Innlent

Heim­sending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Elías segir að í sex ári hafi heimsending á áfengi verið kölluð ógn við lýðheilsu en nú þegar ÁTVR ætli að bætast í hópinn heiti það þjónusta.
Elías segir að í sex ári hafi heimsending á áfengi verið kölluð ógn við lýðheilsu en nú þegar ÁTVR ætli að bætast í hópinn heiti það þjónusta. vísir

Einn eigenda netverslunarinnar Sante segir áform ríkisins um að hefja heimsendingu á áfengi merkileg í ljósi þess að áfengislögin kveði á um að ÁTVR eigi að takmarka aðgengi að áfengi. Sama stofnun og ætli nú að hefja heimsendingar hafi í sex ár kallað heimsendingar ógn við lýðheilsu. Nú þurfi forsvarsmenn vínbúðanna að fara að ákveða hvort ÁTVR sé lýðheilsustofnun eða verslun sem keppir um viðskiptavini.

Í gær greindi forstjóri Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins frá því í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni að til skoðunar væri að bjóða upp á heimsendingarþjónustu á áfengi.

Elías Blöndal Guðjónsson, framkvæmdastjóri netverslunarinnar Sante, segir þessi áform merkileg.

„Áfengislögin fjalla um að ÁTVR eigi að takmarka aðgengi að áfengi en á sama tíma segir forstjórinn að heimsendingarþjónustan eigi að auka aðgengi og það er auðvitað þannig að annaðhvort eru lögin úrelt eða bara einfaldlega stofnunin.“

Hann bendir á að í sex ár, frá því að Sante kom inn á markaðinn, hafi heimsending verið kölluð ógn við lýðheilsu.

„En þegar ríkið vill gera það þá heitir það þjónusta og það er auðvitað þannig að vínflaskan veit ekkert hver keyrir bílinn og það skiptir auðvitað engu máli. Þannig að ÁTVR verður bara eiginlega að velja, hún getur ekki bæði verið einhvers konar lýðheilsustofnun sem skreytir sig með fjöðrum fyrir að sinna lýðheilsu þjóðarinnar og verslun sem keppir um viðskiptavini. Hún verður bara að velja þarna á milli.“

Hann segir það liggja fyrir að sala í vínbúðunum hafi dregist saman.

„Forstjórinn segist ekki hafa gögn um það hvað skýrist af minni neyslu. Það er reyndar þannig að neyslan hefur minnkað þrátt fyrir þetta sem er kallað aukna aðgengi að áfengi þannig að ég held reyndar að heimsending áfengis frá ÁTVR myndi ekki breyta neinu um neysluna.“

„Neyslan færist einfaldlega bara til og ÁTVR er ekki í tilvistarkreppu af því að fólk er að drekka minna. ÁTVR er bara í tilvistarkreppu af því að fólk hefur núna raunverulegt val og það eru önnur fyrirtæki sem bjóða betri þjónustu og eru búin að bjóða betri þjónustu í sex ár. Það tók sem sagt Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins sex ár að átta sig á því að stofnunin gæti mögulega veitt viðskiptavinum sínum betri þjónustu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×