Parker nýr þjálfari West Ham Valur Páll Eiríksson skrifar 4. nóvember 2026 10:23 Parker er tekinn við West Ham. EPA Scott Parker er nýr þjálfari West Ham í ensku B-deildinni í fótbolta. Hann tekur við af Portúgalanum Nuno Espírito Santo sem var sagt upp í gær.
Hinn 46 ára gamli Parker gerir tveggja og hálfs árs samning við West Ham, til sumarsins 2029. Honum er ætlað að stýra West Ham upp í ensku úrvalsdeildina eftir fall liðsins úr deildinni í vor. Nuno var sagt upp störfum í gær eftir slaka byrjun á leiktíðinni en West Ham situr í áttunda sæti deildarinnar með 22 stig eftir 13 leiki. Tvö töp í röð fyrir Southampton og West Bromwich Albion gerðu að verkum að stjórnarmenn liðsins ákváðu að breyta til. Scott Parker var leikmaður West Ham í rúmar fjórar leiktíðir.Nordic Photos / Getty Images Parker þekkir til hjá West Ham en hann var leikmaður og fyrirliði liðsins. Hann spilaði 129 leiki fyrir West Ham milli 2007 og 2011. Parker hefur sem þjálfari stýrt liðum Fulham, Bournemouth og Burnley og hefur komið öllum þremur liðum upp úr B-deildinni. Hann þekkir því hvað þarf til í þeim efnum. Hann reyndi einnig fyrir sér í Belgíu er hann stýrði Club Brugge milli 2022 og 2023. Fyrsti leikur eftir þjálfaraskiptin er strax í kvöld er West Ham sækir Cardiff City heim til Wales. West Ham United can confirm that Scott Parker has agreed a deal to become the Club’s new men’s first-team Head Coach 🤝 🔗 https://t.co/psiVYuW10J https://t.co/33buMmXJ0f— West Ham United (@WestHam) November 4, 2026
West Ham United Enski boltinn Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Fleiri fréttir Parker nýr þjálfari West Ham Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Áfram skorar Andri Lucas „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Sjá meira