Deila um hjartastopp endaði með tugmilljóna bótum Árni Sæberg skrifar 27. mars 2026 11:59 Landsréttur kvað upp dóm sinn í málinu í gær. Vísir/Vilhelm Tryggingafélagið Vís hefur verið dæmt til að greiða ekkju og tveimur börnum karlmanns, sem lést eftir umferðarslys árið 2022, 33 milljónir króna í bætur auk vaxta og dráttarvaxta. Maðurinn lést af völdum hjartastopps og tekist var á um hvort það hefði orsakast af slysinu eða bráðri kransæðastíflu, sem sannað þótti að maðurinn hefði þjáðst af í aðdraganda slyssins.
Dómur Landsréttar þess efnis var kveðinn upp í gær. Málið var dæmt af tveimur landsréttardómurum og einum sérfróðum meðdómanda. Annar landsréttardómarinn skilaði sératkvæði og taldi að sýkna ætti Vís af kröfum erfingja mannsins. Bíllinn á hvolfi og maðurinn í hjartastoppi Í dómi meiri hluta dómsins segir að í október árið 2022 hafi maðurinn ekið út af veginum við Bústaðaveg í Reykjavík og velt bílnum, sem hafi verið tryggð lögboðinni ökutækjatryggingu hjá Vís. Þegar viðbragðsaðila bar að garði hafi bíllinn verið á hvolfi og maðurinn í hjartastoppi. Við komu á bráðamóttöku hafi rannsóknir sýnt að maðurinn þjáðist af bráðri kransæðastíflu. Endurlífgunartilraunir hafi borið árangur en maðurinn verið úrskurðaður látinn nokkrum dögum síðar. Líkamsstaðan hafi orsakað hjartastoppið Málatilbúnaður erfingjanna hafi í meginatriðum byggst á því að hættueiginleikar bifreiðarinnar hafi verið orsök andláts mannsins. Á því hafi verið byggt að hann hafi ekki verið kominn í hjartastopp þegar hann ók út af veginum og að bílveltan og líkamsstaða hans í kjölfarið, á hvolfi í bílbelti, hafi stuðlað að hjartastoppi. Með því sé fullnægt bótaskilyrðum laga um ökutækjatryggingar, þess efnis að tjón erfingjanna, vegna missis framfæranda, sé að rekja til notkunar ökutækis. Í meginatriðum hafi Vís byggt á því að gögn málsins bendi til þess að maðurinn hafi farið í hjartastopp áður en hann ók út af veginum, og því sé andlát hans ekki að rekja til notkunar bifreiðar í skilningi laganna. Þá byggi félagið á því að jafnvel þó að lagt yrði til grundvallar að hann hafi farið í hjartastoppið eftir að bifreiðin valt skorti að sýnt sé fram á orsakatengsl milli hjartastoppsins og notkunar og stjórnunar bifreiðarinnar. Ómögulegt að segja til um hvenær hjartað stöðvaðist Í niðurstöðukafla dómsins segir að í málinu sé óumdeilt að banamein mannsins hafi verið hjartastopp í kjölfar kransæðastíflu. Í matsgerð dómkvadds matsmanns sé fullyrt að nánast öruggt sé að maðurinn hafi verið með bráða kransæðastíflu með lokun á vinstri kransæð fyrir slysið, sem sem hafi valdið súrefnisþurrð og drepi í hjartavöðva. Í skýrslugjöf fyrir héraðsdómi hafi matsmaðurinn enn fremur fullyrt að nánast öruggt væri að hann hefði fengið kransæðastíflu einum til þremur klukkustundum áður en hann ók út af veginum. Svör matsmannsins hafi jafnframt verið skýr um að ómögulegt væri að segja til um nákvæmlega hvenær maðurinn fór í hjartastopp, þar á meðal hvort það hafi verið fyrir eða eftir útafaksturinn. Mögulegt væri að hækkaður púls og blóðþrýstingur strax eftir slys hefði aukið á súrefnisþurrð í hjarta og aukið líkur á hjartastoppi, en þó einungis ef viðkomandi hefði þjáðst af undirliggjandi kransæðastíflu. Spurður sérstaklega um bráðakransæðastíflu, á borð við þá sem maðurinn fékk, hafi matsmaðurinn sagt að hún leiddi ekki alltaf til hjartastopps og að rannsóknir bentu til þess að 11,6 prósent þeirra sem fengju bráðakransæðastíflu færu í hjartastopp, en hlutföllin gætu verið hærri. Vís látið bera sönnunarbyrðina Samkvæmt þessu sé ljóst að maðurinn þjáðist af bráðri kransæðastíflu í aðdraganda þess að hann lést af hjartastoppi. Um aðdraganda andlátsins að öðru leyti verði af gögnum málsins ekki ályktað með vissu hvenær hann fór í hjartastopp. Engar haldbærar ályktanir verði dregnar af því að lítil eða engin hjól- eða skriðför hafi verið við komu á vettvang. Þá feli hugleiðingar málsaðila um það hvort að möguleikar á endurlífgun hafi aukist eða minnkað vegna þess að maðurinn var í bifreið þegar hann fékk hjartastopp einungis í sér getgátur sem niðurstaða dómsins verði ekki reist á. Á hinn bóginn liggi fyrir að maðurinn var ökumaður þeirrar bifreiðar sem ók út af Bústaðavegi, valt og lenti á hvolfi, þar sem maðurinn fannst síðan í hjartastoppi. Ótvírætt sé að útafaksturinn og veltan hafi leitt beint af hættueiginleikum bifreiðarinnar, sem hafi verið á ferð, og að hjartastoppið leitt til andláts mannsins. „Eins og atvikum er háttað að þessu leyti þykir stefndi verða að bera sönnunarbyrði um það hvenær hjartastoppið varð og að það hafi komið til af orsökum ótengdum notkun bifreiðarinnar. Þar sem slíkt er ósannað verður að leggja til grundvallar að nægilega sé í ljós leitt að tjónið sé að rekja til hættueiginleika bifreiðarinnar og þar með til notkunar ökutækis.“ Því væri fallist á kröfur erfingjanna. Ekkjunni voru dæmdar 29 milljónir króna í bætur, ófjárráða syni hjónanna 2,5 milljónir króna og fjárráða barni þeirra 1,1 milljón. Ofan á allt þetta bætast vextir frá dánardegi mannsins og dráttarvextir frá 21. janúar 2023. Þá var Vís dæmt til að greiða fjórar milljónir króna í málskostnað.
Dómsmál Tryggingar Samgönguslys Mest lesið Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Kærastinn var á staðnum Erlent Fleiri fréttir Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Sjá meira