„Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Lovísa Arnardóttir skrifar 27. október 2026 08:07 Elías segir einu leiðina að setja öll gögnin á borðið. Það verði að rannsaka málið betur. Hann vonar að leitin skili árangri. Vísir/Sigurjón og aðsend Leit verður hafin nú í morgunsárið að líkamsleifum Lúðvíks Péturssonar, sem féll niður um jarðfall í Grindavík í janúar 2024. Bróðir hans gagnrýnir hversu langan tíma hefur tekið að hefja leit og telur að rannsaka þurfi aðdraganda þess að Lúðvík féll í sprunguna betur. Fjölskyldan voni að hann finnist í dag og þau geti jarðað hann. Rætt var við Elías í Bítinu á Bylgjunni í morgun.
Lúðvík Pétursson lést þegar hann féll í sprungu í Hópshverfi í Grindavík í janúar árið 2024. Þriggja daga leit fór fram eftir að hann hvarf, sem var að endingu blásin af vegna erfiðra og hættulegra aðstæðna á vettvangi. Fjölskylda Lúðvíks situr enn uppi með ótal spurningar en lítið er um svör. Sjá einnig: Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Lögreglustjórinn á Suðurnesjum stjórnar aðgerðunum í Grindavík. Í fréttatilkynningu þess efnis frá embættinu í gær segir að viðbragðsaðilar og sérfræðingar hafi verið við vinnu í gær til að huga að öryggi og setja upp vinnusvæði vegna leitarinnar, sem stefnt er að að hefjist um klukkan níu við Vesturhóp 29. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum ber ábyrgð á leitaraðgerðinni og er unnið á grunni áhættumatsvinnu. Elías Pétursson, bróðir Lúðvíks, segir í færslu á Facebook fyrir nokkrum dögum að fjölskyldan sé þakklát þeim sem hafi lagt sitt af mörkum og þeim sem síga munu niður. Hvað leitina varðar gangi fjölskyldunni það eitt til að fá að kveðja Lúðvík við útför og ljúka með því einum þætti þessa sorglega máls. Hann gagnrýnir þó nokkuð harðlega hversu langan tíma hefur tekið að komast á þennan stað en stuttan til að senda Lúðvík, eða Lúlla eins og hann kallar hann, í vinnu á sprungusvæðinu. „Það þurfti áhættumat, mat erlendra sérfræðinga og mótvægisaðgerðir áður en óhætt þótti að senda nokkurn mann niður í sprunguna. Það er rétt og eðlilegt að fara varlega. Þegar Lúlli og vinnufélagi hans voru settir til verka í bakgarði í Grindavík við að fylla undir hús í janúar 2024 var engu slíku til að dreifa. Veðurstofan hafði varað sérstaklega við sprunguhreyfingum, en ekkert mat lá fyrir á hættunni sem fylgdi því verkefni sem þeim var falið að vinna á skilgreindu hættusvæði í miðjum jarðhræringum, né á því hvort verkið væri yfirhöfuð áhættunnar virði,“ segir hann í færslunni og það sé sárast hversu óþarft þetta var. „Lúlli dó ekki vegna óviðráðanlegra náttúruafla, heldur vegna ákvarðana sem voru teknar og ákvarðana sem ekki voru teknar en hefðu betur verið teknar.“ Rætt var við Elías í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Hann sagðist upplifa blendnar tilfinningar í dag. Hann voni að hann finnist og hann sé feginn að það sé loks verið að leita. Lúðvík var fengið það verkefni að fylla upp í sprungur í Grindavík. Það hafi verið búið að hrynja undir húsi sem hann vann við, búið að dæma það altjónað og það veki því spurningar um verkefnið. Húsið og sprungan sem Lúðvík Pétursson lést við. Vísir/Vilhelm „Þarna er fullt af spurningum ósvarað,“ segir Elías og að kerfið hafi ekki viljað skoða þessar spurningar. Elías vill ekki vera með getgátur um það hvers vegna það hefur tekið svo langan tíma að fara í þessa leit. Hann segist hafa upplifað það þannig að „kerfið sé að verja sig“ og að það geti ekki tekist á við svona mál. „Ef það er eitthvað sem við eigum að gera þá er það að takast á við svona mál, læra af þeim og gera þetta betur næst.“ Tafir við leitina Hann segir ýmis svör hvað varðar tafir á leit og það varði það að þau vilji fara varlega. Hann gerir ekki athugasemdir við það en bendir aftur á hversu öfugsnúið það er hversu fljótt var ákveðið að fara í verkefnið miðað við hversu langan tíma það hefur tekið að skipuleggja leitina. Hann segir fjölskylduna aldrei hafa óskað þess að fólk myndi leggja sig í hættu við leitina. Þau hafi gert kröfu um að andlát hans og aðdragandi þess yrði rannsakaður svo að hægt yrði að koma í veg fyrir að slíkt gerðist aftur. „Við óskuðum eftir því að það yrði allt gert sem í mannlegu valdi stæði til þess að endurheimta líkamsleifar Lúlla,“ segir hann. Hann segir lögreglu hafa lofað að halda fjölskyldunni