Fótbolti

Upp­reisn á Old Traf­ford: Stuðnings­menn United mót­mæla

Aron Guðmundsson skrifar
Tennisboltar inn á Old Trafford
Tennisboltar inn á Old Trafford Vísir/Getty

Stuðningsmenn Manchester United létu í ljós óánægju sína með stöðu mála hjá félaginu eftir að liðið lenti 2-0 undir gegn Roma á heimavelli í Meistaradeild Evrópu.

Kominn er hálfleikur í leiknum sem fer fram á Old Trafford í Manchesterborg og standa leikar 2-0 Roma í vil.

Klippa: Stuðningsmenn Man Utd brjálaðir

Það hefur hvorki gengið né rekið hjá Manchester United upp á síðkastið. Liðið er í fallbaráttu í ensku úrvalsdeildinni, sæti Michael Carrick þjálfara liðsins orðið heitt og þolinmæðin gagnvart stjórnendum félagsins fyrir löngu þrotin. 

Stuðningsmenn Manchester United mótmæltu fyrir leik í stúkunni og eftir að liðið var lent tveimur mörkum undir í kvöld tóku þeir að kasta aðskotahlutum, meðal annars tennisboltum, inn á völlinn. 

Leikur Manchester United og Roma er sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Viaplay. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×