

Alþingi
Fréttir af löggjafarþingi Íslendinga, þingmönnum og fleiri tengdum málum.

Ræða Ásmundar Einars olli Sigmundi Davíð vonbrigðum
Sigmundur Davíð segir lýsingar Ásmundar Einars af fundi framkvæmdastjórnar flokksins vera ósannar.

Framsókn sýndi frá ræðu Sigmundar Davíðs en klippti á Sigurð Inga
Framsóknarflokkurinn var með beina útsendingu á vefnum frá flokksþinginu sem hófst í dag. Útsendingin varði þó ekki lengi þó að fundurinn sjálfur standi í tvo daga.

Katrín: „Við ætlum að lyfta gjaldtöku í áföngum“
Vinstri grænir vilja að öll heilbrigðisþjónusta á sjúkrahúsum og heilsugæslustöðvum verði gjaldfrjáls og draga þurfi markvisst úr kostnaðarþátttöku sjúklinga á kjörtímabilinu.

Baðst afsökunar á því að vera ekki í tengslum við Framsóknarmenn
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins ávarpaði flokksþings Framsóknar í Háskólabíói í morgun. Klukkan rúmlega 11 hóf hann ræðu sína en í henni fór hann um víðan völl.

Bein útsending: Flokksþing Framsóknar
Flokksþing Framsóknarflokksins hófst í morgun í Háskólabíói.

Sundraður Framsóknarflokkur býr sig undir átök á flokksþingi
Flokksþing Framsóknarflokksins hefst í dag í skugga mikilla innanflokksátaka. Formaðurinn er sakaður um einræðistilburði. Framkvæmdastjóri flokksins setti Jóhannes Þór Skúlason, aðstoðarmann Sigmundar, í starf tengiliðs flokksins við

Bjarni vildi breytingar á lista á elleftu stundu
Kjörnefnd Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi hafði ákveðið að gera tillögu um framboðslista með fjórum karlmönnum í efsta sæti. Skömmu fyrir fundinn krafðist Bjarni Benediktsson þess að breytingar yrðu gerðar á listanum.

Sigmundur Davíð: Hugsa sem minnst um hvað gerist ef illa fer
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segist ekki hafa hugsað um hvað taki við verði hann ekki endurkjörinn formaður flokksins

Hrútskýringar óumflýjanlegur hluti af vinnudeginum á Alþingi
Hugtakið hrútskýring hefur verið að ryðja sér rúms í umræðunni hér á landi undanfarið en þær eru óumflýjanlegur hluti af vinnudeginum á Alþingi, að mati nokkurra íslenskra stjórnmálakvenna.

Preben og Dagný Rut í efstu sætum Bjartrar framtíðar í NA-kjördæmi
Björt framtíð hefur skipað lista sinn í Norðausturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar

Forsætisráðherra fær 15 mínútur á flokksþingi Framsóknar
Eftir breytingu á dagskrá flokksþings fá allir ráðherrar flokksins hver um sig 15 mínútur til að fara yfir sín mál.

Pendúllinn: Ögurstund Sigmundar, íhlutun íhaldsins og óviss almenningur
Fjórði þáttur Pendúlsins er kominn í loftið.

Ný dagskrá í burðarliðnum fyrir flokksþing Framsóknarflokksins
1049 fulltrúar á flokksþingi ákveða hver verður næsti formaður flokksins í kosningu á sunnudag. Flokkurinn gæti verið í sárum vegna úrslitanna, hver sem þau verða.

Þorvaldur leiðir lista Alþýðufylkingarinnar í Reykjavík suður
Þorvaldur Þorvaldsson, trésmiður og formaður Alþýðufylkingarinnar, leiðir lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður í komandi alþingiskosningum.

Listi Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi samþykktur
Þingmaðurinn Lilja Rafney Magnúsdóttir skipar efsta sæti listans.

Bjarni talaði mjög fyrir breytingu á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi
Breytingin var mjög óvænt að sögn Bryndísar Haraldsdóttur.

Vilja að fleiri greinar greiði auðlindagjald
Forystumenn stjórnmálaflokkanna eru almennt sammála um að fleiri atvinnugreinar en sjávarútvegur greiði auðlindagjald. Forsætisráðherra segir óraunhæft að fækka virðisaukaskattsþrepum niður í eitt. Formaður VG segir þörf á að efla

Breytingar á lista Sjálfstæðisflokksins í Kraganum: Bryndís í annað sætið
Breytingin var samþykkt á fundi Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu í kvöld.

Listi Viðreisnar í Norðausturkjördæmi staðfestur
Formaður flokksins leiðir listann.

Titringur innan Framsóknar: „Aukin tortryggni leiðir til aukins óróa“
Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins segir mikilvægt að huga að því hvernig ásýnd flokksins verði í komandi kosningum og við myndun nýrrar ríkisstjórnar.

Sigmundur Davíð um kannanirnar: „Ekkert nýtt að þeir sem eru andsnúnir flokknum vilji losna við mig“
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins segir ánægjulegt að sjá stuðning Framsóknarmanna við sig í tveimur könnunum sem birtust í dag vegna formannskosninganna sem fara fram á Flokksþingi Framsóknarflokksins um helgina.

Gústaf Níelsson leiðir Íslensku Þjóðfylkinguna í Reykjavíkurkjördæmi norður
Íslenska Þjóðfylkingin, E listinn, hefur stillt upp framboðslista sínum í Reykjavíkurkjördæmi Norður.

Dögun tilkynnir efstu sæti á listum sínum í Norðvestur- og Norðausturkjördæmi
Sigurður Eiríksson ráðgjafi og Sigurjón Þórðarson, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits norðurlands vestra, leiða lista flokksins.

Stuðningsmenn Sigurðar Inga ósáttir
Ekki gert ráð fyrir Sigurði Inga í dagskrá Flokksþings.

Svar við spurningu Kára Stefánssonar
Sæll Kári, og takk fyrir síðast. Í sjónvarpsþættinum Leiðtogaumræður, sem fram fór fimmtudagskvöldið 22. september sl., spurðir þú fulltrúa þeirra flokka sem bjóða fram í næstu Alþingiskosningum spurninga.

Framboðslisti Íslensku þjóðfylkingarinnar í Reykjavík suður kynntur
Gunnlaugur Ingvarsson bifreiðastjóri skipar efsta sæti listans.

Sigurður Ingi ekki viðstaddur fund forsætisráðherra Norðurlandanna
Sigurður Ingi Jóhannsson er ekki viðstaddur fund forsætisráðherra Norðurlandanna sem nú fer fram á Álandseyjum.

Býður sig fram til ritara Framsóknar en lýsir hvorki yfir stuðningi við Sigmund Davíð né Sigurð Inga
Jón Björn Hákonarson forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar og oddviti Framsóknarmanna í Fjarðabyggð hefur ákveðið að gefa kost á sér í embætti ritara Framsóknarflokksins á flokksþinginu sem fram fer um næstu helgi.

Verðtrygging verður óþörf með myntráði
Festing gengis krónunnar við annan gjaldmiðil, til dæmis evru, með myntráði er betra fyrirkomulag en núverandi peningastefna og verðskuldar nánari skoðun.

Píratar tapa miklu fylgi en Sjálfstæðisflokkur eykur við sig
Sjálfstæðisflokkurinn mælist langstærsti flokkurinn i nýrri könnun Fréttablaðsins, Stöðvar 2 og Vísis. Píratar tapa miklu fylgi. Framsóknarflokkurinn og VG jafnstórir. Þingmaður Framsóknarflokkinn segir flokkinn eiga meira inni.