júní. Innlent 24. maí 2024 08:00
Landsbankinn telur skilmála sína nógu skýra Skilmálar fasteignalána Landsbankans uppfylla íslensk og evrópsk lög að mati bankans þrátt fyrir að EFTA-dómstóllinn hafi gert athugasemdir við að orðalag um breytilega vexti væri ekki gagnsætt í dag. Viðskipti innlent 23. maí 2024 18:35
Þarf að endurgreiða sinni fyrrverandi eftir allt saman Karlmaður sem fékk níutíu prósent skuldbindinga sinna felld niður með greiðsluaðlögunarsamningum eftir efnahagshrun þarf að endurgreiða fyrrverandi eiginkonu sinni greiðslur vegna krafna sem hún hafði greitt sem ábyrgðarmaður. Hann þarf að greiða henni 1,7 milljónir króna með dráttarvöxtum. Innlent 23. maí 2024 17:01
Orðalag þurfi að vera nægilega skýrt fyrir sæmilega upplýstan neytanda EFTA dómstóllinn segir að orðalag í skilmálum lána þurfi að vera nægilega gagnsætt jafnvel þó það þyki málfræðilega skýrt og skiljanlegt. Skilmálarnir þurfi að vera skiljanlegir þannig að almennur neytandi sem teljist sæmilega vel upplýstur og athugull geti skilið aðferðina sem beitt er við ákvörðun um útlánsvexti. Viðskipti innlent 23. maí 2024 15:25
Ákærður fyrir stunguárás á akbraut Karlmaður hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps með því að stinga annan mann tvisvar sinnum um nótt á þessu ári, en dagsetning atviksins kemur ekki fram í nafnhreinsaðri ákæru sem fréttastofa hefur undir höndum. Innlent 22. maí 2024 16:47
Sker úr um hvort sáðlát yfir andlit með valdi sé nauðgun Hæstiréttur hefur veitt Gareese Joshua Gray, sem var sakfelldur fyrir nauðgun í Landsrétti, áfrýjunarleyfi. Að mati Hæstaréttar er ekki útilokað að hann komist að annarri niðurstöðu en Landsréttur um hvort það teljist nauðgun að hafa sáðlát yfir andlit með valdi. Innlent 22. maí 2024 14:11
Kona sem sendi nektarmyndir í bræði fær grænt ljós Hæstiréttur hefur samþykkt beiðni konu um að taka mál hennar fyrir, en það varðar sendingar hennar af nektarmyndum sem sýndu eiginmann hennar og aðra konu. Innlent 22. maí 2024 12:20
Aþena Sif dæmd fyrir stórfellda líkamsárás með Butterfly-hnífi Aþena Sif Eiðsdóttir, 23 ára kona, hefur verið dæmd í fjögurra ára óskilorðsbundið fangelsi. Hún var sakfelld fyrir stórfellda líkamsárás, með því að stinga aðra konu með svokölluðum butterfly-hnífi fimm sinnum í september árið 2022. Ekki var fallist á að um hafi verið að ræða tilraun til manndráps. Innlent 22. maí 2024 09:25
Pétur Jökull ákærður í stóra kókaínmálinu Héraðssaksóknari gaf í dag út ákæru á hendur Pétri Jökli Jónassyni fyrir aðild að innflutningi á nærri hundrað kílóum af kókaíni til landsins fyrir tveimur árum síðan. Fjórir hafa þegar verið dæmdir í þessu svokallaða stóra kókaínmáli sem er stærsta kókaínmál Íslandssögunnar. Innlent 21. maí 2024 20:26
Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Bergvin Oddsson, fyrrverandi formaður Blindrafélags Íslands, hefur verið sakfelldur í Héraðsdómi Suðurlands fyrir kynferðislega áreitni gegn þremur konum. Hann fær sjö mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára, vegna brotanna. Innlent 18. maí 2024 15:11
Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Karlmaður á sjötugsaldri hefur verið ákærður fyrir að kasta af sér þvagi á almannafæri. Þetta kemur fram í Lögbirtingablaðinu, en það er Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra sem höfðar málið. Innlent 18. maí 2024 09:57
Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Landsréttur staðfesti dóm yfir karlmanni í dag sem varðar fíkniefnalagabrot, vopnalagabrot og peningaþvætti. Móðir hans hafði verið sakfelld í héraði í málinu en lést á síðasta ári. Landsréttur vísaði sakargiftum hennar frá dómi. Innlent 17. maí 2024 16:22
Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Líkamsræktarþjálfari á rétt á bótum frá tryggingafélaginu Sjóvá vegna slyss sem hann varð fyrir í æfingasal líkamsræktarstöðvar árið 2021 þar sem hann var yfirþjálfari. Það var Héraðsdómur Reykjavíkur sem komst að þessari niðurstöðu. Innlent 16. maí 2024 16:11
Hæstiréttur segir tíma í flugvél vera vinnutíma Hæstiréttur hefur viðurkennt að starfsmaður átti að fá greitt fyrir þann tíma sem hann varði í flugvélum í vinnuferð. Þar með staðfestir Hæstiréttur dóm Landsréttar. Innlent 15. maí 2024 15:17
Illa orðað samningsákvæði varð KA að falli Óvandvirkni við samningagerð virðist hafa reynst KA dýrkeypt í dómsmáli liðsins og Arnars Grétarssonar, fyrrum þjálfara liðsins, ef rýnt er í dóm Héraðsdóms. KA var í gær dæmt til að greiða Arnari tæpar níu milljónir í vangoldin laun vegna samningsákvæðis sem sneri að bónusgreiðslum. Íslenski boltinn 15. maí 2024 11:05
