Litla lambið mitt Íslenska sauðkindin er misvinsæl hjá landanum. Sumir segja hana heimska og ljóta og eigna henni gróðureyðingu landsins frá fjöru til fjalls. Vestfirskar kindur komust einmitt í fréttir í vor fyrir að éta sumarblómin í görðum Bolvíkinga. Mér finnst hún alls ekki ljót og hélt hún ekki lífinu í íslensku þjóðinni gegnum aldirnar? Það kemur líka annað hljóð í strokkinn þegar búið er að matreiða hana á disk, þá erum við sammála um að íslenskt lambakjöt sé það besta í heimi! Bakþankar 18. ágúst 2011 08:15
Arnaldur Indriða og lambakjötið Það var fyrir framan smurostadeildina sem ég varð fyrir opinberuninni. Ég hafði lofað "gúrme“ veislu, lambalæri með geitaostafyllingu eftir uppskrift úr erlendri kokkabók. Ekki leið þó á löngu uns í ljós kom að ég hafði lofað upp í ermina á mér. Í versluninni voru ekki til lambalæri. Þau höfðu líklega öll verið flutt til útlanda. Enginn geitaostur fannst heldur. Hann hafði líklega aldrei verið fluttur inn. Bakþankar 17. ágúst 2011 07:00
Reiði er réttmæt pólitísk afstaða Menn keppast nú við að skilgreina hvað er á seyði í Bretlandi og gengur misvel. Helst er það skortur á pólitískum stefnumiðum sem stendur í fólki og verður til þess að ekki eru allir tilbúnir til að skrifa upp á að það sem á sér stað í borgum Bretlands núna sé annað en skrílslæti. Í slíkum hugleiðingum gleymist hins vegar að skrílslæti geta verið yfirlýsing, reiði getur verið réttmæt pólitísk afstaða. Bakþankar 16. ágúst 2011 07:15
Skip sem aldrei landi ná Einu sinni bjó ég í sama stigagangi og fíkniefnaneytandi. Þrátt fyrir ónæði af hans hálfu á öllum tímum sólarhrings var engin leið að koma honum í burtu því foreldrar hans áttu íbúðina. Virtust þeir hafa keypt hana til að hola manninum einhvers staðar niður en hann var kominn á fimmtugsaldur. Pattstaða fyrir þau en sömuleiðis hjá fjölskyldu minni því ekki gátum við búið við ónæðið og því síður selt íbúðina með svona nágranna. Eftir því sem maðurinn sökk dýpra í dópneysluna fór gestakomum til hans fækkandi. Bakþankar 15. ágúst 2011 06:00
Rolusamfélagið Einu sinni var ég yngri og vitlausari en ég er í dag. Þegar ég horfi til baka hlæ ég yfirlætislega að bernskubrekunum, sem fólu meðal annars í sér að klifra upp á hótel til að komast inn á böll og skoða stelpur, drekka tekíla og haga mér eins og fífl á netinu í skjóli nafnleyndar. Nú, meira en áratug síðar, geng ég upp stiga til að skoða stelpur, læt tekíla vera (enda ginmaður) og kvitta undir skoðanir mínar með nafni. Bakþankar 13. ágúst 2011 07:00
Það þarf heilt þorp Samfélag gengur út á sameiginlega ábyrgð og ekki síst sameiginlegt siðferði. Sumir vilja meina að siðferðið sé grundvöllur samfélagsins, að án samkomulags um hvað sé rétt og hvað sé rangt sé ekkert samfélag. Bakþankar 12. ágúst 2011 06:00
Spænska veikin í stofunni heima Einn daginn þegar afi minn vaknaði var hrím í loftinu fyrir ofan hann. Hlutir voru freðnir – inni hjá honum. Þetta var árið 1918: Frostaveturinn mikla. Bakþankar 11. ágúst 2011 06:00
Sögulok fyrir Megas Snemma á tíunda áratugnum varð ég þess heiðurs aðnjótandi að komast á spjall með Megasi. Þegar ég sagði honum að ég væri frá Bíldudal sagði hann mér frá einni heimsókn sinni þangað. Var það hin mesta sæluvist, enda er skáldið í miklum metum í dalnum, en þó varð honum brugðið er hann sá annarlega mynd liggja á glámbekk. Mig minnir að hann hafi sagt glámbekk frekar en klámbekk. Bakþankar 10. ágúst 2011 11:00
