Innlent

Sama jarmið í sauð­fé og ferða­mönnum

Kristján Már Unnarsson skrifar
Bændurnir á Gerði í Suðursveit, þau Þórey Bjarnadóttir og Björn Borgþór Þorbergsson, eru meðal viðmælenda í þáttaröðinni „Um land allt“.
Bændurnir á Gerði í Suðursveit, þau Þórey Bjarnadóttir og Björn Borgþór Þorbergsson, eru meðal viðmælenda í þáttaröðinni „Um land allt“. Egill Aðalsteinsson

Þegar erlendi fararstjórinn spurði bóndann í Suðursveit hver munurinn væri á því að vera með sauðfé og ferðamenn var svarið óvænt: Það væri eiginlega alveg það sama. Það væri sama jarmið.

Þetta heyrðum við á bænum Gerði þegar við ræddum við þau Björn Borgþór Þorbergsson og Þóreyju Bjarnadóttur fyrir þáttinn Um land allt. Þau eru í hópi Suðursveitunga sem haslað hafa sér völl í ferðaþjónustu en halda þó enn í sauðfjárbúskap. 

Samfélagsbyltingin sem orðin er í Suðursveit með mikilli fjölgun ferðamanna er tekin fyrir og meðal annars heimsótt glæsihótel sem Skúli Gunnar Sigfússon, kenndur við Subway, hefur opnað í landi Reynivalla.

Baðbomburnar á Þórshöfn komnar úr sjósundinu.

Þáttaröðin Um land allt hóf fyrst göngu sína á Stöð 2 árið 2012 og hafa síðan verið framleiddir um 150 þættir. Núna bætist ný þáttaröð við með alls sex þáttum og verður sá fyrsti frumsýndur á Sýn+ næstkomandi miðvikudagskvöld, 28. október, klukkan 19:20.

Sem fyrr eru samfélög heimsótt vítt og breitt um landið. Við kynnumst sögu, náttúru og mannlífi viðkomandi staða og héraða. Heilsað er upp á fólk í leik og starfi og hlýtt á sjónarmið sem helst brenna á fólki í ólíkum byggðum.

Magnús Ólafsson, sagnamaður og fyrrverandi bóndi á Sveinsstöðum, segir frá aftöku Friðriks og Agnesar á Þrístöpum.Egill Aðalsteinsson

Í fyrsta þættinum á miðvikudagskvöld verða helstu sögustaðir síðustu aftökunnar á Íslandi heimsóttir. Aftökustaðurinn var á Þrístöpum í Vatnsdalshólum en þar voru þau Friðrik Sigurðsson og Agnes Magnúsdóttir hálshöggvin árið 1830 fyrir morð á tveimur mönnum. Morðin voru framin tveimur árum fyrr á jörðinni Illugastöðum á Vatnsnesi.

Í þáttaröðinni verður einnig fjallað um sveitabyggðina á Vatnsnesi, farið í Vatnsdal og Þing, Þórshöfn og Langanes verða heimsótt sem og Suðursveit.

Hér má sjá nokkur dæmi um viðfangsefni nýjustu þáttaraðarinnar Um land allt:


Tengdar fréttir

Stjörnurnar syngja inn haustið

Haustdagskrá Sýnar fer á fullt þessa dagana og innlend framleiðsla vegur þar þyngst. Sex nýir innlendir þættir eru á dagskrá á Sýn og Sýn+ í haust og dagskrárgerð í kringum Sýn Sport hefur aldrei verið sterkari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×