
Mögnuð tölfræði markvarðarins Murphy
Samantha Murphy er heldur betur betri en engin. Markvörðurinn hefur verið hreint út sagt mögnuð í marki Keflavíkur í Bestu deild kvenna á leiktíðinni.
Samantha Murphy er heldur betur betri en engin. Markvörðurinn hefur verið hreint út sagt mögnuð í marki Keflavíkur í Bestu deild kvenna á leiktíðinni.
Besta deild kvenna í fótbolta er hálfnuð og því ákváðu Bestu mörkin að fara yfir fyrri helming mótsins og gera hann upp. Var lið fyrri helmingsins valið, besti leikmaðurinn, besta markið og besta stoðsendingin.
Helena Ólafsdóttir, Margrét Lára Viðarsdóttir og Sonný Lára Þráinsdóttir gerðu upp 9. umferð Bestu-deildar kvenna í gær. Þær völdu lið umferðarinnar, besta leikmanninn og besta markið í uppgjörsþættinum Bestu mörkin.
„Mér fannst Breiðablik mikið sterkara í þessum leik. Maður sér líka að það vantar kannski smá breidd í liði Þróttar,“ sagði Helena Ólafsdóttir, þáttastjórnandi, Bestu markanna um leik liðanna í Bestu deild kvenna í fótbolta.
Landsliðsframherjinn Elín Metta Jensen þurfti að fara meidd af velli eftir um klukkustundarleik er lið hennar, Valur, vann Selfoss 1-0 í Bestu deild kvenna í gær. Rætt var um atvikið í Bestu mörkunum.
Íslandsmeistarar Vals náðu í gær fjögurra stiga forskoti á toppi Bestu deildar kvenna í fótbolta, þegar öll níunda umferðin var leikin. Mörkin úr leikjunum má nú sjá hér á Vísi.
Elín Metta Jensen, framherji Íslandsmeistara Vals og íslenska landsliðsins, meiddist er Valur heimsótti Selfoss í Bestu deild kvenna á þriðjudag. Gestirnir frá Hlíðarenda unnu 1-0 útisigur en Elín Metta þurfti að fara meidd af velli eftir rúmlega klukkustundarleik.
Ásmundur Arnarsson, þjálfari Breiðabliks, varð eðlilega sáttur með 3-0 útisigur liðsins gegn Þrótti í Bestu-deild kvenna í fótbolta í kvöld.
Eftir erfiða byrjun á tímabilinu hefur Breiðablik nú unnið þrjá leiki í röð. Liðið er komið upp í annað sæti Bestu-deildar kvenna í fótbolta eftir 0-3 sigur gegn Þrótti í kvöld.
Þór/KA og KR buðu upp á markaveislu á Akureyri í kvöld þegar liðin skildu jöfn í Bestu deild kvenna, 3-3.
Valur gerði góða ferð á Suðurlandið og vann 0-1 sigur á Selfossi. Anna Rakel Pétursdóttir kom Val yfir á 19. mínútu og reyndist það vera sigurmark leiksins.
Valur vann 0-1 útisigur á Selfossi þar sem Anna Rakel Pétursdóttir gerði sigurmarkið. Pétur Pétursson, þjálfari Vals, var ánægður með leik kvöldsins.
„Þetta var góður leikur, mér fannst við vera aðeins betri en þær í fyrri hálfleik en í seinni hálfleik var meira jafnræði með liðunum. Við hefðum geta tapað leiknum í lokin en sem betur fer gerðum við vel,“ sagði Christopher Thomas Harrington þjálfari KR eftir jafntefli á móti Þór/KA á SaltPay vellinum á Akureyri í kvöld.
Keflavík vann langþráðan 1-0 sigur er liðið tók á móti Stjörnunni í níundu umferð Bestu-deildar kvenna í fótbolta í kvöld.
