

Bónus-deild kvenna
Leikirnir

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Grindavík 72-93 | Grindavík straujaði yfir Íslandsmeistarana
Íslandsmeistara Vals tóku á móti Grindvíkingum í Subway-deild kvenna í körfubolta í kvöld. Eftir nokkuð jafnan leik í byrjun settu Grindvíkingar í gírinn í 3. leikhluta og gerðu í raun út um leikinn þar sem þær komu muninn upp í 20 stig og hálfgert formsatriði fyrir gestina að sigla sigrinum heim sem þær og gerðu.

„Þær eru eins og staðan er í dag því miður bara töluvert betri en við“
Hjalti Þór Vilhjálmsson, þjálfari Vals, var nokkuð beygður eftir tap hans kvenna gegn Grindavík á heimavelli í kvöld, lokatölur 72-93 í Origo höllinni og annað tap Vals í röð staðreynd og það sjötta í tólf leikjum.

Þór vann stórsigur og Stjarnan komst aftur á sigurbraut
Þór Akureyri og Stjarnan unnu góða sigra í 12. umferð Subway-deildar kvenna í körfubolta í kvöld. Þórsarar unnu öruggan 33 stiga sigur gegn Snæfellingum og Stjarnan komst aftur á sigurbraut með sex stiga sigri gegn Fjölni.

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik-Njarðvík 63-92 | Njarðvík sigldi Blika í kaf í Smáranum
Njarðvík fór með 63-92 sigur af hólmi þegar liðið sótti Breiðablik heim í Smárann í Kópavoginn í elleftu umferð Subway deildar kvenna í körfubolta í kvöld.

„Ég er ekki tilbúinn að horfa upp á svona vitleysu meir“
Baldur Þorleifsson, þjálfari Snæfells, var verulega ósáttur þegar hann mætti í viðtal eftir 30 stiga tap hans liðs gegn Grindavík í dag. Fyrir leikinn reiknuðu flestir með öruggum sigri Grindavíkur sem raunin varð en á sama tíma má segja að sigurinn hafi verið full auðveldur fyrir lið Grindavíkur sem tók algjörlega yfir leikinn á fyrstu mínútu og sigldi svo sigrinum þægilega heim.

Grindavík-Snæfell 96-66 | Öruggur grindvískur sigur í Smáranum
Snæfell heimsótti Grindavík á tímabundnum heimavelli þeirra í Smáranum. Þær gulklæddu áttu ekki í neinum vandræðum með neðsta lið deildarinnar og unnu að endingu þrjátíu stiga stórsigur.

Sverrir Þór: Vinnum ekki bara af því að við erum með marga landsliðsmenn
Keflavík vann afar sannfærandi sigur gegn Stjörnunni 61-89. Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari Keflavíkur, var afar ánægður með sigurinn.

Umfjöllun, viðtal og myndir: Stjarnan-Keflavík 61-89 | Keflavík batt enda á sigurgöngu Stjörnunnar
Keflavík batt enda á sigurgöngu Stjörnunnar þar sem heimakonur höfðu unnið fimm leiki í röð. Gestirnir úr Keflavík byrjuðu afar vel og litu aldrei um öxl og unnn að lokum 61-89.

Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Valur 71-68 | Haukar sluppu með skrekkinn
Haukar tóku á móti Val í Subway-deild kvenna í körfubolta í leik þar sem að Helena Sverrisdóttir, fremsta körfuknattleikskona í sögu þjóðarinnar, var kvödd fyrir leik en hún lék á sínum ferli með báðum þessum liðum.

„Ég vissi ekki að þær hefðu verið að tala um bakkgírinn!"
Bjarni Magnússon, þjálfari Hauka, var að vonum ánægður með sigurinn á Val í Subway-deild kvenna í kvöld, í leik sem varð æsispennandi eftir frábæru endurkomu Vals í þriðja leikhluta en lokatölur leiksins urðu 71-68.

Gott gengi Þórs heldur áfram
Þór Akureyri heldur áfram að gera gott mót í Subway-deild kvenna í körfubolta. Nýliðarnir unnu Fjölni með tíu stiga mun í dag, lokatölur 85-75.

Ætla kveðja Helenu á leik Hauka og Vals á morgun og það er frítt inn
Íslenska körfuboltagoðsögnin Helena Sverrisdóttir varð því miður að leggja skóna á hilluna á dögunum vegna meiðsla. Haukarnir ætla að kveðja hana formlega á morgun þegar gamla lið Helenu, Valur, kemur í heimsókn í Subway deild kvenna.

Njarðvík sendir Martin heim
Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur hefur ákveðið að senda Tynice Martin heim og hún mun því ekki spila meira með liðinu á yfirstandandi tímabili í Subway-deild kvenna í körfubolta.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 72-45 | Niðurlæging í grannaslagnum
Keflavík heldur toppsæti Subway-deildar kvenna í körfuknattleik en liðið vann stórsigur á nágrönnum sínum úr Njarðvík í kvöld.

