

Dómsmál
Fréttir af málum sem rata fyrir dómstóla.

Skipasali dró sér aflahlutdeild í eigu fyrrverandi tengdaföður
Löggiltur skipasali á fimmtugsaldri var í Héraðsdómi Reykjaness fyrir tæpri viku dæmdur í átján mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fjárdrátt.

Óttast ekki málsókn og íhugar réttarstöðu sína
Seðlabankastjóri segir innistæðu hafa verið fyrir málarekstri bankans gegn Samherja, þrátt fyrir nýuppkveðinn dóm Hæstaréttar.

Segir það hafa verið ótvíræða skyldu að kæra Samherja
Seðlabankastjóri segir að bankanum hafi verið skylt að kæra Samherja vegna brota á reglum um gjaldeyrismál. Hann hafi kannað að ljúka málinu með sáttaferli, sem lögmenn bankans hafi hins vegar útilokað.

Segir málsmeðferð í Landsrétti hafa einkennst af virðingarleysi
Óskað verður eftir áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar í máli Thomasar Møller Olsen. Verjandi telur dómsformanninn, Sigurð Tómas Magnússon, vanhæfan vegna verktakavinnu fyrir ákæruvaldið.

Hæstiréttur tekur lögbannsmálið fyrir
Hæstiréttur Íslands hefur fallist á beiðni Glitnis HoldCo um að lögbannsmál þrotabúsins gegn Stundinni verði tekið fyrir.

Fimmtán mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fjórtán ára stúlku
Maðurinn fór tvisvar frá mars til maí 2016 með stúlku sem þá var fjórtán ára heim til sín þar sem stúlkan veitti manninum munnmök og þau höfðu samræði.

Fangelsisdómur yfir Kickstarter-bróður vegna fjársvika staðfestur
Einar Ágústsson var dæmdur í þriggja ára og níu mánaða fangelsi fyrir að hafa svikið tugi milljóna út úr fjórum einstaklingum.

Máli Eikar gegn Andra Má vegna sölu á Heimshótelum vísað aftur í hérað
Landsréttur hefur úrskurðað að Héraðsdómur Reykjavíkur skuli taka fyrir skaðabótamál fasteignafélagsins Eikar gegn Andra Má Ingólfssyni vegna sölu hins síðarnefnda á Heimshótelum árið 2016.

Tvö og hálft ár fyrir innbrotið í Gullsmiðju Óla
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir innbrot í skartgripabúðina Gullsmiðju Óla í Hamraborg í Kópavogi í maí síðastliðnum og sautján umferðar- og fíkniefnalagabrot.

Trillukarl fór skógarferð í hérað vegna gallalauss gírs
Karlmaður sem krafðist þess fyrir dómi að fá vél og vélarhluti bætta frá fyrirtækinu sem hann keypti hlutina frá þarf að greiða allan málskostnað í málinu auk álags vegna þarflausrar málsóknar.

Áfram í haldi vegna árásar sem leiddi til lömunar dyravarðar
Maðurinn hefur verið í haldi vegna málsins frá því hann var handtekinn í lok ágúst.

Þriggja mánaða fangelsi fyrir fimm þúsund króna þjófnað
Héraðsdómur Vestfjarða hefur dæmt konu í þriggja mánaða fangelsi fyrir stuld á snyrtivörum að verðmæti tæplega fimm þúsund króna úr verslur Lyfju á Ísafirði.

Sýknaður af nauðgun: „Ef þú værir dóttir mín myndi ég segja þér að kæra“
Héraðsdómur Norðurlands vestra hefur sýknað karlmann af ákæru um naugðun.

Sýknuð í hundruð milljóna króna fjársvikamáli
Karl og kona voru fyrir helgi sýknuð í Landsrétti í umfangsmesta fjársvikamáli íslenskrar réttarsögu. Fólkið, var ásamt öðrum sakborningum í málinu, sakfellt í héraðsdómi fyrir hátt í 300 milljóna fjársvik og peningaþvætti, sem átti sér stað árin 2009-2010.

Íslensk sjálfboðaliðasamtök sýknuð af launakröfu
Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag sjálfboðaliðasamtökin Seeds á Íslandi af launakröfu portúgalska doktorsnemans Tiago Quintanihla. Krafan sneri að vangoldnum launum og hljóðaði upp á rúmar tvær milljónir króna.