KA dæmt til að greiða Arnari tæpar ellefu milljónir Knattspyrnufélag Akureyrar þarf að greiða Arnari Grétarssyni, fyrrverandi þjálfara meistaraflokks karla, ellefu milljónir króna. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Norðurlands eystra sem kveðinn var upp í dag. Íslenski boltinn 14. maí 2024 15:06
Dæmdir fyrir ofbeldishrinu Tveir menn hlutu sex mánaða skilorðsbundna fangelsisdóma hvor um sig í Héraðsdómi Suðurlands á dögunum fyrir fjölda ofbeldisbrota. Þeir voru ákærðir fyrir samanlagt sex brot, fjórar líkamsárásir, árás gegn tveimur lögregluþjónum og eina hótun. Innlent 14. maí 2024 14:17
Vitni gefur ekki upp nafn vegna ótta við hefndaraðgerðir Maður, sem hefur stöðu brotaþola í sakamáli, þarf ekki að gefa upp nafn annars manns fyrir dómi. Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis. Innlent 14. maí 2024 11:23
Sáu ekki andlit huldumanns sem þeir telja vera Pétur Jökul Pétur Jökull Jónasson neitar sök í stóra kókaínmálinu svokallaða. Hann vill ekki tjá sig um gögn lögreglu í málinu sem varða til dæmis staðsetningar á farsímum, ferðalög milli landa, tengsl hans við aðra sakborninga. Innlent 13. maí 2024 22:02
Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi vegna ofsaaksturs undir áhrifum Karlmaður hefur hlotið níu mánaða fangelsisdóm, en þar af eru sex mánuðir skilorðsbundinir til tveggja ára, í Héraðsdómi Suðurlands fyrir manndráp af gáleysi. Maðurinn ók bíl sem endaði utan vegar við Meðallandsveg, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um nótt í júli 2022. Innlent 13. maí 2024 12:22
Reyndi að drepa mann eftir að upp úr sauð á gamlárskvöld Skúli Helgason, karlmaður á fertugsaldri, hefur verið dæmdur til fimm ára fangelsisvistar fyrir tilraun til manndráps, með því að stinga mann ítrekað. Í héraði hlaut hann aðeins þriggja og hálfs árs refsingu. Innlent 10. maí 2024 16:51
MAST olli Brúneggjum tjóni en RÚV sýknað Landsréttur sýknaði Ríkisútvarpið en dæmdi Matvælastofnun til skaðabótaábyrgðar í dag í skaðabótamáli fyrrverandi eigenda Brúneggja. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður sýknað stofnanirnar tvær í málinu. Viðskipti innlent 10. maí 2024 15:43
Sýknaður af nauðgun en enginn vafi að konan telji á sér brotið Karlmaður hefur verið sýknaður af ákæru um nauðgun af Héraðsdómi Austurlands. Segir í dómnum að ekki hafi verið færð nógu sannfærandi rök fyrir því að manninum hafi verið ljóst að hann gengi gegn vilja konunnar. Enginn vafi sé þó hjá dómnum að konan telji að á sér hafi verið brotið. Innlent 9. maí 2024 17:01
Leggja aftur fram tillögu um að selja húsnæði MÍR Tillaga um sölu á húsnæði íslensk-rússneska félagsins MÍR verður lögð fram á nýjum aðalfundi sem boðað hefur verið til í lok mánaðar. Fyrri aðalfundur og ákvörðun um söluna var ógilt af dómstól fyrr á þessu ári. Innlent 9. maí 2024 07:01
Kannabis en ekki kjólar í kassanum Karlmaður hefur verið dæmdur í fimm mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir tilraun til að flytja inn 4,5 kíló af kannabisefnum. Hann reyndi að koma efnunum til landsins í hraðsendingu sem var merkt kvenfatnaði. Innlent 8. maí 2024 12:13
Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Tvær ungar konur segjast ekki hafa þekkt hvor aðra áður en önnur þeirra stakk hina. Sú sem er grunuð um að hafa stungið hina segir hana hafa ráðist á sig að fyrra bragði, en sú sem varð fyrir stungunni kannast ekki við það. Sambandsslit og meint framhjáhald eru miðlæg í málinu. Innlent 8. maí 2024 08:31
Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Enok Vatnar Jónsson, sjó- og athafnamaður, hefur verið ákærður fyrir tvær grófar líkamsárásir. Við framkvæmd annarrar þeirra henti hann brotaþola niður tröppur. Innlent 7. maí 2024 17:03
Háttsemi dómara ekki saknæm og Isavia fær því enga milljarða Hæstiréttur hefur sýknað íslenska ríkið og bandarísku flugvélaleiguna ALC af milljarðakröfum Isavia. Þar með staðfestir Hæstiréttur dóm Landsréttar, en Héraðsdómur Reykjavíkur hafði komist að annarri niðurstöðu og taldi að dómari við Héraðsdóm Reykjaness hefði komist að rangri niðurstöðu með saknæmum hætti í deilunni. Viðskipti innlent 6. maí 2024 16:36
Hindraði mann sem ætlaði að komast úr bíl við Bónusbúð Karlmaður á fimmtugsaldri hefur hlotið tveggja mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára, í Héraðsdómi Reykjaness vegna atviks sem átti sér stað í lok janúar á þessu ári. Innlent 6. maí 2024 10:16
Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Hæstaréttarlögmaður veltir því fyrir sér hvernig ríkið ætli að endurheimta fé sem fyrrverandi Ríkislögreglustjóri gaf undirmönnum sínum rétt fyrir eigin starfslok. Hann segir háttsemi Ríkislögreglustjóra líklega bótaskylda og jafnvel refsiverða. Innlent 4. maí 2024 13:06