Íslenski boltinn

Svein­björn Más­son sæmdur silfurmerki KSÍ

Valur Páll Eiríksson skrifar
Sveinbjörn Másson (t.v.) veitir silfurmerkinu afhendingu á lokahófi Selfoss á dögunum.
Sveinbjörn Másson (t.v.) veitir silfurmerkinu afhendingu á lokahófi Selfoss á dögunum. Selfoss

Selfyssingurinn Sveinbjörn Másson var sæmdur gullmerki KSÍ á lokahófi Selfyssinga á dögunum vegna starfs síns í þágu fótboltans.

Sveinbjörn þarf ekki að kynna fyrir mörgum Selfyssingum en hann hefur verið virkur í starfi knattspyrnudeildar Selfoss um áratugaskeið. Hann var þar sem iðkandi, foreldri, sjálfboðaliði og starfsmaður. Hann var þá framkvæmdastjóri knattspyrnudeildarinnar frá 2007 til 2022.

Hann átti stóran þátt í stofnun Olís-mótsins, sem er árlegt barnamót á Selfossi, og verður haldið í 21. sinn í ár, auk þess sem hann hefur verið burðarás í flugeldasölu knattspyrnudeildar Selfoss sem hefur staðið í rúma tvo áratugi.

Sveinbjörn er vallarstjóri á fótboltavellinum á Selfoss og hefur sinnt því samhliða öðrum störfum innan deildarinnar svo árum skipti.

Yfirlýsing KSÍ:

Sveinbjörn Másson fékk silfurmerki KSÍ á lokahófi knattspyrnudeildar Selfoss á dögunum.

Sveinbjörn hefur verið virkur þátttakandi í starfi knattspyrnudeildar Selfoss alla tíð, fyrst sem iðkandi, síðar foreldri, sjálfboðaliði og starfsmaður. Sveinbjörn hóf störf sem framkvæmdastjóri hjá knattspyrnudeild Selfoss í október 2007 og starfaði sem slíkur til mars 2022.

Áður en Sveinbjörn tók við starfi framkvæmdastjóra hafði hann setið í barna- og unglingaráði knattspyrnudeildar. Á þeim tíma átti hann stóran þátt í stofnun Olís mótsins sem er enn starfrækt, haldið í tuttugasta og fyrsta sinn í ár, og er og hefur verið einn stærsti tekjuliður deildarinnar sl. ár og áratugi.

Sveinbjörn hefur verið einn af burðarásum flugeldasölu knattspyrnudeildar frá áramótum 2005/2006, eða í yfir 20 ár.

Samhliða því að vera framkvæmdastjóri deildarinnar var Sveinbjörn einnig vallarstjóri á Selfossvelli og starfar sem slíkur enn í dag. Frá því Sveinbjörn hóf störf hefur vallarsvæðið vaxið, dafnað og er prýði fyrir Selfossbæ samtíma því að vera litið öfundaraugum af mörgum vallargestum.

Á framkvæmdastjóratíð Sveinbjarnar urðu mikil framfaraskref í knattspyrnudeild, karla- og kvennalið léku í fyrsta skipti í sögu félagsins í efstu deild og kvennalið félagsins varð bikarmeistari.

Sveinbirni verður vitaskuld ekki eignaður allur heiður af þróun mála á vallarsvæðinu né afrekum liða félagsins en lagði sitt af mörkum með sínum krafti, dugnaði, útsjónarsemi og samskiptahæfni.

Sveinbjörn hefur einnig gegnt trúnaðarstörfum fyrir Knattspyrnusamband Íslands, þá helst með störfum í mótanefnd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×