upplýstri í dag en veit ekki hvort það verður staðið við það. Hann segir ekki hægt að gera upp svona áfall fyrr en því er lokið. Hann segir þau ekki fyrsta fólkið sem lendir í svona áfalli og bendir til dæmis á að íbúar í Súðavík hafi þurft að bíða áratugum saman eftir rannsókn og uppgjöri. „Við erum ekkert ein um að lenda í svona,“ segir hann og að það hafi komið sér á óvart hversu lítið er búið að læra um það hvernig eigi að bregðast við þegar fólk lendir í svona áfalli. Rannsókn og leit Elías segir málið í raun í tvennu lagi. Það sé rannsókn og svo leitin. Fjölskyldan hafi strax og það lá fyrir hvernig fór fyrir Lúðvíki óskað eftir því að málið yrði rannsakað, hvernig kerfið virkaði og hvort að fólkið í kerfinu brygðist við eða tók ákvörðun sem ekki var í lagi eða í samræmi við ábyrgð. „Þeir sem ráða sig í ábyrgðarstöður verða að þola það að það séu skoðuð þeirra störf,“ segir hann. Hann segir dómsmálaráðuneytið hafa hafið rannsókn og sú rannsókn hafi verið þeim vonbrigði því ráðuneytið þrengdi umboð starfshópsins sem gerði það að verkum að hann gat ekki gert eins heildstæða rannsókn og þau hefðu óskað eftir. Til dæmis hafi Náttúruhamfaratryggingar Íslands ekki verið rannsakaðar og að þeirra mati sé hún viðbragðsaðili. Þeirra hlutverk sé að fara inn á hamfarasvæði og lágmarka tjón á eignum. „En þeir eru teknir út úr sviga á þeim grundvelli að þeir séu ekki viðbragðsaðilar.“ Hann segir þetta flókið lögfræðilegt og stjórnsýslulegt mál, hvernig eigi að skilgreina málið, og það sé ekki endilega á færi fjölskyldunnar að gera umsögn um það. Því hafi þau fengið lögfræðing til að skrifa fyrir þeirra hönd umsögn um skýrsluna. Það hafi haft sáralítil áhrif. „Ef þú skoðar ekki ákvarðanir sem eru teknar í aðdraganda einhvers er augljóst að það er ekki hægt að ákvarða af hverju eitthvað gerðist.“ Í skýrslunni sé það metið sem gerðist eftir á og það komi ýmislegt áhugavert í ljós, eins og að það vissi enginn hver réð á leitarsvæðinu, það hafi ekki legið fyrir hver gaf heimild fyrir framkvæmdunum og á þessum tíma hafi staðan í Grindavík verið þannig að fólk hafi verið þar á eigin ábyrgð. „Það var ákveðið stjórnleysi á svæðinu á þessum tíma,“ segir hann. Starfshópurinn skilaði um 400 blaðsíðna skýrslu um málið og ráðuneytið birti hana síðdegis samdægurs, í aðdraganda langrar helgar. Elías telur að með því að birta hana á þessum tíma hafi ekki verið verið að hvetja til almennrar umræðu og að hann hafi með því verið að „verja sig“. Elías segist hafa óskað eftir skýringum á því hvers vegna starfssvið starfshópsins hafi verið þrengt og hann hafi kallað eftir gögnum hvað það varðar. „Eina leiðin til að klára svona mál er að setja allt upp á borðið.“ Elías segir mikilvægt að málinu verði lokið og það sé ósk fjölskyldunnar að geta fengið einhverja lúkningu með því að líkamsleifar Lúðvíks verði fundnar og þau fái, til dæmis að halda jarðarför. „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann,“ segir hann og að jarðarför sé fyrir flesta mikilvægur hluti sorgarferlisins. „Að vita af Lúlla í einhverjum malarhaug í einhverri sprungu er ekki mjög auðvelt að sætta sig við, það er eiginlega ómögulegt.“ Engin trygging fyrir jafnræði Elías segir það sorglegan hluta af þessu máli að það sé engin trygging í stjórnsýslunni fyrir jafnræði. Það sé einn angi málsins sem sé sorglegt að uppgötva. Stjórnsýslan eigi að vera hlutlaus en innan hennar vinni fólk sem sé mannlegt. Það geri sitt besta í þeirri aðstöðu sem það er í en hann veltir því fyrir sér hvort að kerfið, sem fólkið er búið að búa til, sé nógu gott. Farið verður niður í sprunguna um klukkan níu í dag og gerð sjónskoðun. Elías vonar að hann fái fréttir um klukkan 11. Hann gerir ráð fyrir því að það taki daginn að skoða svæðið og í dag sé aðeins fyrsti fasi. Næsti fasi byggi á því hvað þau sjái í dag og það verði gert mat á því hvort hægt sé að fara niður til að grafa. Hann segir að í minnisblaði COWI hafi verið lagt til að farið yrði niður með einhver tæki og tól sem notuð eru í rústabjörgun.
Féll í sprungu í Grindavík Grindavík Bítið Eldgos og jarðhræringar Eldgos á Reykjanesskaga Lögreglumál Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Fleiri fréttir Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Rætt um frekari hagræðingu „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Sjá meira