Fótbolti

Ronaldo var skilinn eftir heima

Aron Guðmundsson skrifar
Ronaldo í leik með Al-Nassr
Ronaldo í leik með Al-Nassr Vísir/Getty

Portúgalska knattspyrnustjarnan Cristiano Ronaldo var ekki í leikmannahópi Al-Nassr sem mætti Pakhtakor í Meistaradeild Asíu í Úsbekistan í gær. En ógn hefur stafað af árásum Húta á flugvelli í landinu.

Greint er frá málinu í erlendum miðlum, þar á meðal á vef The Independent en Ronaldo ferðaðist ekki með Al-Nassr í umræddan leik og það sama má segja um liðsfélaga hans Kingsley Coman og Mohamed Simakan.

Þjálfari liðsins, Ange Postecoglou sagðist hafa viljað hlífa þessum leikmönnum við ferðalaginu til Úsbekistan sem og álaginu sem umræddur leikur hefði í för með sér. 

Al-Nassr vann öruggan 6-2 sigur á Pakhatkor en viðvarandi ógn hefur stafað af árásum Húta á flugvelli í Úsbekistan. 

Al-Nassr er í góðum málum í deildarkeppni Meistaradeildar Asíu eftir þrjár umferðir. Þar er liðið í fjórða sæti með sex stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×