Bótamál hjúkrunarfræðings fer til Hæstaréttar
Hæstiréttur hefur samþykkt beiðni Ástu Kristínar Andrésdóttur um áfrýjun dóms Landsréttar sem hafnaði kröfu hennar um skaðabætur frá ríkinu.

Snorri í Betel fær lægri bætur eftir dóm Hæstaréttar
Hæstiréttur hefur dæmt Snorra Óskarssyni, sem oft er kenndur við hvítasunnusöfnuðinn Betel, 3,5 milljónir króna í skaðabætur vegna ólögmætrar uppsagnar þegar honum var sagt upp störfum sem kennara við Brekkuskóla á Akureyri í júlí 2012.

„Þessi verk voru unnin“
Sigurður Ragnar Kristinsson þarf einn að svara til saka fyrir meint meiriháttar skattalagabrot í rekstri verktakafyrirtæksins SS verks ehf.

Strawberries-málið ekki fyrir Hæstarétt
Hæstiréttur mun ekki taka fyrir mál Viðars Márs Friðfinnssonar, fyrrverrandi eiganda kampavínsklúbbsins Strawberries. Óskað var eftir leyfi til þess að skjóta málinu til Hæstaréttar.

Júlíus Vífill telur að skrif og stjórnmálaþátttaka rannsakandans hafi litað rannsókn á meintu peningaþvætti
Júlíus Vífill Ingvarsson, fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, krefst þess að hann verði sýknaður af ákæru um peningaþvætti. Hann telur að stjórnmálaskoðanir og skrif stjórnanda lögreglurannsóknarinnar á máli hans kunni að hafa litað rannsóknina og útgáfu ákærunnar.

Már upptekinn í útlöndum
Már Guðmundsson seðlabankastjóri getur ekki veitt viðtöl þar sem hann fundar nú með öðrum seðlabankastjórum á fundi Alþjóðagreiðslubankans í Basel í Sviss.

Neitar að hafa stolið skútunni
Farbann yfir manninum hefur verið framlengt þangað til 10. desember næstkomandi.

Lögreglan læri meira af því liðna segir verjandi
Verjandi í gagnaversmálinu segir lögregluna eiga eftir að læra af Guðmundar- og Geirfinnsmálum. Hann fékk sjálfur stöðu sakbornings. Saksóknari vísar gagnrýni verjenda á bug og segir þá fara með dylgjur og ósannaðar staðhæfingar.

„Nokkuð ljóst að Már Guðmundsson er á leiðinni í fangelsi“
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, segir Má Guðmundsson sekan um refsivert athæfi.

Skýringar smyglara á kókaíni í nærbuxunum „afar fjarstæðukendar“
Tveir Litháar hafa verið dæmdir í átján mánaða fangelsi fyrir að hafa staðið að innfluttningi á um 700 grömmum af kókaíni hingað til lands. Dómara þótti skýringar annars mannsins á því hvernig efnin rötuðu í hendur hans "afar fjarstæðukenndar“.

Sakaður um tvær nauðganir á nokkrum klukkustundum
Karlmaður sætir ákæru héraðssaksóknara fyrir nauðgun með því að hafa fyrst aðfaranótt og síðan að morgni sunnudagsins 11. janúar 2015 haft samræði við konu án hennar samþykkis og vilja með því að beita hana ólögmætri nauðung.

Kröfu Ólafs hafnað af Hæstarétti
Hæstiréttur hefur hafnað kröfu Ólafs Ólafssonar, fyrrverandi hluthafa í Kaupþingi, þess efnis að Vilhjálmur Vilhjálmsson landsréttardómari víki sæti í máli þess fyrrnefnda fyrir réttinum.

Grunaður um nauðgun á salerninu á Hressó
Erlendur karlmaður er sakaður um að hafa nauðgað konu á veitingastaðnum Hressó í Austurstræti aðfaranótt Valentínusardagsins þann 14. febrúar 2016.

Lagði til atlögu með hnífsblaði í krepptum hnefa
Maðurinn sem er í haldi lögreglunnar á Akureyri grunaður um tilraun til manndráps lagði til atlögu að fórnarlambinu með hnífsblaði í krepptum hnefa. Fórnarlambið hlaut alls tíu stungusár.

Ákærður fyrir brot gegn barnungri stjúpdóttur
Karlmaður sætir ákæru héraðssaksóknara fyrir kynferðisbrot gegn dóttur þáverandi sambýliskonu yfir tveggja ára tímabil. Stúlkan var á grunnskólaaldri þegar meint brot áttu sér stað fyrir þremur til fimm árum.