Hvernig er ferðasagan? Hvernig var sumarfríið þitt? Svörin eru mismunandi. Margir gretta sig og svara: "Svona lala“ eða "allt í lagi“ en bæta svo við: "Bíllinn bilaði, kortinu var stolið. Það rigndi allan tímann og þjónustan, sem við áttum að fá var því miður ótrúlega léleg. Ferðafélagarnir voru hávaðasamir og sneru sólarhringnum alveg við. Það er nú bara gott að vera kominn heim!“ Upplífgandi og spennandi? Nei, en margar ferðasögur eru á þessa leið og eiginlega dapurlegar hrakfallasögur. Segja þær bara ferðasögu eða eitthvað annað – kannski um ferðalanginn sjálfan? Bakþankar 9. ágúst 2011 06:00
Hugmyndafræðileg forsjárhyggja Henry Kissinger var utanríkisráðherra Bandaríkjanna í tíð Nixons og Fords. Hann var refur og talinn mun valdameiri en almennt gengur um utanríkisráðherra. Forsetarnir hunsuðu sjaldan tillögur Kissingers en það var ekki endilega vegna þess hve þær voru skynsamlegar. Bakþankar 8. ágúst 2011 13:30
Niðursuðutónlist Árið 1994 var ég vinsæll útvarpsmaður og skemmtikraftur á Íslandi. Já, það eru 17 ár síðan. Það sem einkum háði mér sem útvarpsmanni var hvað mér leiddist tónlistin óskaplega mikið sem þá var vinsælust. Ég átti ekki að vera vaxinn upp úr því að hlusta á poppmúsík, en vinsæla tónlistin á þessum tíma gerði mér mjög erfitt að fylgjast með. Nú þegar ég lít aftur, sé ég að það var um þetta leyti sem ég hætti að fylgjast með stefnum og straumum í dægurtónlist og ákvað að það sem ég hefði þegar heyrt myndi duga mér ágætlega út lífið. Bakþankar 6. ágúst 2011 06:00
Stoltið hýrt Ég lærði orðið hommi í skólanum þegar ég var tíu ára. Eða reyndar Á skólanum. Einhvern morguninn blöstu orðin HOMMI+HÓRA=SÖN ÁST við á nokkrum útveggjum. Ég vissi ekkert hvaða fólk þetta var, enda lítið talað um þau inni í skólanum eða í sjónvarpinu, en datt helst í hug að þessir krakkar væru í tólf ára bekknum og þetta væri óður til kærleika þeirra. Í frímínútum komst ég svo auðvitað að því að þetta voru ekki sérnöfn, þetta voru tegundaheiti á mannlegri hegðun sem lögð var að jöfnu og þótti neikvæð. Og meira lærði ég ekki í mörg ár. Bakþankar 5. ágúst 2011 07:15
Kláraðu af disknum Það ríkir mikil neyð í Austur-Afríku og samkvæmt starfsmönnum hjálparstofnanna er enn mikil þörf á aðstoð til nauðstaddra á þurrkasvæðunum. Talið er að tólf milljónir manna séu í lífshættu vegna matarskorts og nú ríkir hungursneyð í tveimur héruðum í Sómalíu, sem hefur orðið hvað verst úti í þurrkunum. Verði ekki aukið við aðstoðina gæti hungursneyðin breiðst út til fleiri héraða landsins. Bakþankar 4. ágúst 2011 07:15
Smáfuglar vængstýfðir Ég hef löngum verið þeirrar bjargföstu trúar að heimurinn fari ekki versnandi. Þegar fólk býsnast yfir að allt hafi verið betra í gamladaga glotti ég drýgindaleg við tönn. Ég bara kaupi ekki að betra hafi verið að "tjilla“ í rökum og köldum moldarkofa, teygandi spenvolga mjólk, hlustandi á langafa þylja Hávamál enn einu sinni en að hanga á Ölstofunni með ískaldan Bríó, vafrandi á internetinu á nýja iPadinum. Bakþankar 3. ágúst 2011 07:45
