Fótbolti

Að­eins nokkrir dagar í nýjan samning

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Harry Kane sýnir stuðningsmönnum Bayern München Gullknöttinn fyrir leikinn á móti Borussia Dortmund um helgina.
Harry Kane sýnir stuðningsmönnum Bayern München Gullknöttinn fyrir leikinn á móti Borussia Dortmund um helgina. AP/Sven Hoppe

Enski framherjinn og Gullknattarhafinn Harry Kane býst við því að skrifa undir nýjan samning við Bayern München á næstu dögum.

Fyrirliði enska landsliðsins nálgast lok fjögurra ára samningsins sem hann gerði við Bayern München eftir að hann yfirgaf Tottenham Hotspur sumarið 2023.

Kane skoraði 73 mörk fyrir félagslið og landslið á síðasta tímabili, vann tvo titla í Þýskalandi og leiddi England til þriðja sætis á HM.

Hinn 33 ára gamli Kane var í síðustu viku krýndur besti leikmaður heims við glæsilega athöfn í London og er tilbúinn að framlengja dvöl sína á Allianz Arena.

„Ég myndi segja að þetta sé frekar spurning um daga,“ sagði Kane á blaðamannafundi fyrir leik kvöldsins sem er gegn Atlético Madrid í Meistaradeildinni.

„Það hafa átt sér stað góðar viðræður um helgina og líka í dag. Ég veit að ég segi alltaf að við séum nálægt þessu, en nú erum við gríðarlega nálægt. Smáatriði eru bara smáatriði í öllum samningum,“ sagði Kane

„Búið er að ganga frá stóru atriðunum og við erum sáttir við þau, en í hverjum samningi eru ótal lítil atriði, smáatriði sem lögfræðingarnir þurfa á endanum að útkljá og leysa,“ sagði Kane.

„Þannig að þegar allt kemur til alls myndi ég segja að þetta sé frekar spurning um daga en vikur. Eftir því sem ég hef heyrt gengu viðræðurnar aftur vel í dag og vonandi verðum við komnir á þann stað að geta gengið frá málinu á næstu dögum,“ sagði Kane.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×