

Nýjustu fréttir, fróðleikur og skemmtileg myndbönd sem tengjast bílum.
Carlos Ghosn, fyrrverandi forstjóri bílaframleiðandans Nissan, hefur skráð sig til leiks á samfélagsmiðlinum Twitter. Hann hefur boðað til blaðamannafundar og segist forstjórinn fyrrverandi vera að undirbúa sig undir það að segja sannleikann um hvað sé "að gerast“.
Framkvæmdastjóri hjá Avis bílaleigu segir að fall WOW AIR hafi haft í för með sér um tuttugu prósent samdrátt hjá fyrirtækinu síðustu daga. Hann telur að höggið sé mun meira hjá minni fyrirtækjum í ferðaþjónustu sem geti þýtt tímabærar sameiningar á næstu mánuðum og misserum.
Ökuhæf frumgerð fyrsta frumhannaða ofurjeppans fyrir farþegaflutninga í heiminum er tilbúin. Hundruð innlendra og erlendra aðila komið að verkinu á einn eða annan hátt. Ísland er vagga götuhæfra ofurjeppa.
Miklar líkur eru á því að Mazda-bílar muni á næstu árum fást með Rotary-vélum en nýleg þróun á vélinni hefur gert þessa vélartækni afar hagkvæma, með litla eyðslu og mengun.
Gordon Murrey, sem hannaði McLaren F1 sportbílinn, vinnur nú að smíði agnarsmás en öflugs sportbíls.
Tölva bílsins gæti hægt á honum eða stöðvað skynjaði hann að ökumaðurinn væri ölvaður, þreyttur eða annars hugar.
Fyrsti íslenski álbíllinn sem smíðaður var frá grunni hér á landi er orðinn ökufær og gefst Íslendingum færi á að skoða bifreiðina á morgun. Til stendur að framleiða fleiri eintök af jeppanum, sem fengið hefur nafnið Ísar, enda er nú þegar búið að selja fimm eintök og áhuginn enn meiri á þessum létta álbíl.
Óhætt er að fullyrða að með þessari breytingu sé kominn einn mest aðlaðandi bíllinn í þessum flokki, enda hefur hann fengið ýmis útlitseinkenni frá hinum mun stærri Peugeot 508 bíl, sem er forkunnafagur.
Nissan, Honda og Toyota reka stærstu, fjórðu stærstu og sjöttu stærstu bílaverksmiðjur Bretlands en teikn eru á lofti um lokun allra þeirra. Brexit er um að kenna og traust japanskra bílaframleiðenda til breskra yfirvalda er þorrið.
Ferrari F8 Tributo fær 50 viðbótar hestöfl og verður 40 kg léttari en 488 GTB bíllinn. Það þýðir 720 öskrandi hestöfl og 770 Nm tog úr 3,9 lítra V8 vélinni með tveimur forþjöppum.
Frá því að Dacia Sandero kom á markað í Bretlandi 2013 hefur bíllinn verið í miklu uppáhaldi meðal þarlendra sem vilja "bara“ einfaldan, áreiðanlegan og ágætlega vel búinn bíl á sem hagstæðustu verði.
VW Group hagnaðist um 1.900 milljarða króna og 63% hagnaðarins komu frá bílamerkjunum Audi og Porsche.
Bíllinn verður smíðaður í Kína af samstarfsaðila GM þarlendis, SAIC. General Motors, móðurfyrirtæki Chevrolet segir að þessi bíll sé hentugur í sölu á þeim mörkuðum þar sem Chevrolet Traverse er ekki í sölu, en hann er einnig með þrjár sætaraðir en er ennþá stærri jeppi.
Viðbrögð við minnkandi sölu Audi sem gekk illa í sölu á seinni hluta síðasta árs auk þess sem salan minnkaði um 3% í janúar.
40,8 prósenta samdráttur varð í sölu nýrra fólksbíla bíla í janúar og febrúar 2019 samanborið við sama tímabil árið 2018. Alls voru skráðir 1.647 nýir fólksbílar í janúar og febrúar 2019.
Franski bílaframleiðandinn Bugatti kynnti í gær dýrustu nýju bifreið sögunnar.
Mikil mengun er á höfuðborgarsvæðinu í dag.
Bílaleigur sem fjallað var um í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær, vegna breytinga á kílómetrastöðu bíla, eru ekki í Samtökum ferðaþjónustunnar. Framkvæmdastjóri samtakanna segir að þeim hafi borist ábendingar um bílaleigur þar sem grunur leikur á að átt hafi verið við mæla í bílum. Málið sé erfitt fyrir allar bílaleigur á Íslandi.
Samgöngustofa segir koma til greina að svipta bílaleigur rekstrarleyfi sem ekki geta veitt fullnægjandi skýringar á misræmi upplýsinga um kílómetrastöðu bíla. Skoðun fréttastofu leiðir í ljós að mikill munur getur verið á stöðu mæla í bílum á milli skoðana.
Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, segir að það sé grafalvarlegt mál að eiga við kílómetramæli bíls. Það sé ekki aðeins fjárhagslegt tjón sem gæti hlotist af svindli Procar heldur snerti málið einnig öryggi farþega.
Þar fer einfaldlega dýrasti fjöldaframleiddi i jeppi heims,
Það koma ekki margar fréttirnar almennt frá japanska bílaframleiðandanum Mitsubishi en ein glæný hermir að fyrirtækið muni mæta með nýjan rafmagnsjeppling á bílasýninguna í Genf í mars komandi.
Kia er eini bílaframleiðandinn sem hefur náð að auka söluna í Evrópu á hverju ári síðasta áratuginn, en aukningin nam 4,7% í fyrra.
Framkvæmdastjóri FÍB segir erfitt eða ómögulegt að sjá í sumum tilfellum hvort átt hafi verið við akstursmæla.
Á verðlaunahátíð iF Design Award 2019 hlaut Hyundai Motor nýlega tvenn hönnunarverðlaun, annars vegar fyrir nýja sjö sæta jepplinginn Palisade, sem ætlaður er mörkuðum Norður-Ameríku, og hins vegar fyrir hugmynd sína um sportbílinn Le Fil Rouge.
Sala Volvo-bíla í Bretlandi jókst um heil 80% í Bretlandi í janúar.
Það er ekki að spyrja að atorkusemi M-sportbíladeildar BMW.
Jóhann Lövdal, eigandi bílasölunnar Bílamarkaðarins, segir tíðindin af áralöngu svindli Procar þar sem stöðu á kílómetramæli bílaleigubíla var breytt, áfall fyrir stétt bílasala.
Dísilbílasala minnkaði um nær fimmtung í fyrra, en sala bensínbíla og umhverfisvænna bíla stórjókst.
Rivian hefur framleitt fyrsta rafmagnspallbíl heims sem er 800 hestöfl, með 650 km drægi og er aðeins 3 sekúndur í hundraðið.