Ole og hinir grislingarnir Þegar ég spyr fólk hvað það lesi fyrir börnin sín dúkkar nafn sama höfundarins sífellt upp, Danans Ole Lund Kirkegaard. Svo virðist sem úti um allt land skemmti fólk sér yfir bókum eins og Fúsa froskagleypi og Fróða og öllum hinum grislingunum. Þótt við þekkjum þessa náunga orðið ágætlega vitum við minna um Kirkegaard sjálfan. Þess vegna fannst mér gaman að finna nýlega bók um hann á dögunum í Bókasafni Norræna hússins. Hún heitir Ole Lund Kirkegaard – Et forfatterskap og er eftir Torben Weinreich. Bakþankar 2. ágúst 2011 06:00
Rassgatið á Kim Kardashian Á vefsíðunni Ted.com (sem er ein sú merkilegasta á netinu) birtist á dögunum skemmtilegur fyrirlestur eftir Eli Pariser. Þar varar hann fólk við því sem kallast síublöðrur (e.: filter bubbles), en þær ganga í stuttu máli út á að vefsíður sía sjálfkrafa hvers konar efni þær birta eftir smekk notandans. Síublöðrurnar vinna sem sagt úr gögnum sem tölvan þín safnar saman sjálfkrafa — gögnum sem sýna hvaða fréttir þú skoðar, hvaða orð þú slærð inn í leitarvélar, tungumálin sem þú talar og í rauninni hvernig manneskja þú ert. Bakþankar 30. júlí 2011 06:00
Sjö milljónir í mínus Það er leiðinlegt að festast í vef þjónustufyrirtækja og flækjast með fyrirspurnir sínar manna á milli án þess að fá lausnir. Ég hef þurft að ganga í gegnum það undanfarna daga. Fyrir rétt rúmri viku rak ég upp stór augu þegar ég las bankayfirlitið mitt. Á fyrirframgreiddu kreditkorti mínu höfðu verið færðar út sjö milljónir. Þrátt fyrir það hafði ég ekki keypt neitt svo dýru verði. Þessi umrædda færsla átti sér þó aðdraganda. Bakþankar 29. júlí 2011 00:01
Dagbók frá Eþíópíu Um fjögurleytið hélt ég að það myndi líða yfir mig af hungri. Klukkan átta um kvöldið var mér óglatt, klukkan tíu var ég orðin slöpp. Ég var stödd í norðurhluta Eþíópíu og hafði ekki borðað síðan eldsnemma um morguninn. Ekki af því að nægan mat væri ekki að finna þarna, heldur vegna þess að ég var sauður sem hafði skipulega tekist að missa af opnum veitingastöðum og verslunum. Þetta var lúxusvandamál. Bakþankar 28. júlí 2011 07:15
Ástarleikur allra tíma Í íþróttaleikjum er hægt að krýna menn sigurvegara einungis fyrir það að standa best að vígi á einhverjum ákveðnum tímapunkti. Þannig er það óumdeilt að það lið sem hefur skorað fleiri mörk í fótbolta að 90 mínútum liðnum er sigurvegari. En í lífinu sjálfu gengur þetta ekki eins vel því tíminn stoppar aldrei sama hvaða dómari blæs í flautuna. Menn geta því gengið til náða sem hetjur en vaknað sem skúrkar eða dáið halloka en síðan verið minnst í sögunni sem sigurboga andans. Bakþankar 27. júlí 2011 07:15
Aldrei aftur Útey Hvað gera unglingar og ungt fólk í sumarbúðum um mitt sumar? Tala saman, hlæja, ræða málin, njóta lífsins. Og svo er þetta tími upplifana, hrifningar og að verða ástfanginn. Bakþankar 26. júlí 2011 07:30
Opið samfélag og óvinir þess Voðaverkin sem framin voru í Noregi á föstudag munu sitja lengi í manni. Í það minnsta hefur sá sem hér skrifar vart getað leitt hugann að öðru þessa helgina. Hátt í hundrað eru látnir, mikið til börn og unglingar, því árásarmaðurinn vildi senda út pólitísk skilaboð. Hryllilegt en nauðsynlegt, skrifaði hann stuttu fyrir hina þaulskipulögðu árás. Að hugsa sér að þankagangur manneskju geti farið jafn rækilega út af sporinu og valdið eyðileggingu sem þessari. Bakþankar 25. júlí 2011 10:34
Varðandi álfa Í einni af skáldsögum Terrys Pratchett segir frá norn sem fer í húsvitjun til blikksmiðsins í þorpinu til að komast að því af hverju börnin hans veikjast. Með í för er ung stúlka, lærlingur hennar í nornalist. Eftir að hafa skoðað börnin og kynnt sér staðhætti segir nornin blikksmiðnum að börnin séu veik af því að púkar hafi lagt bölvun á brunninn hans, hann verði að grafa nýjan uppi í brekkunni hinum megin við bæjarhúsið. Bakþankar 23. júlí 2011 06:00
