Dreymir um að sjá framherjapar Íslands í ensku úrvalsdeildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. nóvember 2026 14:24 Orri Steinn Óskarsson og Andri Lucas Guðjohnsen fagna hér mörkum í síðasta glugga en þeir skoruðu fimm mörk saman. Vísir/Anton Landsliðsframherjarnir Orri Steinn Óskarsson og Andri Lucas Guðjohnsen voru báðir á skotskónum í síðasta landsliðsglugga og þeir komu sjóðheitir til móts við sín félagslið eftir hann.
Báðir hafa í framhaldinu verið að raða inn mörkum fyrir sín lið, Orri Steinn fyrir spænska liðið Real Sociedad en Andri Lucas fyrir Blackburn í ensku B-deildinni. Arnar ræddi framherjaparið á blaðamannafundi í dag. Hann segir að þrátt fyrir að það sé að koma upp gullkynslóð íslenskra framherja í dag þá verði það ekki auðvelt fyrir þá að slá út þá Orra Stein og Andra Lucas. Arnar er ekki aðeins sáttur með framherjana tvo heldur hefur hann háleit markmið fyrir þá báða. „Það er mjög ánægjulegt hversu margir strákar hjá okkur komu úr glugganum og voru bara heilir. Við sjáum alls konar vesen alls staðar úti í svona stórum heimi þar sem menn eru að meiðast. Við höfum ekki fengið nein vöðvameiðsli þannig að það sýnir það að við erum að rótera rétt í þessum glugga,“ sagði Arnar „Við höfum fengið Orra sjóðandi heitan sem kom inn í síðasta glugga með ekkert blússandi sjálfstraust. Ég lít alltaf svo á að liðin og landsliðin séu saman með það verkefni að gera leikmanninn betri. Í þessum glugga var fullt af leikmönnum hjá okkur sem komu til baka og voru sterkir,“ sagði Arnar og nefndi að auki þá Mikael Egil Ellertsson og Ísak Bergmann Jóhannesson sem báðir hafa verið að gera flotta hluti með liðum sínum á Ítalíu og í Þýskalandi. „Mikael Egill fór að skora með Genoa. Ísak átti tvo stórleiki og byrjaði í hverjum einasta leik fyrir Köln,“ sagði Arnar en hann vill sérstaklega sjá þá Orra og Andra komast enn lengra. „Ég á mér þá von og draum um að við sjáum báða senterana komast í ensku úrvalsdeildina fyrr en varir og vonandi spili þeir þá báðir fyrir mitt lið, Manchester United. Ekki veitir af,“ sagði Arnar í léttum tón en tók það líka fram að hann væri ekki að setja neina pressu á það en hann leyfði sér að dreyma um að þeir taki fleiri skref upp metorðastigann. Andri Lucas Guðjohnsen hefur skorað 9 mörk í 13 leikjum í ensku B-deildinni en með íslenska landsliðinu er hann þegar kominn með 12 mörk í 43 leikjum, þar af tvö mörk í síðasta glugga. Orri Steinn Óskarsson hefur skorað 4 mörk í 12 leikjum í öllum keppnum með Real Sociedad á leiktíðinni en með íslenska landsliðinu er hann þegar kominn með 12 mörk í 22 leikjum, þar af þrjú mörk í síðasta glugga.
Þjóðadeild karla í fótbolta Landslið karla í fótbolta Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég reyni bara að njóta fótboltans og lífsins“ Hvolsvellingur og EM-fari í Stjörnuna Veðmálasvindl tengt Ballon d'Or á borði lögreglu Hópurinn sem gæti komið Íslandi á EM Dreymir um að sjá framherjapar Íslands í ensku úrvalsdeildinni „Ef menn geta ekki hagað sér núna þá er eitthvað mikið að“ „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Arnar kynnti landsliðshópinn „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Sjá meira