
Fimm skiptingar í íslenskum fótbolta í sumar
Í íslenskum fótbolta verður heimilt að gera fimm skiptingar í stað þriggja á keppnistímabilinu í ár, líkt og í fyrra og árið 2020.
Í íslenskum fótbolta verður heimilt að gera fimm skiptingar í stað þriggja á keppnistímabilinu í ár, líkt og í fyrra og árið 2020.
KR hefur sótt tvo leikmenn til að styrkja hópinn fyrir komandi átök í Bestu-deild kvenna í knattspyrnu í sumar. Um er að ræða tvo leikmenn sem hafa báðir leikið með yngri landsliðum Ástralíu.
Úrslitaleikur Lengjubikars kvenna í fótbolta fór fram í Garðabæ í kvöld. Heimastúlkur í Stjörnunni tóku þá á móti Breiðablik í leik sem var hin mesta skemmtun. Breiðablik stóð uppi sem Lengjubikarmeistari kvenna árið 2022 eftir 1-2 sigur.
Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari gat valið Elínu Mettu Jensen í landsliðshóp sinn í dag, í fyrsta sinn síðan í júní á síðasta ári. Hann var spurður út í sögusagnir þess efnis að Elín Metta hefði ætlað að hætta í fótbolta.
Heiðursstúkan er þáttur sem verður einu sinni í viku á Vísi en sjöundi þátturinn er nú kominn inn á vefinn.
Football Manager, fótboltatölvuleikurinn vinsæli, mun bjóða spilurum að setja sig í spor þjálfara í Bestu deild kvenna í næstu útgáfu sinni.
Reykjavíkurmeistarar Þróttar höfðu náð sínum besta árangri í þremur keppnum í röð, á Íslandsmótinu 2021, í bikarkeppninni 2021 og í Reykjavíkurmótinu 2022, þegar kom að Lengjubikarnum. Þar sýndi liðið aftur á móti veikleikamerki.
Í nýjasta þættinum af Lengjubikarmörkum kvenna þá fékk Helena Ólafsdóttir sérfræðinga sína, þær Margréti Láru Viðarsdóttur og Sonnýju Láru Þráinsdóttur, til að spá fyrir um lokaröðina í Bestu-deild kvenna í sumar.
Úkraínska landsliðskonan Anna Petryk hefur samið við knattspyrnudeild Breiðabliks um að spila með liðinu í Bestu deildinni í sumar.
Þróttur Reykjavík, sem vann brons á Íslandsmótinu og silfur í bikarkeppninni á síðasta ári, hefur fengið fyrrverandi landsliðskonu Ástralíu í sínar raðir. Sú heitir Gema Simon og er varnarmaður.
Miðvörðurinn öflugi Elfar Freyr Helgason vill komast að láni í burtu frá Breiðabliki í sumar með það í huga að fá stærra hlutverk en honum virðist ætlað hjá Blikum.
Lengjubikarmörk kvenna voru á dagskránni um helgina á Stöð 2 Sport og þar var farið yfir síðustu leiki í Lengjubikar kvenna í fótbolta. Helena Ólafsdóttir var umsjónarkona þáttarins og sérfræðingar hennar voru þær Mist Rúnarsdóttir og Harpa Þorsteinsdóttir.
Elín Metta Jensen var fljót að stimpla sig inn þegar hún kom inn á völlinn í sigri Valskvenna á Þór/KA í Lengjubikar kvenna um helgina.
Ingunn Haraldsdóttir mun ekkert leika með KR í Bestu deildinni í fótbolta í sumar eftir að hafa slitið hásin.
Þróttur R. hefur fengið knattspyrnukonuna Maríu Evu Eyjólfsdóttur til liðs við félagið frá Fylki, en María skrifaði undir tveggja ára samning við Þrótt.
Keflvíkingar voru ekki lengi að tilkynna um nýjan, bandarískan markvörð í stað Tiffany Sornpao sem gekk í raðir Selfyssinga um helgina.
Rigningin á höfuðborgarsvæðinu í dag er vatn á myllu þeirra sem telja að hægt verði að spila á grasvöllum þegar Íslandsmótið í fótbolta hefst í næsta mánuði.
Markvörðurinn Tiffany Sornpao hefur samið við knattspyrnudeild Selfoss um að leika með kvennaliði félagsins í Bestu deildinni í sumar.
Kvennafótboltalið Breiðabliks þekkir vel aðstæðurnar þar sem Rússar ráðast inn í Úkraínu því liðið var þar í keppnisferðalagi fyrir aðeins fjórum mánuðum síðan.
Landsliðskonan Elín Metta Jensen segir ekki rétt að hún sé hætt í fótbolta. Hún vill að öðru leyti ekki tjá sig um sögusagnir þess efnis að svo stöddu.
Um helgina voru endurvakin Hagsmunasamtök knattspyrnukvenna með stofnfundi í Iðnó. Samtökin voru upphaflega stofnuð árið 1990 með því markmiði að auka jafnrétti kynjanna í íslenskri knattspyrnu en samtökin voru endurvakin með sama markmiði í huga.
Frá og með næsta tímabili munu efstu deildir karla og kvenna bera nafnið Besta deildin. Þetta kom fram á kynningarfundi Íslensks toppfótbolta (ÍTF) í Bæjarbíói í dag.
Besta deildin er nýtt nafn á efstu deildum karla og kvenna í fótbolta. Þetta kom fram á kynningarfundi Íslensks toppfótbolta í Bæjarbíói í dag.
Knattspyrnukonan Helena Ósk Hálfdanardóttir hefur skrifað undir samning til tveggja ára við bikarmeistara Breiðabliks.
Knattspyrnudeild Selfoss hefur samið við tælensku landsliðskonuna Miröndu Nild sem er nýjum þjálfara liðsins vel kunnug.
Tvíburasysturnar Katla María og Íris Una Þórðardætur eru gengnar í raðir Selfoss frá Fylki. Þær skrifuðu undir tveggja ára samning við Selfoss.
Efstu deildarlið Þórs/KA hefur staðfest komu Vigdísar Eddu Friðriksdóttur en hún hefur leikið með Breiðabliki undanfarin tvö ár. Alls lék hún 35 mótsleiki fyrir Blika, þar af sex í Meistaradeild Evrópu.
Landsliðskonan Sif Atladóttir er nýflutt til landsins á ný frá Svíþjóð og mun spila með Selfossi í úrvalsdeildinni í fótbolta. Samhliða því starfar hún sem verkefnastjóri hjá Leikmannasamtökum Íslands, eftir að hafa áður starfað fyrir leikmannasamtök í Svíþjóð.
Sif Atladóttir segir að það muni ekki hafa slæm áhrif á hjónabandið þó að eiginmaður hennar, Björn Sigurbjörnsson, láti sér detta í hug að skipta henni af velli í leikjum Selfoss í sumar. Þau hafi lengi unnið náið og vel saman í fótboltanum.
Afturelding hefur tryggt sér góðan liðsstyrk fyrir komandi leiktíð í úrvalsdeild kvenna í fótbolta. Félagið hefur samið við jamaísku landsliðskonuna Chyanne Dennis.