Ferðast fram og til baka Samgöngur eru merkilegt fyrirbæri. Seint um kvöld um miðja síðustu viku var mér skutlað út á Keflavíkurflugvöll á bíl sem gekk fyrir óhóflega dýru eldsneyti. Eftir að ég hafði tékkað inn, farið í gegnum öryggisskoðunina og ráfað stefnulaust um flugstöðina var haldið í flugvélina. Planið var að sofa alla leiðina til Kaupmannahafnar en sætisfélaginn var ekki á sömu skoðun. Bakþankar 22. júlí 2011 06:00
Ég man þig, mun þú mig Það er svolítið skrýtið með minningar manns stundum. Ég tel mig hafa nokkuð gott minni, bæði skammtíma- og langtímaminni, en stundum hef ég komist að því að það sem ég man á lítið skylt við raunveruleikann. Bakþankar 21. júlí 2011 09:30
Krumpaður löber á veisluborði Það vakti nokkra athygli þegar fregnir bárust af því að mögulega þyrfti að grípa til nýrrar gjaldtöku eða að hækka þau gjöld sem fyrir eru til að standa undir vegakerfi landsins. Í ljós hefur komið að í fyrsta skipti í háa herrans tíð stóðu gjöld af bílum og olíu undir vegaframkvæmdum. Og ástæðan kemur ekki til af góðu; skorið hefur verið ótæpilega niður í vegaframkvæmdum. Bakþankar 19. júlí 2011 06:00
Berndskir leikhústöfrar Ekki man ég eftir því að söfn hafi verið jafnskemmtileg þegar ég var krakki og þau eru nú. Það mátti ekkert snerta og síst af öllu leika sér með neitt. Þótt vissulega sé enn ætlast til þess að safngestir virði sýningarmuni má til dæmis bregða sér í búninga og handleika sverð á Minjasafninu á Akureyri og á Smámunasafninu í Eyjafirði er sérstakt dótahorn fyrir krakka sem sýna uppröðun blýantsstubba takmarkaðan áhuga. Eitt nýjasta safnið hér á landi eru Brúðuheimar í Borgarnesi sem þýski brúðugerðarmeistarinn Bernd Ogrodnik stendur á bak við og þar er eins gott að hafa tímann fyrir sér, enda nóg að sjá. Bakþankar 18. júlí 2011 11:00
Vandinn við ofuraðgát Einstaklingi sem það vill er í lófa lagið að loka sig inni á heimili sínu og hætta sér ekki út. Hann getur bólstrað oddhvöss horn, fjarlægt brothætt gler af heimilinu og almennt hagað lífi sínu þannig að ekkert nema reiði guðs geti hent hann. Það kostar peninga en ekki mjög mikla. Bakþankar 16. júlí 2011 00:01
Bjarta gullið Um daginn var ég með dóttur minni í göngutúr í miðbænum þegar við gengum fram á fallegan drykkjarfont. Hann var í laginu eins og grjóthnullungur og efst úr honum gusaðist smáspræna sem fór niður í skál í bergið og lak þaðan niður með steininum og niður á stétt sem drakk vatnið í sig. Þar sem dóttir mín fékk sér sopa vakti hún óskipta athygli erlendra ferðalanga sem horfðu á barnið og vatnið og töluðu saman í lágum hljóðum og kinkuðu kolli. Bakþankar 15. júlí 2011 06:00
Geðdeild Akureyrar aðeins með 10 pláss á legudeild fyrir sjúklinga með alvarlegan geðrænan vanda Gísli Hvanndal Jakobsson Skoðun
Stefnubreyting Miðflokksins gegn hagsmunum bænda Þórarinn Ingi Pétursson,Þuríður Lillý Sigurðardóttir,Jóhann Friðrik Friðriksson,Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson,Stefán Vagn Stefánsson,Halla Signý Kristjánsdóttir Skoðun
Opið bréf til forystu Kennarasambands Íslands (KÍ): Endurskoðum aðferðafræði verkfallsins Valgerður Bára Bárðardóttir Skoðun