
Blaðamenn gera 50 milljóna króna kröfu á hendur Torgi
Helga Magnússyni var ókunnugt um að slík kröfugerð væri inni í myndinni þegar hann keypti helmingshlut í blaðinu.
Fréttir af málum sem rata fyrir dómstóla.
Helga Magnússyni var ókunnugt um að slík kröfugerð væri inni í myndinni þegar hann keypti helmingshlut í blaðinu.
Rúmlega sjötug kona búsett á Akranesi var í maí dæmd í fjögurra ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps í parhúsi á Akranesi að næturlagi í nóvember 2018.
Lögmenn í máli Seðlabanka Íslands gegn Ara Brynjólfssyni, blaðamanni Fréttablaðsins, tókust á um upplýsingalög og framgöngu Seðlabankans gagnvart „varðhundi almennings“, blaðamanninum, í Héraðsdómi Reykjaness dag.
Máli héraðssaksóknara á hendur fjórum liðsmönnum hljómsveitarinnar Sigur Rósar, tveimur núverandi og tveimur fyrrverandi, var vísað frá Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun.
Í dag fer fram munnlegur málflutningur í máli Seðlabanka Íslands gegn Ara Brynjólfssyni, blaðamanni Fréttablaðsins, í Héraðsdómi Reykjaness.
Tvö sakamál gegn Guðmundi Andra Ástráðssyni, kæranda Landsréttarmálsins, eru nú rekin fyrir íslenskum dómstólum; eitt fyrir Héraðsdómi Suðurlands þar sem Guðmundur neitar sök og annað sem þegar hefur verið dæmt í héraði og er nú rekið fyrir Landsrétti.
21 árs karlmaður hefur verið dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás á Götubarnum í miðbæ Akureyrar.
Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir alla hafa gleymt því að sakborningar í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu hafi verið dæmdir fyrir ýmislegt annað.
Maðurinn komst í tengsl við piltinn sem er ólögráða þegar hann kom til dvalar á heimili móður hans.
Héraðssaksóknari hefur ákært karlmann á Vestfjörðum fyrir endurtekin kynferðisbrot og brot gegn barnaverndarlögum í sundlaug og íþróttamiðstöð á Vestfjörðum.
Viðmælandi Jóns Ársæls vill fá 5 milljónir króna í bætur.
Frumvarpi forsætisráðherra til laga um heimild til að greiða bætur vegna sýknudóms Hæstaréttar í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu hefur verið dreift á Alþingi.
Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í síðustu viku Landsbankann af kröfum fyrrverandi starfsmanns bankans. Starfsmaðurinn krafði bankann um rúmar 22 milljónir króna í bætur vegna tjóns sem hún kvaðst hafa orðið fyrir við starfslok.
Viðskipti um hlut í rekstrarfélagi Hótel Rangár árið 2013 eru fyrir dómi. Fyrrverandi framkvæmdastjóri félagsins og hluthafi telur að snuðað hafi verið á sér og að umsamið kaupverðið hafi verið alltof lágt.
Maður sem dæmdur var nýverið fyrir ítrekuð kynferðisbrot gegn barni dvelur nú í opnu fangelsi.
Rithöfundurinn Auður Jónsdóttir ræddi mál leikarans Atla Rafns Sigurðarsonar gegn Leikfélagi Reykjavíkur og Kristínu Eysteinsdóttur, leikhússstjóra fyrir ólögmæta uppsögn.
Tveir karlmenn sem sæta ákæru héraðssaksóknara fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás neituðu báðir sök við þingfestingu málsins sem er til meðferðar í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Fyrrum skrifstofustjóri Sparisjóðsins á Siglufirði og forseti bæjarstjórnar í Fjallabyggð er ákærður fyrir stórfelldan fjárdrátt, umboðssvik og peningaþvætti. Fjórtán bankareikningar voru frystir. Málið tekið fyrir í næstu viku.
Karlmaður, sem í fyrra var dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir nauðgun, var sýknaður af nauðgunarákærunni í Landsrétti í dag.
Héraðssaksóknari hefur ákært karlmann fyrir þrenns konar kynferðisbrot gegn stúlku þegar hún var á aldrinum níu til sextán ára gömul.
Fyrrverandi gjaldkeri Ungmennafélags Grundarfjarðar, UMFG, hefur verið dæmdur í tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fjárdrátt og peningaþvætti.
Ari Alexander Magnússon leikstjóri segir að ung leikkona hafi logið upp á fjörutíu manna tökulið, þeirra á meðal Atla Rafn Sigurðarson leikara, með frásögn sinni undir merkjum #metoo í nóvember 2017. Lýsingar hennar á því sem gerst hafi verði auðveldlega hraktar enda sé allt til á upptökum.
Meint fjársvik Magnúsar Ólafs Garðarssonar, stofnanda United Silicon, nema um 1,8 milljarði króna samkvæmt þremur stefnum.
Þorsteinn Halldórsson, sem ákærður hefur verið fyrir kynferðisbrot gegn barni, er sakaður um að hafa brotið á barninu í að minnsta kosti fimmtíu skipti á árunum 2015 til 2017 er barnið var á aldrinum 14 til sautján ára. Þá er hann einnig ákærður fyrir að hafa sent kynferðislegar myndir af drengnum til óþekktra aðila.
Lögmaður Borgarleikhússins spurði hvort því hafi verið skylt að halda Atla Rafni í vinnu eftir að ásakanir um kynferðislega áreitni komu fram. Lögmaður leikarans sagði að mannorði hans hefði verið kálað með uppsögn hans árið 2017.
Pólsk hjón sem sæta ákæru fyrir peningaþvætti neituðu sök við þingfestingu málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun.
Fjórir þáverandi starfsmenn Borgarleikhússins greindu Kristínu Eysteinsdóttur, leikhússtjóra, frá ásökunum um kynferðislega áreitni og ofbeldi af hálfu Atla Rafns Sigurðarsonar og lýstu vanlíðan á vinnustaðnum.
Leikarinn Atli Rafn Sigurðarson sagði að honum hefði verið haldið í algeru myrkri um ásakanir um kynferðislega áreitni og ofbeldi.
Þrotabú Sameinaðs sílíkons hefur stefnt Magnúsi Ólafi Garðarssyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra fyrirtækisins, og krafið hann um greiðlu upp á rúmlega 1,2 milljarð króna auk vaxta aftur til ársins 2013.
Frjálsíþróttakonan fyrrverandi Silja Úlfarsdóttir þarf að greiða Landsbankanum 21,4 milljónir eftir að Héraðsdómur Reykjaness dæmdi bankanum í vil í máli hans gegn Silju. Málið snerist um greiðslu á veðskuldabréfi í tengslum við íbúðarkaup Silju og fyrrverandi eiginmanns hennar, sem lést árið 2015.