Jonathan Glenn, þjálfari ÍBV, var sáttur með sigurinn á móti Aftureldingu í Bestu deild kvenna í fótbolta í kvöld. Með sigrinum lyfti ÍBV sér upp í 2. sæti deildarinnar, í bili. Mark ÍBV kom undir lok fyrri hálfleiks, lokatölur 1-0.
Nýliðar Aftureldingar tóku á móti ÍBV í Bestu deild kvenna í fótbolta. Afturelding er í fallsæti á meðan ÍBV er í 6. sæti. Eina mark leiksins kom rétt fyrir lok fyrri hálfleiks og var það Olga Sevcova sem kom ÍBV í 1-0.
Leikur Þórs/KA og KR í Bestu deild kvenna í fótbolta í kvöld frestast um klukkustund og hefst klukkan 19:00. Breyting verður á sýningarrás leiksins og verður hann sýndur beint á Vísi.is.
Níunda umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta fer fram í kvöld. Tveir stórleikir eru á dagskrá og þá verða herlegheitin gerð upp í Bestu mörkunum á Stöð 2 Sport klukkan 22.00 í kvöld.
Í dag fer fram 9. umferð í Bestu deild kvenna þar sem öll lið eiga leiki. Sýnt verður frá öllum leikjunum á sport rásum Stöðvar 2.
Mikil spenna ríkir fyrir 9. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta. Ásamt því að fara yfir komandi umferð ræddi Helena Ólafsdóttir, þáttastjórnandi, aðeins íslenska kvenna landsliðið en gestir hennar að þessu sinni eiga samtals að baki 217 A-landsleiki.
Taylor Bennett, varnarmaður Aftureldingar í Bestu deild kvenna, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna vegna þrálátra meiðsla á mjöðm. Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins.
Kristín Erna Sigurlásdóttir skoraði sigurmark ÍBV er liðið lagði Keflavík 3-2 í 8. umferð Bestu deildar kvenna á dögunum. Farið var yfir frammistöðu Kristínar Ernu í Bestu mörkunum að leik loknum.
„Þetta var nú örugglega ekki fallegasta markið sem Hildur hefur skorað,“ sagði Björn Sigurbjörnsson, þjálfari Selfoss í viðtali eftir 1-0 tap gegn Breiðablik.
„Það er alltaf gott þegar þjálfari er ánægður, þá er ekkert hægt að kvarta,“ sagði Helena Ólafsdóttir, stjórnandi Bestu markanna, eftir viðtal þjálfara Aftureldingar sem hafði rétt á undan tapað 6-1 fyrir Íslandsmeisturum Vals.
Mörkunum rigndi í 8. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta og hér á Vísi má sjá öll mörkin úr umferðinni. Sautján ára leikmaður Þróttar skoraði þrennu á tuttugu mínútum.
Áttunda umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta var gerð upp í síðasta þætti af Bestu mörkunum. Lið umferðarinnar var valið sem og besti leikmaðurinn ásamt besta markinu.
Pétur Pétursson, þjálfari Vals, var sáttur eftir leikinn gegn Aftureldingu í kvöld. Valskonur mættu ákveðnar til leiks og unnu fimm marka sigur, 6-1.
Þróttur R. vann góðan 1-3 útisigur er liðið heimsótti nýliða KR í 8. umferð Bestu-deildar kvenna í kvöld. Katla Tryggvadóttir skoraði öll þrjú mörk Þróttar eftir að liðið hafði lent undir snemma leiks.
Íslandsmeistarar Vals fengu nýliða og botnlið Aftureldingar í heimsókn á Hlíðarenda í Bestu deild kvenna. Valskonur mættu töluvert ákveðnari til leiks og unnu leikinn með fimm marka mun, 6-1.
Breiðablik vann Selfoss 1-0 í lokuðum leik. Bæði lið sköpuðu sér lítið af færum en Breiðablik var sterkari aðilinn og átti sigurinn skilið. Með sigri komst Breiðablik upp fyrir Selfoss i töflunni.