Erlent

Senda þúsund her­menn til Haítí eftir um­sátur

Samúel Karl Ólason skrifar
Brynvarðir bílar á götum Port au Prince. Sameinuðu þjóðirnar hafa í um ár leitt fjölþjóðlegt verkefni sem á að sporna gegn umsvifum glæpagengja á Haítí.
Brynvarðir bílar á götum Port au Prince. Sameinuðu þjóðirnar hafa í um ár leitt fjölþjóðlegt verkefni sem á að sporna gegn umsvifum glæpagengja á Haítí. AP/Odelyn Joseph

Yfirvöld í El Salvador hafa sent um þúsund hermenn til Haítí í flýti. Það er eftir að fjórir meðlimir hers ríkisins sem tekið hafa þátt í öryggisverkefni sem leitt er af Sameinuðu þjóðunum týndust eftir umsátur glæpamanna í jaðri Port au Prince, höfuðborgar landsins.

Hermennirnir hafa verið að lenda á Haíti á undanförnum dögum en umfang verkefnis þeirra, hverjir stjórna þeim og hversu lengi þeir eiga að vera er óljóst, samkvæmt frétt Reuters. Yfirvöld hvorugs ríkis hafa svarað fyrirspurnum fréttaveitunnar.

Sameinuðu þjóðirnar hafa á undanförnu ári leitt sérstakt öryggisverkefni sem ætlað er að sporna gegn sífellt auknum áhrifum glæpagengja á Haítí og draga úr óreiðu þar og gífurlegu ofbeldi.

Sjá einnig: Myrtu fjörutíu manns í kirkju

Óreiðan á Haítí hefur í þó nokkur ár verið gífurlega mikil og eru hömlulaus glæpagengi orðin gífurlega öflug. Gengi stjórna nærri því allri höfuðborg landsins og mörgum öðrum byggðum þess. Glæpagengi Haítí eru bæði mun fjölmennari og betur búin en lögregla landsins. Stjórnmálamenn hafa í gegnum árin dælt peningum í mismunandi gengi og beitt þeim gegn pólitískum andstæðingum sínum.

Óreiðan náði nýjum hæðum eftir að Jovenel Moise forseti var myrtur árið 2021. Moise var einkar óvinsæll forseti og var sakaður um einræðistilburði. Degi áður en hann dó skipaði hann sinn sjöunda forsætisráðherra á kjörtímabili sínu.

Nick Paton Walsh, fréttamaður CNN, fór nýverið til Haítí til að kynna sér stöðuna þar. Meðal annars ræddi hann við heimamenn og lögregluþjóna og fylgdi þeim í verkefni. Þar að auki talaði hann við bandaríska málaliðaleiðtogann umdeilda, Erik Price, sem hefur verið að aðstoða yfirvöld á Haítí gegn gengjunum.

Sjá einnig: Umsátur opinbera skuggastríð málaliða

Málaliðar Price hafa frá í fyrra notað sjálfsprengidróna gegn glæpamönnum á Haítí en þær árásir hafa verið mjög umdeildar. Heimamenn hafa kvartað yfir mannfalli óbreyttra borgara í þessum árásum.

Leiðtogar ríkisins hafa frá árinu 2022 sóst eftir alþjóðlegri aðstoð gegn þessum gengjum. Í fyrra hófst svo verkefni Sameinuðu þjóðanna og taka hermenn frá Tjad, Srí Lanka, Gvatemala, Mongólíu og El Salvador þátt í því. Langflestir hermenn koma frá Tjad.

Hermennirnir eru um tvö þúsund talsins en þeir áttu samkvæmt upprunalegum áætlunum Sameinuðu þjóðanna að vera fjögur þúsund í heildina.

Sérfræðingar segja að verkefnið hafi ekki skilað miklum árangri hingað til.


Óttast um óbreytta borgara

Umrætt umsátur átti sér stað þann 18. október. Þá voru fjórir hermenn, flugvirkjar úr flugher El Salvador, á leið til herstöðvarinnar eftir að hafa farið í búð. Setið var fyrir bíl þeirra og er talið að þeim sé haldið í gíslingu. Enginn hefur þó lýst yfir ábyrgð eða farið fram á lausnargjald.

Nayib Bukele, forseti El Salvador, segir að þeir 124 hermenn sem hafi verið sendir til að taka þátt í verkefni Sameinuðu þjóðanna séu flugmenn og flugvirkjar.

Hann tilkynnti í síðustu viku að hann myndi senda hermenn til að leita þeirra en sagði ekki hve margir þeir yrðu. Nú segir Reuters að þeir séu um þúsund talsins og hafi verið fluttir þangað með aðstoð Bandaríkjanna en Bukele er bandamaður Donalds Trump og hefur átt í hernaðarsamstarfi með Bandaríkjamönnum.

Einn sérfræðingur sem ræddi við Reuters segir líklegt að hermennirnir þúsund, eða í það minnsta hluti þeirra, muni ekki starfa á vegum Sameinuðu þjóðanna heldur með áðurnefndum málaliðum á vegum Erik Price.

Pierre Esperance, sem stýrir mannréttindasamtökum á Haítí, segist fagna fleiri hermönnum frá El Salvador. Hann segist vonast til þess að það muni hjálpa til við að stöðva glæpamenn í að níðast á og myrða óbreytta borgara.

Hins vegar óttast hann að aðgerðir þeirra muni koma niður á almenningi.

„Það er ekki svo að allir sem búa á yfirráðasvæðum glæpagengja séu glæpamenn.“



Fleiri fréttir

Sjá meira


×