Rúnar Ingi: „Við sköpuðum okkar eigin vítahring“
Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari Njarðvíkur, tók fulla ábyrgð á stóru tapi sinna kvenna í Keflavík í kvöld, en lokatölur leiksins urðu 72-45 Keflavík í vil. Hann sagðist einfaldlega ekki hafa gert sitt lið nógu tilbúið í leikinn.

„Ég mun væla eins og stunginn grís yfir dómaratríóinu“
Hallgrímur Brynjólfsson, þjálfari Fjölnis, var vægast sagt heitt í hamsi eftir fimm stiga tap gegn Grindavík í Subway-deild kvenna í kvöld, 76-81.

Valur og Haukar á sigurbraut
Valur og Haukar unnu leiki sína í 10. umferð Subway-deild kvenna í körfubolta í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Fjölnir - Grindavík 76-81 | Grindvískur karakter
Grindavík vann fimm stiga sigur á Fjölni í 10. umferð Subway-deild kvenna í kvöld, 76-81. Grindavík hrinti frá sér ítrekuðum áhlaupum Fjölnis, leiddi mest allan leikinn og sigurinn sanngjarn.

Stjarnan heldur í við toppliðin
Stjarnan lagði Þór Akureyri í Subway-deild kvenna í körfubolta í kvöld, lokatölur í Garðabænum 94-88.

„Bleikur fíll í herberginu sem enginn þorði að anda á“
Sérfræðingar Subway Körfuboltakvölds eru sammála þeirri stóru ákvörðun Valsmanna að láta búlgarska leikstjórnandann sinn fara.

Þóra Kristín getur ekki verið sú Þóra Kristín sem hana langar til að vera
Haukakonur enduðu þriggja leikja taphrinu sína með sigri á Fjölni í síðustu umferð Subway deildar kvenna í körfubolta. Haukaliðið hefur ollið miklum vonbrigðum í vetur og er ekki inni í efri hlutanum eins og staðan er núna.

Daníel gagnrýnir þétta leikjaröð: Virðast ekki trúa á endurheimt hjá KKÍ
Nýliðar Þórs í Subway deild kvenna í körfubolta unnu óvæntasta sigur tímabilsins til þessa í gær þegar þær urðu fyrstar til að vinna topplið Keflavíkur.

Nýliðar Þórs með óvæntan sigur á toppliði Keflavíkur
Keflvíkingar töpuðu sínum fyrsta leik í Subway-deild kvenna í dag þegar nýliðar Þórs urðu fyrstar til að leggja toppliðið í hörkuleik á Akureyri.

Taphrina Blika tók loks enda og nú er komið að körlunum
Breiðablik sótti sinn fyrsta sigur í Subway deild kvenna á þessu tímabili þegar þær lögðu Snæfell að velli, 83-75. Ljóst var að gæfan myndi snúast fyrir annað hvort liðið, en þau voru bæði sigurlaus í neðstu sætum deildarinnar fyrir þennan leik.

Umfjöllun viðtöl og myndir: Valur - Njarðvík 53-75 | Gestirnir höfðu betur gegn andlausum meisturum
Njarðvíkingar unnu öruggan 22 stiga sigur er liðið heimsótti Íslandsmeistara Vals í Subway-deild kvenna í körfubolta í kvöld, 53-75.

„Þetta er keppni í að hitta ofan í körfuna“
Hjalti Þór Vilhjálmsson, þjálfari Vals í Subway-deild kvenna í körfubolta, var eðlilega súr eftir 22 stiga tap liðsins gegn Njarðvík á heimavelli í kvöld. Hann segist þó hafa séð ýmislegt jákvætt í leik síns liðs.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Grindavík 89-80 | Fimmti sigur Stjörnunnar í röð
Nýliðar Stjörnunnar hafa verið á miklu skriði í Subway-deild kvenna í körfubolta og liðið vann sinn fimmta sigur í röð, og þann sjötta í seinustu sjö leikjum, er liðið tók á móti Grindavík, 89-80.

Haukar komust aftur á sigurbraut
Eftir fjögur töp í röð eru Haukar aftur komnir á sigurbraut í Subway-deild kvenna í körfubolta eftir nauman fimm stiga útisigur gegn Fjölni í kvöld, 77-82.

„Mér finnst svo augljóst að hún nenni ekki að vera þarna“
Íslandsmeistarar Vals hafa ekki byrjað titilvörnina vel í Subway deild kvenna í körfubolta og þær fengu skell á móti Keflavík í síðasta leik.

Spilaði landsleik fyrir sjö dögum en er núna hætt
Ein besta körfuboltakona Íslandssögunnar er hætt. Helena Sverrisdóttir ætlaði sér alltaf að verða best. Stefán Árni Pálsson ræddi við hana.