Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Smári Jökull Jónsson skrifar 27. október 2026 14:42 Fyrsti sigmaðurinn fór niður á tólfta tímanum í morgun. Vísir/Einar Formleg leit að Lúðvík Péturssyni, sem féll í sprungu í Grindavík þann 24. janúar 2024, hófst í morgun. Fyrstu sigmennirnir sigu niður í sprunguna á tólfta tímanum en meðal annars verður notast við myndavélabúnað frá rústabjörgunarsveitinni til að kanna aðstæður.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum stýrir aðgerðum í Grindavík en að þeim koma meðal annars aðilar úr rústabjörgunarsveit Landsbjargar sem og sérsveit ríkislögreglustjóra. Miklar öryggisráðstafanir eru á vettvangi en í gær fór fram undirbúningsvinna þar sem öryggislínum og öðrum búnaði var komið fyrir. Í morgun voru verkfræðingar sömuleiðis á svæðinu sem aðstoðuðu við að tryggja svæðið. Í kjölfarið var haldinn fundur í sérstökum bíl aðgerðastjórnar í Grindavík áður en fjölmiðlafólki var veittur aðgangur að vinnusvæðinu. Klippa: Leitaraðgerðir í Grindavík Fyrstu sigmennirnir sigu síðan niður í sprunguna á tólfta tímanum. Fram kom í máli starfsmanna aðgerðastjórnar í Grindavík að búast mætti við að unnið verði við leitina fram eftir degi í dag og áfram næstu daga. Áhættugreining í fjórum liðum Um er að ræða fyrsta fasa leitaraðgerða sem skipulagðar eru út frá minnisblaði og áhættugreiningu verkfræðistofunnar COWI. Samkvæmt því mati er í fyrsta áfanga miðað við sjónskoðun og leit með rústamyndavél með áherslu á að jarðvegi sé lítið sem ekkert raskað. Í næstu fösum er síðan gert ráð fyrir tilfærslu á efni með handverkfærum, að efni sé híft upp eða lagt til hliðar á svæði sem búið er að leita á og í kjölfarið tilfærslu á stærri blokkum sem hægt er að velta til hliðar eða færa til með loftpúðum. Sigmenn undirbúa sig við opið ofan við sprunguna.Vísir/Einar Ef ákveðið yrði að hífa upp stærra grjót segir í skýrslu COWI að breyta þyrfti pallinum yfir sprunguopinu og við það gætu aðstæður niðri orðið óöruggari þar sem pallurinn veiti vörn fyrir hruni að ofan. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum vildi ekki veita fjölmiðlum viðtal um framkvæmd leitarinnar þegar eftir því var leitað í morgun en von er á tilkynningu frá embættinu síðar í dag. Svæðið við Vesturhóp 29 er afgirt og miklar öryggisráðstafanir á svæðinu.Vísir/Einar Elías Pétursson, bróðir Lúðvíks, var í viðtali í Bítinu í morgun þar sem hann sagði það von fjölskyldunnar að lík Lúðvíks finnist svo hægt sé að jarða hann. Þar gagnrýndi hann meðal annars að ekki hafi farið fram áhættumat áður en Lúðvík ásamt vinnufélaga hans voru settir til verka á svæðinu í janúar 2024, þó að Veðurstofan hafi sérstaklega varað við sprunguhreyfingum. Í úrskurði Vinnueftirlitsins kom meðal annars fram að kynning á hættum og verklagi á svæðinu hefði ekki verið nægilega skýr. „Lúlli dó því ekki vegna óviðráðanlegra náttúruafla, heldur vegna ákvarðana sem voru teknar og ákvarðana sem ekki voru teknar en hefðu betur verið teknar,“ sagði Lúðvík í morgun. Fjölskylda Lúðvíks hefur barist ötullega fyrir því að leitað verið að jarðneskum leifum hans.
Féll í sprungu í Grindavík Grindavík Eldgos og jarðhræringar Eldgos á Reykjanesskaga Lögreglumál Tengdar fréttir Vill að allt verði gert til að ná bróður hans úr sprungunni Bróðir Lúðvíks Péturssonar sem féll í sprungu í Grindavík í byrjun síðasta árs segir vel mögulegt að endurheimta líkamsleifar hans án þess að stofna lífi annarra í hættu. Dómsmálaráðuneytið hefur ekki svarað fyrirspurnum fjölskyldunnar um áframhald leitar. 12. desember 2025 19:21 Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Fleiri fréttir „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Sjá meira
Vill að allt verði gert til að ná bróður hans úr sprungunni Bróðir Lúðvíks Péturssonar sem féll í sprungu í Grindavík í byrjun síðasta árs segir vel mögulegt að endurheimta líkamsleifar hans án þess að stofna lífi annarra í hættu. Dómsmálaráðuneytið hefur ekki svarað fyrirspurnum fjölskyldunnar um áframhald leitar. 12. desember 2025 19:21